Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 2
 Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 12 á hádegi í dag. Hver sem niðurstaða dómsins verður er afar líklegt að dóminum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Um er að ræða þann þátt málsins sem varð til þegar settur ríkissaksóknari gaf út endurákæru í 19 liðum eftir að 32 af 40 liðum upphaflegrar ákæru hafði verið vísað frá dómi. Fyrsta ákærulið endurákærunnar var vísað frá dómi. Þrír eru ákærðir í þessum hluta Baugsmálsins, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, Tryggvi Jónsson, fyrrver- andi aðstoðarforstjóri Baugs, og Jón Gerald Sullen- berger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna. Jón Ásgeir er ákærður í 17 af 18 eftirstandandi ákæruliðum, og hljóða ákærurnar meðal annars upp á meiri háttar bókhaldsbrot og fjárdrátt úr Baugi. Tryggvi Jónsson er ákærður fyrir sömu sakir í 9 ákæruliðum af 18. Jón Gerald, sem kom málinu af stað með kæru til lögreglu í ágúst 2002, er ákærður í einum ákærulið fyrir meiri háttar bókhaldsbrot. Líklegt er að dómi héraðsdóms verði áfrýjað til Hæstaréttar, hvernig sem fer, og því vart um endanlegan dóm að ræða. Eftir að sýknudómur féll í fyrsta hluta Baugsmálsins tók þó Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í málinu, þá ákvörðun að áfrýja aðeins sex af átta ákæruliðum til Hæstaréttar. Ríkisstjórn Austur- ríkis ákvað í gær að leggja formlega fram lagafrumvarp, þar sem lagt er til að lágmarksaldur til að kjósa í þingkosningum í landinu verði færður niður í 16 ár. Verði frumvarpið samþykkt yrði Austurríki fyrsta landið í Evrópu til að lögleiða 16 ára almennan kosningaaldur. Gagn- rýnendur segja of geyst farið; lækkun kosningaaldurs þyrfti að fylgja meiri kennsla um þjóðfé- lagsmál í skólum. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um fleiri kosningatengdar breytingar, svo sem að lengja kjörtímabil þjóðþingsins úr fjórum árum í fimm. Kosningaaldur niður í 16 ár Rætt verður hvaða regl- ur munu gilda um úthlutun lóða í Reykjavík á fundi borgarráðs í dag. Björn Ingi Hrafnsson, for- maður ráðsins, segir að þar sem lóðirnar verði seldar talsvert undir kostnaðarverði þurfi að setja regl- ur til að koma í veg fyrir lóða- brask. Fulltrúar meirihlutans hafa lagst yfir reglur sem önnur sveit- arfélög hafa beitt við lóðaúthlutun, þær aðferðir sem Reykjavíkur- borg hefur beitt á undanförnum árum og úrskurði félagsmálaráðu- neytisins um ákveðnar útfærslur. „Það hefur ekki fundist hin full- komna aðferð, en við hyggjumst koma þessu þannig fyrir að þetta verði gagnsæjar og sanngjarnar reglur þannig að fólk sitji við sama borð. Markmiðið er að allir geti fengið lóð sem vilja, og þess vegna reynum við að auka framboðið,“ segir Björn Ingi. Ákveðið hefur verið að lóðir í Reykjavík verði seldar á föstu verði óháð stærð, og þurfa þeir sem byggja einbýlishús í nýjum hverfum borgarinnar að greiða 11 milljónir króna fyrir lóð. Þetta er nokkuð meira en greitt er fyrir lóðir í nýjum hverfum í Hafnarfirði. Við síðustu úthlutun þurftu þeir sem ætluðu sér að byggja á Völlunum eða í Áslands- hverfi þannig að greiða um 9.400 krónur á hvern lóðarfermetra, auk ýmissa fastra gjalda. Kostnaður- inn var því um 6,4 milljónir fyrir 650 fermetra lóð, eða 8,8 milljónir fyrir 900 fermetra lóð. Í Garðabæ eru lóðir seldar á verði sem nálgast það að vera markaðsverð, segir Guðfinna Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri bæjarins. Sem dæmi var 900 fer- metra lóð í Garðahrauni úthlutað á 16,2 milljónir króna fyrr á árinu. Slík lóð fengist fyrir um 4,1 millj- ón á Akureyri og 2,3 milljónir á Egilsstöðum. Ekki er hægt á þessari stundu að sundurgreina fyrir fjölmiðla hvaða kostnaði borgin verði fyrir sem liggi til grundvallar þeim verð- miða sem settur er á lóðir, segir Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. „Við erum að áætla ákveðinn stofn- kostnað hverfanna, sem getur auð- vitað verið breytilegur frá hverfi til hverfis, en við erum að reyna að láta lóðirnar standa undir því.“ Hann segir að inni í lóðaverðinu séu gatnagerðargjöld, en ekki ýmis þjónustugjöld og byggingar- leyfisgjöld. Gjöldunum sé ekki eingöngu ætlað að standa undir gatnagerð, heldur einnig uppbygg- ingu innviða nýrra hverfa, svo sem grunnskóla, leikskóla, íþrótta- mannvirkja og fleira. Björn Ingi bendir á að þegar lóðum í fyrsta áfanga Úlfarsárdals hafi verið úthlutað á síðasta kjör- tímabili hafi lóðaverðið verið á bil- inu 18-23 milljónir króna, en hlið- stæðum eða stærri lóðum verði á næstunni úthlutað fyrir 11 milljónir króna. Borgarráð vill koma í veg fyrir lóðabrask Reglur um úthlutun lóða í Reykjavík verða ræddar í borgarráði í dag. Mikill munur er á lóðaverði í þéttbýli. Ekki fæst uppgefið frá Reykjavíkurborg ná- kvæmlega hvaða kostnaður liggur að baki fastri krónutölu fyrir hverja lóð. BAUGS M Á L I Ð Á neyðarfundi ríkis- stjórnar Ísraels, sem Ehud Olmert forsætisráðherra kallaði saman í gær, sagðist hann ætla að sitja áfram í embættinu þrátt fyrir háværar kröfur um afsögn. Tzipi Livni utanríkisráðherra var meðal þeirra sem hvöttu hann til að segja af sér vegna skýrslu rannsóknarnefndar, þar sem Olmert og Amir Peretz varnar- málaráðherra eru harðlega gagn- rýndir fyrir mistök í tengslum við Líbanonstríðið í sumar. Olmert sagðist ekki ætla að segja af sér fyrr en hann væri búinn að koma í framkvæmd tillögum sem fram koma í skýrslu nefndarinnar. Avigdor Yizthaki, leiðtogi stjórn- armeirihlutans á þingi, sagði þó af sér í gær. Í gærkvöldi kallaði Kad- ima, flokkur Olmerts, jafnframt saman neyðarfund vegna málsins. Þótt Olmert hafi ekki viljað segja af sér í gær situr hann enn undir miklum þrýstingi og í kvöld hefur verið boðaður fjölmennur mótmælafundur í Tel Aviv. Hassan Nasrallah, leiðtogi Hez- bollah, sagðist í gær bera virðingu fyrir erkióvinum sínum í Ísrael vegna þess hvernig þeir hafa tekið á stríðinu í Líbanon. Hann sagði nefndina nú hafa staðfest yfirlýs- ingar sínar að ísraelski herinn hafi beðið ósigur. „Það hlakkar ekkert í mér,“ sagði Nasrallah samt. „Það á alla virðingu skilið að rannsóknar- nefnd sem Olmert skipaði hafi for- dæmt hann.“ Neitar að segja af sér í bráð Stjórnarflokkurinn í Tyrklandi fór á þriðjudag fram á það við þingið að þingkosningum yrði flýtt um nokkra mánuði. Að öllum líkindum verða þær haldnar 22. júlí næstkom- andi í staðinn fyrir nóvember. Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra sá sér ekki annað fært en að flýta þingkosningun- um eftir að honum tókst ekki að fá þingið til að kjósa Abdullah Gül, núverandi utanríkisráðherra, í embætti forseta landsins. Erdogan hefur jafnframt gefið til kynna að hann muni hugsan- lega biðja þingið um að breyta stjórnarskrá landsins þannig að forseti verði framvegis þjóð- kjörinn. Forseti verði þjóðkjörinn Andrea, er þetta bókstaflega blaut tuska í andlitið? Tæplega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness, meðal annars fyrir að bíta lögreglu- mann sem var við skyldustörf í lærið. Maðurinn beitti tönnunum fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði þegar verið var að færa hann í lögreglubifreið. Hann var einnig ákærður fyrir eignaspjöll með því að hafa í maí skellt aftur glerhurð að gufu- baðsklefa í íþróttamiðstöðinni í Garðabæ með þeim afleiðingum að hurðin brotnaði. Embætti ríkissaksóknara sækir málið. Beit lögreglu- mann í lærið Krókódíll nokkur, sem kallaður hefur verið Reggie, hefur skotið upp kollinum á ný í tjörn í Los Angeles. Hann hafði ekki sést í hálft annað ár. Fyrrverandi lögreglumaður er talinn hafa haldið krókódílinn sem gæludýr, en í algeru heimildar- leysi, og sleppt honum í tjörnina eftir að hann varð of stór. Hann sást fyrst í ágúst árið 2005 og olli töluverðum usla þar til hann hvarf skyndilega. Krókódíllinn þykir hættulegur fólki og er mun stærri nú en þegar hann sást síðast, en tilraunir til að handsama hann á sínum tíma fóru allar út um þúfur. Krókódíll kom- inn úr felum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.