Fréttablaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 82
Jóhannes Karl Guðjóns-
son hefur verið orðaður við upp-
eldisfélag sitt, ÍA, þessa dagana.
„Mér finnst alltaf gaman að
spila á Skaganum. Ég gæti alveg
eins leikið með liðinu fram í júní
en ég efa að ég fengi leyfi frá fé-
laginu þannig að ég sé það ekki
gerast,“ sagði Jóhannes Karl,
sem er samningsbundinn enska
1. deildarliðinu Burnley til næstu
þriggja ára.
Tímabilið hjá Jóhannesi Karli
er búið 6. maí og hann kemur
heim hinn ellefta. Daginn eftir
spilar ÍA sinn fyrsta leik í deild-
inni gegn FH. Jóhannes mun
æfa með ÍA-liðinu eftir að hann
kemur heim enda ætlar hann sér
að vera í toppformi með landslið-
inu sem mun leika 2. og 6. júní.
Í maí eru spilaðar fjórar um-
ferðir í Landsbankadeildinni og
margir Skagamenn ala þá von í
brjósti að Jóhannes spili þessa
leiki.
„Ég var spurður að þessu í
gríni um daginn og ég hugsaði
með mér að ég væri alveg til í að
gera þetta, koma og hjálpa liðinu,
en eins og ég segi sé ég það ekki
gerast. Auðvitað væri gaman að
leika með bræðrum mínum og
það er ekkert óeðlilegt að fólk
velti þessu fyrir sér þar sem
möguleikinn er alltaf fyrir hendi
í raun og veru,“ sagði Jóhannes.
Gísli Gíslason, formaður
rekstrarfélags meistaraflokks
ÍA, sagði Skagamenn þegar hafa
rætt við Burnley en félagið væri
ekki hrifið af hugmyndinni.
Væri gaman að leika
með bræðrum mínum
Hamar hefur slitið
samstarfinu við Selfoss í körfu-
boltanum og ákveðið að endurnýja
ekki samninginn milli félaganna
sem hefur verið í gildi undanfarin
þrjú ár. Hamar/Selfoss-liðið breyt-
ist því aftur í lið Hamars en Hver-
gerðingar eru aðeins eitt af fjór-
um félögum sem eiga lið í Iceland
Express-deild karla og kvenna,
hin eru Keflavík, Grindavík og
Fjölnir.
Hamar/Selfoss hefur spilað í úr-
valsdeildinni undanfarin þrjú ár
og nýlokið tímabil var það lang-
besta af þeim, liðið komst í úr-
slitakeppnina í fyrsta sinn og alla
leið í bikarúrslitaleikinn þar sem
liðið tapaði fyrir ÍR alveg eins og í
fyrri bikarúrslitaleik þess 2001.
Hvergerðingar vonuðust eftir
meiru úr samstarfi sínu við ná-
grannana frá Selfossi, bæði í
formi hærri styrkja bæjarsjóðs
sem og í meiri áhuga í tengslum
við heimaleiki liðsins í Iðu á Sel-
fossi. Hamar/Selfoss-liðinu gekk
svipað vel á þessum tveimur
heimavöllum sínum fyrsta tíma-
bil samtarfsins, 2004-05, en það
hefur verið mikill munur á gengi
liðsins undanfarna tvo vetur, eftir
því hvort liðið spilar á Iðu eða í
Hveragerði.
Undanfarin tvö tímabil hefur
munað 37,4 prósentum á sigur-
hlutfalli Hamars-liðsins hvort
liðið spilar á Iðu á Selfossi (18,2
prósent) eða í Hveragerði (55,6%).
Þessu voru stjórnarmenn félags-
ins farnir að gera sér grein fyrir
í vetur enda allir „úrslitaleikir“
liðsins á heimavelli eftir áramót
spilaðir í Hveragerði.
„Það eru þrír menn á Selfossi
sem hafa áhuga á körfubolta og
þetta hefur ekki gengið upp. Nán-
ast allt starfsfólkið í kringum leik-
ina hefur komið úr Hvergerði og
við erum líka búin að stofna fjár-
öflunarhóp sem ætlar að safna
upp í styrkina sem við fengum frá
Selfossbæ,“ segir Lárus Ingi Frið-
finnsson, formaður Hamars, sem
segir báða aðila skilja í fullri vin-
semd en að handboltahefðin sé svo
sterk á Selfossi að körfuboltinn
eigi þar erfitt uppdráttar.
„Við reiknum með að vera
með sama lið. Bojan og George
Byrd verða áfram og við verðum
með óbreyttan mannskap,“ segir
Lárus.
Þeir Pétur Ingvarsson og Ari
Gunnarsson verða áfram með
liðin. Pétur er að hefja sitt tíunda
tímabil í Hveragerði og enginn
hefur stjórnað liði í fleiri leikjum
í röð í úrvalsdeild (176) en Ari tók
við Hamarsliðinu í slæmri stöðu í
vetur og undir hans stjórn bjarg-
aði liðið sér frá falli með því að
vinna tvo frábæra sigra í lokaum-
ferðunum.
Með því að segja upp samstarf-
inu við Selfoss standa Hvergerð-
ingar uppi með „ólöglegt“ íþrótta-
hús fari tillaga stjórnar KKÍ í
gegnum ársþingið. Þar eiga lið
í efstu deildum karla og kvenna
að leika á parkettgólfi frá og með
keppnistímabilinu 2008-09.
Hamarsmenn skiptu um dúk á
gólfi hússins fyrir nokkrum árum
og fá því ekki parkett á gólfið.
Bjartsýnustu menn í bænum von-
ast þó eftir að nýtt hús verði byggt
í næstu framtíð.
Þriggja ára samstarfi Hamars/Selfoss í körfunni er lokið. Hvergerðingar fundu
ekki fyrir nægilegum áhuga í „handboltabænum“ Selfossi og ætla að mæta
einir síns liðs í Iceland Express-deildir karla og kvenna á næsta tímabili.
Vorferð á varnarsvæðið Keflavíkurflugvelli
Allir velkomnir.
Á fyrrum varnarsvæðinu eru ótal möguleikar sem nýst geta okkur Íslendingum
til atvinnuuppbyggingar og sóknar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, tekur á móti hópnum. Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar sýnir okkur fyrrum varnarsvæðið.
Fararstjórar eru Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og Guðfinna S. Bjarnadóttir
frambjóðandi í Reykjavík ásamt fleiri frambjóðendum.
Skráning í ferðina er í Valhöll í síma 515-1700 eða á kosningaskrifstofum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Boðið verður upp á ilmandi Knorr-súpu og brauð á öllum kosningaskrifstofum
fyrir ferðina frá kl 11:00. Í ferðinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Lagt verður af stað með rútum kl. 13.00 frá eftirtöldum
kosningaskrifstofum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
// Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7 Sími: 569-8133
// JL Húsinu, Hringbraut 119 Sími: 569-8181
// Grafarvogi, Hverafold 5 Sími: 569-8171
// Langholtsvegi 43 (f.v. hús Landsbankans) Sími: 569-8141
// Breiðholti, Álfabakka 14a (Mjódd) Sími: 569-8161
// Árbæ og Grafarholti, Hraunbæ 102B Sími: 567-4011
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík bjóða til vorferðar næsta
laugardag 28. apríl á varnarsvæðið Keflavíkurflugvelli.
Frambjóðendur á staðnum