Fréttablaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 12
Í fyrsta sinn hafa stjörnu-
fræðingar uppgötvað plánetu utan
okkar sólkerfis sem hefur svipað
hitastig og er á jörðinni og er því
mögulega byggileg. „Þetta er þýð-
ingarmikið skref í leitinni að
mögulegu lífi í alheiminum,“ sagði
stjörnufræðingur við háskólann í
Genf, Michel Mayor, sem er einn
vísindamannanna er uppgötvuðu
plánetuna.
Plánetan, sem hefur verið nefnd
581c, er í 193 billjón kílómetra
fjarlægð, sem jafngildir 20,5
ljósárum, sem telst tiltölulega
nálægt. Er hún svipuð jörðinni að
stærð og möguleiki talinn á að
þar geti verið vatn í fljótandi
formi, sem er forsenda lífs.
Mars fellur einnig í flokkinn
yfir plánetur sem gætu verið
byggilegar þar sem Mars er af
svipaðri stærð og jörðin og vatn
getur verið þar í fljótandi formi
miðað við hitastig. En aldrei fyrr
hefur slík pláneta fundist utan
sólkerfis okkar.
Plánetan er á sporbaug í kring-
um rauðu dvergstjörnuna Gliese
581 sem er miklu minni, dekkri og
kaldari en sólin okkar. Slíkir
„rauðir dvergar“ eru orkulitlar
örsmáar stjörnur. Frá þeim stafar
dökkri rauðri birtu og þær lifa
lengur en stjörnur á borð við sól-
ina okkar. Það var ekki fyrr en
fyrir fáum árum að stjörnufræð-
ingar fóru að rannsaka hvort
mögulegt væri að byggilegar plá-
netur gætu verið á sporbaug um
slíkar stjörnur.
Um áttatíu prósent stjarna í
nágrenni jarðar eru rauðir dverg-
ar og uppgötvunin nú mun eflaust
setja aukinn kraft í rannsóknir á
fylgihnöttum þeirra.
Kenningin gerir ráð fyrir að
andrúmsloft sé að finna á 581c en
óljóst er hvað er í því andrúms-
lofti. Ef það er of þykkt gæti það
orsakað of mikinn hita á yfirborði
plánetunnar, að sögn Mayor. Hins
vegar telja vísindamennirnir að
meðalhitinn sé á bilinu 32 til 140
gráður á Celsíus. Þeirri niður-
stöðu var ákaft fagnað meðal
stjörnufræðinga þar sem „Gull-
brárvandinn hefur fylgt öllum
plánetum utan sólkerfis okkar
sem rannsakaðar hafa verið hing-
að til, þær hafa allar verið of heit-
ar, of kaldar, of stórar og þar fram
eftir götunum“. Nýja plánetan
uppfyllir öll skilyrði – eftir því
sem næst verður komist.
Mögulega líf í
öðru sólkerfi
Vísindamenn hafa í fyrsta skipti fundið plánetu utan
okkar sólkerfis sem er mögulega byggileg. Plánetan er
talin svipuð jörðinni að stærð og með líkt hitastig.
Flutningaskipið Wilson
Muuga, sem strandaði í Hvalsnes-
fjöru í desember, hefur verið selt
til Líbanon. Guðmundur Ásgeirs-
son, stjórnarformaður Nesskipa,
segir að skipið verði notað til
stórflutninga í Svartahafi,
Miðjarðarhafi og jafnvel Rauða-
hafi. Kaupverðið er trúnaðarmál.
„Það var aldrei búist við háu
kaupverði þannig að þetta var
bara spurning um nokkrar
krónur,“ segir Guðmundur og býst
við að siglt verði utan með skipið í
vor þegar búið verði að taka upp
átta tonn af olíu sem hafi verið
hirt úr lestinni, koma björgunar-
bátum fyrir og þrífa.
Bresk stjórnvöld hafa
ákveðið að hætta að nota orðalagið
„stríð gegn hryðjuverkum“, orða-
lag sem George W. Bush Banda-
ríkjaforseti og þeir sem fylgja
honum að málum hafa notað.
„Við notum ekki orðalagið „stríð
gegn hryðjuverkum“ vegna þess
að við getum ekki sigrað með
hernaðaraðgerðum einum saman,
og vegna þess að við stöndum ekki
andspænis einum óvini sem er
skipulagður, með skýra sjálfs-
mynd og samstillt markmið,“
sagði Hilary Benn, ráðherra
alþjóðlegra þróunarmála í ríkis-
stjórn Tonys Blair.
„Þarna stendur meirihluti alls
fólks í heiminum, af öllum þjóð-
ernum og trúarbrögðum, gegn
fáum lauslega tengdum, síbreyti-
legum og ólíkum hópum sem eiga
frekar lítið sameiginlegt fyrir
utan samkennd með öðrum sem
deila með þeim bjagaðri heims-
mynd og hugmynd um að vera
hluti af einhverju stærra,“ sagði
Benn enn fremur.