Fréttablaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 31
Á mánudaginn heldur Urður í tónleikaferð
ásamt níu mánaða dóttur sinni, barnfóstru og
öðrum liðsmönnum sveitarinnar.
Urður Hákonardóttir, söngkona danssveitarinnar Gus
Gus, hefur lengur verið viðloðandi tískubransann en
tónlistina.
Aðeins sextán ára gömul byrjaði hún að vinna í
tískuvöruversluninni Spúútnik og þar er hún enn, á
milli þess sem hún er ekki að sinna móðurhlutverkinu
eða syngja með Gus Gus.
„Ég hef verið með annan fótinn í Spúútnik undan-
farin tíu ár,“ segir Urður og bætir því við að fötin
sem hún klæðist á myndinni hafi hún fundið á lagern-
um þar sem hún vinnur þessa dagana. „Þetta eru sec-
ond hand-buxur frá því snemma á síðasta áratug geri
ég ráð fyrir en vestið fína er úr leðri og með gull og
demantaskreytingum,“ segir hún og reynir um leið að
sannfæra blaðamann um að þetta sé alvöru demanta-
og gullskreyting.
„Ætli það hafi ekki kostað svona um 2,5 milljónir
þetta vesti, en ég fékk náttúrlega starfsmannaafslátt,“
segir hún og hlær.
Gus Gus er nú á leiðinni í tónleikaferðalag og ætlar
Urður að taka níu mánaða gamla dóttur sína, Kríu,
með sér. „Þetta verður kannski pínu strembið en vin-
kona mín kemur til með að aðstoða mig og við hlökk-
um mjög mikið til.“
Í dag tíðkast það að hljómsveitir hafi stílista sér til
halds og trausts og til aðstoðar Gus Gus er vinkona
Urðar, Hrafnhildur Guðrúnardóttir.
„Hún svona ráðleggur okkur í þessum efnum en svo
höfum við líka stundum notið aðstoðar frá stelpunum
í Aftur. Við klæðum okkur alltaf sérstaklega upp áður
en farið er á svið og ég geri ráð fyrir að við tökum með
okkur svona eina tösku undir búninga fyrir þessa ferð,“
segir þessi frækna móðir og söngkona að lokum.
Milljóna króna vesti
Age Defying Deep Cleansing Gentle Exfoliating Herbal Cleansing
ANDLITSKLÚTAR
Andlitshreinsiklútar sem innihalda
blöndu af lækningajurtum og vítamínum
til þess að hreinsa, fjarlægja farða
og vernda húðina.
B5 próvítamín verndar og gefur húðinni
raka, kamillukjarni róar hana. Húðin verður
fersk og heilbrigð útlits. Ofnæmisprófaðir.
Andlitshreinsiklútar sem innihalda sérstaka
blöndu af andoxunarefnum til þess að hægja á
öldrun húðarinnar:Coensím Q10, beta glucan,
vínberjakjarnaolía, kjarni úr grænu te og E vítamín.
Sæt möndluolía og B5 próvítamín gefa húðinni
raka og vernda hana. Klútarnir eru mildir en áhrifaríkir
og henta sérstaklega til hreinsunar á augnfarða.
Mildir en áhrifaríkir andlitsdjúphreinsiklútar sem
fjarlægja andlitsfarða og eru góðir fyrir húðina.
Náttúrulegir ávaxtakjarnar (AHA) djúphreinsa
húðina, B5 próvítamín vernda
hana og næra og Kamillukjarni róar húðina.
Klútarnir innihalda enga olíu og stífla
þar af leiðandi ekki svitaholurnar. Ofnæmisprófaðir.
Frískandi skrúbbandlitshreinsiklútar.
Klútarnir fjarlægja dauðar húðfrumur og hreinsa
húðina án þess að þurrka hana. Kjarni úr greipávöxtum
frískar upp á húðina og kjarni úr sítrónugrasi tónar og
örvar húðina. Klútarnir innihalda einnig B5 próvítamín
og kamillukjarna sem gefa húðinni raka og róa hana.
Húðsjúkdómafræðilega prófaðar.