Fréttablaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 8
Daníel Ægir Kristjánsson var á dögunum
dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til 30.000 króna
sektargreiðslu fyrir að „valda hneykslan og hættu á
almannafæri“, með því að sitja uppi í afturrúðu bíls,
sem lögreglan á Selfossi stöðvaði aðfaranótt 3. desem-
ber. Þá var Daníel sextán ára. Að auki greiðir hann
tæpar 200.000 krónur í málskostnað.
Hann segist sjálfur hafa verið dæmdur „fyrir að
vinka löggunni“. Hann hafi talið
að málinu yrði vísað frá. „Við
vorum að rúnta þegar löggan
stoppaði okkur og sagði að við
keyrðum ekki nógu varlega.
Þegar við lögðum af stað aftur þá
vinkaði ég út um gluggann. Þá
var bíllinn stoppaður aftur og ég
settur í fangaklefa.“
Félagar Daníels báru fyrir
dómi að hann hefði ekki setið
uppi í glugga bifreiðarinnar, en
dómara þótti það fullsannað.
Spurður hvort aldrei hafi komið til greina að gera
sátt fyrir dómstólum segir Daníel að hann hafi ekki
talið það koma til greina. Sækjandi hafi haft á orði að
úr honum ætti að gera fordæmi. „Saksóknarinn var
ekkert að fíla mig.“
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi,
segir málið vissulega leiðinlegt fyrir drenginn, en
betra en ef illa hefði farið. Hegðun hans hafi skapað
hættu fyrir aðra farþega og ekki verið til eftirbreytni.
Umferðarhegðun almennt séð þurfi að bæta, því hún
geti verið stórhættuleg.
Utanríkisráðherrar
Atlantshafsbandalagsríkjanna
verða alls ekki uppiskroppa með
umræðuefni á fundi sínum sem
hefst í Ósló í dag. Harðir bardagar í
Afganistan, vaxandi spenna í Kos-
ovo og áform Bandaríkjamanna um
að koma sér upp eldflaugavörnum í
Evrópu eru allt saman málefni sem
hart verður deilt um.
Meginverkefni Condoleezzu Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
verður að reyna að sannfæra Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rússa,
sem mætir þangað til viðræðna, um
að fyrirhugað eldflaugavarnakerfi
Bandaríkjanna sé kannski ekki
alslæmt fyrir Rússland.
Það gæti þó orðið þrautin þyngri
því Rússar hafa harðlega gagnrýnt
þessi áform.
„Ef við verðum þess varir að
öryggi Rússlands stafi hætta af
þessum búnaði, þá munum við beina
herafla okkar gegn honum,“ sagði
Júrí Balujevskí, herforingi og yfir-
maður rússneska herráðsins, á
þriðjudaginn.
Rússar hafa einnig gefið í skyn að
þeir muni beita neitunarvaldi gegn
tillögum Evrópusambandsins um
framtíðarstöðu Kosovohéraðs, sem
fjallað verður um í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna innan
skamms.
Nokkur bjartsýni virðist hins
vegar ríkja varðandi herafla Nató í
Afganistan, sem um þessar mundir
býr sig undir harðnandi átök við
sveitir talibana.
Vandamál heimsins á dagskrá
Yfirvöld lögðu hald á
minna af fíkniefnum á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs en á sama tíma
í fyrra og í hittifyrra. Þetta kemur
fram í bráðabirgðatölum um hald-
lagt magn fíkniefna sem embætti
ríkislögreglustjóra hefur tekið
saman fyrir Fréttablaðið.
Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, segir
að alltaf hafi verið sveiflur milli
ára og innan hvers árs í magni
þeirra efna sem lagt er hald á.
„Þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt.
Það hefur alltaf verið kapphlaup á
milli smyglaðferðanna annars
vegar og árangurs okkar hins
vegar. Það var viðbúið að þessir
menn myndu taka smyglaðferðir
sínar til einhvers konar endurskoð-
unar í ljósi gríðarlegs árangurs
okkar á síðustu árum. En við leggj-
um mjög hart að
okkur við að
bæta okkar
aðferðir og
þegar einhver
bið verður á því
að stór sending
náist þá þýðir
það bara eitt; að
það styttist í
næstu stóru
haldlagningu.“
Lögregla og tollgæsla lögðu hald
á 913 grömm af kókaíni á fyrstu
þremur mánuðum ársins, eða um
hálfu kílói minna en á sama tíma-
bili í fyrra. Þar munar mestu um
tvær íslenskar konur á fimmtugs-
aldri sem voru handteknar með
tæp 700 grömm af kókaíni falin
innvortis þrettánda febrúar síðast-
liðinn, þegar þær komu saman með
flugi frá Amsterdam.
Á fyrsta ársfjórðungi var tekið
tæpt kíló af amfetamíni samkvæmt
bráðabirgðatölunum. Það er tölu-
vert minna magn en á sama tíma í
fyrra þegar yfirvöld tóku alls 9,5
kíló af amfetamíni. Þó ber að skoða
allar þessar tölur með þeim fyrir-
vara að mögulega eigi eftir að vigta
hluta þeirra efna sem voru tekin í
mars 2007.
Árið í fyrra var metár hjá yfir-
völdum við haldlagningu fíkniefna.
Þá náðust um 12,8 kíló af kókaíni
og 46,4 kíló af amfetamíni, sem var
örlítið meira en náðst hafði saman-
lagt á árunum 2000-2005.
Mun meira er tekið af ofskynj-
unarefnum en síðustu ár á undan.
Lagt var hald á 211 stykki af LSD á
fyrstu þremur mánuðum ársins í
ár en við það bætast tæplega 700
skammtar sem karlmaður á þrí-
tugsaldri var handtekinn með í
Njarðvík í lok síðustu viku líkt og
sagt var frá í Fréttablaðinu í gær.
Einnig hefur verið tekið talsvert
meira af ofskynjunarsveppum, eða
um 300 grömm, en þeir hafa nánast
ekki komið inn á borð yfirvalda
síðastliðin tvö ár.
Hald lagt á minna af
fíkniefnum en í fyrra
Löggæsla og tollgæsla lögðu hald á minna magn af fíkniefnum á fyrsta árs-
fjórðungi í ár en á sama tíma í fyrra. Meira hefur fundist af ofskynjunarefnum.
Alltaf hafa verið sveiflur, segir lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Økoren WC-hreinsir
Seigfljótandi WC-hreinsir sem fjarlægir
fljótt og vel kalk, ry› og óhreinindi ásamt
flví a› koma í veg fyrir ólykt.
Økoren Universal
alhli›a hreinsiefni
Alhli›a basískt hreinsiefni til daglegra
nota á öllum flvottheldum flötum. Einnig
kjöri› til flrifa á sápubornum og bónu›um
gólfum.
Økoren uppflvottalögur
Økoren uppflvottalögur er hlutlaust
hreinsiefni til handuppflvotta og
hreinsunar á öllum flvottheldum flötum.
Spartan umhverfisvænn
ba›herbergishreinsir
Umhverfisvænn ba›herbergishreinsir
votta›ur af Green Seal í Bandaríkjunum.
Er me› náttúrulegum s‡rum, sítrónus‡ru (8%)
og flrífur vel sápuskánir, flurrkbletti og
ry›smit af flísum, salernisskálum og vöskum.
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
UMHVERFISVÆN EFNI
FYRIR SUMARBÚSTA‹I
Í bústa›num skiptir miklu máli hverskonar vörur eru
nota›ar vi› flrifin. Röng efnanotkun getur au›veldlega
heft ni›urbrot í rotflróm og valdi› stíflum. Umhverfisvæn
hreinsiefni eru flví bæ›i betri og öruggari kostur.