Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 31

Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 31
Á mánudaginn heldur Urður í tónleikaferð ásamt níu mánaða dóttur sinni, barnfóstru og öðrum liðsmönnum sveitarinnar. Urður Hákonardóttir, söngkona danssveitarinnar Gus Gus, hefur lengur verið viðloðandi tískubransann en tónlistina. Aðeins sextán ára gömul byrjaði hún að vinna í tískuvöruversluninni Spúútnik og þar er hún enn, á milli þess sem hún er ekki að sinna móðurhlutverkinu eða syngja með Gus Gus. „Ég hef verið með annan fótinn í Spúútnik undan- farin tíu ár,“ segir Urður og bætir því við að fötin sem hún klæðist á myndinni hafi hún fundið á lagern- um þar sem hún vinnur þessa dagana. „Þetta eru sec- ond hand-buxur frá því snemma á síðasta áratug geri ég ráð fyrir en vestið fína er úr leðri og með gull og demantaskreytingum,“ segir hún og reynir um leið að sannfæra blaðamann um að þetta sé alvöru demanta- og gullskreyting. „Ætli það hafi ekki kostað svona um 2,5 milljónir þetta vesti, en ég fékk náttúrlega starfsmannaafslátt,“ segir hún og hlær. Gus Gus er nú á leiðinni í tónleikaferðalag og ætlar Urður að taka níu mánaða gamla dóttur sína, Kríu, með sér. „Þetta verður kannski pínu strembið en vin- kona mín kemur til með að aðstoða mig og við hlökk- um mjög mikið til.“ Í dag tíðkast það að hljómsveitir hafi stílista sér til halds og trausts og til aðstoðar Gus Gus er vinkona Urðar, Hrafnhildur Guðrúnardóttir. „Hún svona ráðleggur okkur í þessum efnum en svo höfum við líka stundum notið aðstoðar frá stelpunum í Aftur. Við klæðum okkur alltaf sérstaklega upp áður en farið er á svið og ég geri ráð fyrir að við tökum með okkur svona eina tösku undir búninga fyrir þessa ferð,“ segir þessi frækna móðir og söngkona að lokum. Milljóna króna vesti Age Defying Deep Cleansing Gentle Exfoliating Herbal Cleansing ANDLITSKLÚTAR Andlitshreinsiklútar sem innihalda blöndu af lækningajurtum og vítamínum til þess að hreinsa, fjarlægja farða og vernda húðina. B5 próvítamín verndar og gefur húðinni raka, kamillukjarni róar hana. Húðin verður fersk og heilbrigð útlits. Ofnæmisprófaðir. Andlitshreinsiklútar sem innihalda sérstaka blöndu af andoxunarefnum til þess að hægja á öldrun húðarinnar:Coensím Q10, beta glucan, vínberjakjarnaolía, kjarni úr grænu te og E vítamín. Sæt möndluolía og B5 próvítamín gefa húðinni raka og vernda hana. Klútarnir eru mildir en áhrifaríkir og henta sérstaklega til hreinsunar á augnfarða. Mildir en áhrifaríkir andlitsdjúphreinsiklútar sem fjarlægja andlitsfarða og eru góðir fyrir húðina. Náttúrulegir ávaxtakjarnar (AHA) djúphreinsa húðina, B5 próvítamín vernda hana og næra og Kamillukjarni róar húðina. Klútarnir innihalda enga olíu og stífla þar af leiðandi ekki svitaholurnar. Ofnæmisprófaðir. Frískandi skrúbbandlitshreinsiklútar. Klútarnir fjarlægja dauðar húðfrumur og hreinsa húðina án þess að þurrka hana. Kjarni úr greipávöxtum frískar upp á húðina og kjarni úr sítrónugrasi tónar og örvar húðina. Klútarnir innihalda einnig B5 próvítamín og kamillukjarna sem gefa húðinni raka og róa hana. Húðsjúkdómafræðilega prófaðar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.