Fréttablaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 4
Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra hefur tekið á leigu húsnæði á Kirkju- hvoli í Þykkvabæ og hafa bæði hann og eiginkona hans flutt lögheimili sitt í Þykkvabæinn. Breyting á lögheimili ráðherr- ans er vegna framboðs hans í Suðurkjördæmi, en hann hefur hingað til haft lögheimili í Hafnarfirði. Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður ráðherra, segir að Árni muni eins og flestir aðrir landsbyggðarþingmenn reka tvö heimili, eitt í Þykkvabænum og annað í Hafnarfirði. Lögheimili Árna í Þykkvabæ Viðvörunarskilti sem komið hafði verið fyrir við íshelli á jökulsporði Sólheimajökuls hefur verið fjarlægt. Lögreglan á Hvols- velli segist ekki vita hver hafi verið að verki en litið sé á slík mál alvarlegum augum. Í fyrrasumar lét ferðamaður lífið eftir að hluti af íshelli hrundi yfir hann. Slysavarnafélagið Landsbjörg lét koma nýju skilti fyrir eftir að stuldurinn uppgötvaðist. Lögregl- an minnir á að lífshættulegt geti verið að fara inn í slíka hella. Viðvörunar- merki stolið af hættusvæði Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir ótrúlegan glæfraakstur. Hann ók undir áhrifum fíkniefna, án gildra ökuréttinda, án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglu og langt yfir leyfilegum hámarkshraða í Reykjavík og Kópavogi. Með þessu athæfi raskaði hann umferðaröryggi og stofnaði lífi og heilsu tveggja farþega bílsins sem hann ók og annarra vegfarenda á akstursleiðinni á ófyrirleitinn hátt í augljósa hættu, að því er segir í ákærunni. Háskaaksturinn hófst á Höfðabakka inn á Vestur- landsveg og vestur Ártúnsbrekku. Maðurinn ók þar á 160 kílómetra hraða. Áfram hélt hann, lenti inn á Suðurlandsbraut þar sem hann ók yfir grasflöt inn á Miklubraut án þess að virða biðskyldu, þannig að ökumaður annarrar bifreiðar varð að nauðhemla til að forða árekstri. Síðan lá leið ökuníðingsins upp á gangstétt, um bifreiðastæði við Bústaðaveg, en þar keyrði hann utan í kyrrstæða bifreið. Næst brenndi hann yfir grasflöt og umferðareyju, inn á Reykjanes- braut og áfram, stundum á röngum vegarhelmingi. Lögreglunni tókst að stöðva hann með því að aka á bifreið hans við Súðavog. Í ökuferðinni var maðurinn alltaf tugum kílómetra yfir leyfilegum hámarks- hraða. Neistarnir flugu þegar keppinautarnir um franska forsetaembættið, sósíalistinn Segolene Royal og hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy, mættust í sjónvarpskappræðum í gærkvöld. Þær voru hápunktur kosningabar- áttunnar fyrir úrslitaumferð kosninganna á sunnudaginn. Kappræðurnar voru svo að segja síðasta tækifæri Royal til að vinna upp fylgisforskotið sem flestar skoðanakannanir hafa sýnt Sarkozy njóta. Hún gagnrýndi þar meðal annars feril Sarkozy sem ráðherra í ríkisstjórn Jacques Chirac. Þau tókust einnig á um 35 stunda vinnuvikuna. Eitt síðasta tækifæri Royal Gengið hefur verið frá sölu á búlgarska símafélaginu BTC til bandaríska fjármála- fyrirtækisins AIG Global Invest- ment Group fyrir 160 milljarða króna. Skrifað var undir sölu- samning í gærkvöldi, en stærsti eigandi BTC var Novator, fjár- festingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, með um 85 pró- senta eignarhlut. Í tilkynningu Novator kemur fram að um sé að ræða stærstu skuldsettu yfirtöku í Mið- og Austur-Evrópu til þessa. „Mark- aðsvirði félagsins er um 145 millj- arðar króna. AIG hefur tryggt sér kaup á rúmlega 90 prósentum í félaginu en stefnir að kaupum á öllu félaginu og afskráningu úr Kauphöllinni í Sófíu,“ segir þar. Novator fjárfesti fyrst í BTC í samvinnu við fjárfestingafélagið Advent International, EBRD, National Bank of Greece, og fleiri þegar félagið var einkavætt í júní 2004. Félögin Straumur, Burðarás og Síminn sem þá var í ríkiseigu tóku einnig þátt í upphaflegu við- skiptunum, en þá voru keypt 65 prósent í félaginu. Síðan hefur Novator aukið við hlut sinn og fer við söluna nú með um 85 prósenta hlut í BTC. „Ávöxtun íslensku fjárfestanna sem tóku þátt í fyrstu viðskiptunum fyrir rúm- lega tveimur og hálfu ári er nærri fimmföld. Hagnaður Novator af viðskiptunum er um 55 til 60 milljarðar króna en annarra íslenskra fjárfesta um 6 milljarð- ar króna,“ segir í tilkynningunni. Frá einkavæðingu hefur BTC tekið miklum breytingum og vaxið samhliða gagngerum end- urbótum á tæknibúnaði og marg- þættum skipulagsbreytingum. Þannig segir í tilkynningu Novat- or að starfsmönnum hafi verið fækkað úr um 24 þúsundum í 10 þúsund í samráði við stjórnvöld og verkalýðsfélög. Þá hafi verið fjárfest í nýjum tækjabúnaði fyrir nærri 40 milljarða króna og rekstur farsímaþjónustu hafinn. BTC býður nú alhliða fjarskipta- þjónustu og má til marks um vöxt félagsins nefna tæplega 17 pró- senta aukningu hagnaðar eftir skatta og afskriftir milli áranna 2006 og 2005, úr rúmlega 113 milljónum búlgarskra leva í 132 milljónir leva, eða úr sem nemur 5,03 milljörðum króna í 5,9 millj- arða króna. Kaupandi BTC, bandaríska félagið AIG, býður alhliða fjár- málaþjónustu um heim allan, þar á meðal í tryggingum, fjárfest- ingum, eignastýringu og fasteign- um. Fyrirtækið stýrir nærri 55 þús- und milljörðum króna og hefur um 2.000 starfsmenn sem starfa á 44 skrifstofum víða um heim. BTC í Búlgaríu selt á 160 milljarða króna Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hagnast um 60 milljarða króna við söluna á BTC til bandarísks fjármálafyrirtækis. Hlutur annarra íslenskra fjárfesta er nálægt 6 milljörðum. Ávöxtun fjárfestanna er nálægt því fimmföld. Hlutverk Ísafjarðar- flugvallar í Grænlandsflugi mun stórminnka að ef ekki verður komið upp búnaði til vopnaleitar og annarra tækja sem nauðsynleg- ar eru fyrir millilandaflug. Þetta kemur fram á vestfirska fréttavefnum bb.is. Völlurinn hefur um árabil verið burðarás í þjónustu Flugfélags Íslands við fyrirtæki á A-Grænlandi en útlit er fyrir að það geti lagst af ef ekkert verður að gert. Að sögn Friðriks Adolfssonar, deildarstjóra flugfélagsins, hefur fengist leyfi til að millilenda á Ísafirði til að fylla vélarnar eldsneyti, með þeim skilyrðum að farþegar yfirgefi ekki vélarnar og að lögreglan hafi eftirlit á vellinum. Vopnaleitar- búnað vantar Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.