Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 8
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ÁRANGUR Á ÖLLUM SVIÐUM
Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag (ICC)
hefur gefið út handtökutilskipun á hendur ráðherra
í Súdanstjórn og eins af forsprökkum svonefndra
janjaweed-sveita á grundvelli gruns um að þeir beri
ábyrgð á stríðsglæpum í Darfúr-héraði. Frá þessu
greindi dómstóllinn í gær.
Súdanstjórn svaraði því til að hún hefði alls ekki í
hyggju að framselja sakborningana og tilkynnti að í
ljósi þessara handtökutilskipana væri það takmark-
aða samstarf sem stjórnin hefði átt við dómstólinn
úr sögunni. Mjög ólíklegt virtist að sakborningarnir
myndu gefa sig fram af sjálfsdáðum.
„Okkar afstaða er mjög skýr – ICC getur ekki
tekið sér lögsögu til að dæma súdanska borgara utan
Súdans,“ sagði Mohamed Ali al-Mardi, dómsmála-
ráðherra Súdans. En Luis Moreno-Ocampo, saksókn-
ari við dómstólinn, sagði að handtökutilskipanirnar
væru mikilvægt skref í átt að því að koma einhverju
af þeim voðaverkum sem unnin hafa verið í Darfúr
fyrir alþjóðlegan dómstól.
Sem það ríki sem yfir svæðinu ræður ber ríkis-
stjórn Súdans lagaleg skylda til að handtaka Ahmad
Harun og Ali Kushayb,“ sagði Moreno-Ocampo.
Súdanstjórn hafnar afskiptum
Farþegar sem áttu að
fljúga með flugvél Iceland Express
til London klukkan 7.15 í gærmorg-
un, þurftu að bíða tímunum saman
eftir flugi á flugvellinum meðan
beðið var eftir varahlut í vélina frá
London. Farþegarnir fóru loks í
loftið um fjögurleytið í gær eftir að
Iceland Express hafði keypt flug-
miða fyrir þá með Icelandair.
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express, segir að félagið hafi
sent út tilkynningu um seinkunina
með sms í gærmorgun til þeirra
farþega sem hafi skráð farsíma við
bókun og sett upplýsingar um
seinkunina á netið. Þetta hafi gefið
góða raun því aðeins um þrjátíu
prósent farþeganna hafi mætt á
flugvöllinn og sumir þeirra snúið
strax til baka.
„Ég hef ekki orðið var við
óánægju. Við höfum frekar fengið
jákvæð viðbrögð á það hvað við
reyndum þó að gera,“ segir hann.
Matthías segir að seinni partinn
hafi verið ákveðið að kaupa flug
fyrir alla farþegana hundrað til
London með Icelandair. „Það tók
tíma að koma varahlutnum til
landsins og svo tekur það flugvirkj-
ana tíma að gera við. Við tókum þá
ákvörðun að kaupa miða fyrir alla
farþegana og taka á okkur þann
kostnað í stað þess að vera að draga
þetta lengur,“ segir hann.
Keypti miða með Icelandair