Fréttablaðið - 02.05.2007, Page 10

Fréttablaðið - 02.05.2007, Page 10
 2. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR2 fréttablaðið verk að vinna Yuchai Mest seldu smá-beltagröfur á íslandi 2006 Víða rísa nú ný hverfi og slegist er um lóðirnar. Slagurinn er mestur á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að þar sé framboðið einnig mest. Hægt er að fá lóðir í Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Reykjavík og Kópa- vogi. Í Mosfellsbæ eru það Helga- fellslandið, en það hefur mikið verið í fréttum vegna fyrirhug- aðrar tengibrautar sem fer mjög svo fyrir brjóstið á íbúum Álafoss- kvosar, og Leirvogstunga. Í Helga- fellshverfi munu rísa 1.020 íbúð- ir, 560 í sérbýli og 460 í fjölbýli. Í Leirvogstungu mun lágreist íbúð- arbyggð rísa enda markmiðið að halda í gott útsýni til Reykjavíkur, Esjunnar og yfir Leirvoginn. Sala lóða í Helgafellshverfi og Leir- vogstungu er í fullum gangi. Reykjavíkurborg opnaði fyrir skemmstu nýjan vef, www.skip- bygg.is, þar sem hægt er að fylgj- ast með framgangi uppbyggingar nýrra hverfa í Reykjavík. Þar er meðal annars hægt að skoða þau þrjú hverfi sem úthlutað verð- ur úr í ár: Sléttuveg, Úlfarsárdal og Reynisvatnsás. Úlfarsárdal- ur ríður á vaðið en úthlutað verð- ur í næsta mánuði. Sléttuvegur og Reynisvatnsás fylgja í kjölfarið í september. Í Hafnarfirði verður uppbygg- ingu Áslands og Vallanna haldið áfram og í Kópavogi er Vatnsend- inn á dagskrá. Samkvæmt upplýs- ingum frá skipulagssviði Kópa- vogsbæjar er undirbúningur lóðaúthlutunar í fullum gangi og verður fyrirkomulagið auglýst síðar í sumar. - tg Lóðaúthlutanir í og við Reykjavík Helgafellshverfi í Mosfellsbæ er meðal hverfa sem byggja á upp á næstu árum. Fjöldinn allur af lóðum stendur íbúum höfuðborgarsvæðisins til boða næstu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hús í suðrænum stíl og með malbikuðum verðlaunagarði stendur við Hindarlund á Akureyri. Þar búa hjónin Ari Axel Jónsson og Hólmfríður Þorleifsdóttir. „Þegar við vorum búin að koma krakkaskaranum frá okkur lang- aði okkur að minnka við okkur. Við fengum Loga Má Einarsson arkitekt til að teikna það og húsið varð síðan að veruleika árið 1997,“ segir Ari Axel Jónsson, sem býr ásamt konu sinni Hólmfríði Þor- leifsdóttur í sérstaklega fallegu húsi við Hindarlund á Akureyri. Hindarlundurinn er í nýrri hluta Lundahverfisins sem staðsett er á suðurbrekkunni á Akureyri. Að sögn Ara fékk Logi Már arkitekt frjálsar hendur við hönnun húss- ins, með nokkrum skilyrðum þó. „Við vildum hús sem væri pass- lega stórt fyrir okkur hjón- in, en samt það lítið að engin hætta væri á að krakkarnir flyttu aftur heim,“ segir Ari hlæjandi. Húsið er þriggja herbergja og 132 fermetrar með bílskúr. Ari segir Loga Má vera einstak- lega frjóan mann enda hafa bæði litir og mósaíkflísar fengið að njóta sín við hönnunina. Garðurinn í Hindarlundinum er sennilega einn sá sérstak- asti á Íslandi og fyrir hann fengu hjónin verðlaun árið 2003. „Ég er sennilega eini maðurinn á Íslandi sem hefur verið verðlaun- aður fyrir leti, því ég hef ekki sleg- ið gras í tíu ár,“ segir Ari brosandi, enda garðurinn allur malbikaður! Að sögn þeirra hjóna áttu þau stór- an garð í mörg ár sem Ari segir hafa jafnast á við tún. Sá garð- ur gaf af sér átta poka af heyi á viku og þar sem þau hafa aldrei verið með skepnur fannst þeim þetta algjör óþarfi. Þegar hug- myndin að nýja húsinu kviknaði var það fyrsta skilyrðið að þar yrði enginn hefðbundinn garður. „Við fengum Halldór Jóhannesson hjá arkitektastofunni Teikn á lofti til að hanna garðinn fyrir okkur. Ég held að annar hver Íslendingur hafi látið sér detta þetta í hug, en ég held að við séum þau einu á landinu sem höfum framkvæmt þetta,“ segja Ari og Hólmfríður, sem eru hæst- ánægð með malbikið í garðinum og sakna síður en svo grænna garða. rh@frettabladid.is Malbikaði garðinn þegar krakkarnir fóru að heiman Ari Jónsson og Hólmfríður Þorleifsdóttir voru orðin fullsödd af garðvinnu og malbikuðu garðinn. Logi Már Einarsson, arkitekt á Akureyri, fékk að leika lausum hala við hönnun húss- ins. Eina skilyrðið var gott pláss fyrir hjónin sem væri þó það lítið að krakkarnir gætu ekki flutt heim aftur! Halldór Jóhannsson, arkitekt hjá Teikn á lofti á Akureyri, hannaði garðinn, sem er malbikaður og með steinhleðslum og fallegum palli. Einnig er verið að vinna að fallegum gosbrunni sem á að koma í garðinn seinna í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS. Suður-amerískra áhrifa gætir í litagleði og flísum, sem setja framandi svip á þetta fallega hús við Hindarlund.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.