Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 16

Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 16
 Erindrekar Evrópusambandsins þrýstu á rússnesk stjórnvöld í gær að sjá til þess að eistneska sendiráðið í Moskvu nyti tilhlýðilegrar vernd- ar, en fjöldi ungra Rússa hefur setið um það síðustu daga og gert aðsúg að starfsmönnum þess, þar á meðal sendiherranum Marinu Kaljurand. Umsátursliðið er reitt þeirri ákvörðun eistneskra stjórnvalda að láta flytja minnismerki um sigur Rauða hersins í síðari heims- styrjöld frá torgi í miðborg Tall- inn inn í kirkjugarð í borginni. Er hafist var handa við að flytja stytt- una á föstudaginn kom til átaka milli lögreglu og ungmenna af rússneskumælandi minnihlutan- um í Eistlandi. „Við mælumst eindregið til þess að rússnesk stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Vínarsáttmálanum um diplómatísk samskipti,“ sagði Christiane Hoh- mann, talsmaður framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins. Hún sagði að nefnd sendiherra ESB- ríkja vildi sem fyrst eiga fund í rússneska utanríkisráðuneytinu til að koma þessum skilaboðum á framfæri. Kaljurand sendiherra hafði áður greint frá því að rússnesk ung- menni, sem fylgja núverandi vald- höfum í Kreml að málum, hefðu reynt að ráðast á sig er hún reyndi að halda blaðamannafund í Moskvu. Hún sagði einnig að tölvuþrjótar sem meðal annars notuðu tölvur skráðar af rúss- nesku ríkisstjórninni hefðu brot- ist inn á opinberar heimasíður Eistlandsstjórnar. Minnismerkið umdeilda, „Bronshermanninn“, álíta Eistar almennt tákn um sovéskt hernám og ofríki Moskvuvaldsins í hálfa öld í landi þeirra. Sendiráð Eista njóti verndar Erindrekar Evrópusambandsins þrýsta á rússnesk yfir- völd að vernda betur eistneska sendiráðið í Moskvu, sem reiðir ungir Rússar sitja um vegna minnismerkis. Orðsending fram- kvæmdasviðs Reykjavíkur til íbúa á svæði 105 var fyrst og fremst hugsuð fólki til viðvörunar og má vel vera að hana hefði mátt orða betur, að sögn Hrólfs Jóhann- essonar sviðsstjóra. „Ef veggurinn er innan lóðar- marka getum við ekkert komið og mokað og skemmt vegginn og rukkað þig, það er ekki þannig. Hins vegar eru veggir víða gamlir og hanga út fyrir gangstéttina. Verði hreyft við stéttinni geta þeir fallið út. Þá er fyrst haft sam- band við eigendur, þeir heimsóttir og allt myndað. Fullt samráð er haft áður en verkið hefst,“ segir Hrólfur, sem kveður þetta koma örsjaldan upp á. Hrólfur telur að orðsendinguna vegna þessa mætti ef til vill endurskoða, en í henni segir; „þegar að gangstétt borgar- innar er mokað upp við lóð [hús- eigenda] getur veggur [...] sem nær út á gangstétt borgarinnar riðlast eða skemmst. Verkkostn- aður af þessum völdum fellur á húseiganda.“ Einnig er minnst á „veruleg vatnstjón“ í orðsendingunni. Hrólfur segir að vatnsskemmdir, sem komi af því að fólk gleymi að skrúfa fyrir kranana, verði að vera á ábyrgð íbúa. Orkuveitan eigi lagnirnar og viðskiptavinir hennar þurfi að leyfa henni að endurnýja þær. Orðsendingu mætti breyta Fjórir Pakistan-ar hálshöggnir Yfirvöld í Sádi- Arabíu létu í gær hálshöggva fjóra Pakistana, sem dæmdir höfðu verið fyrir að berja mann til dauða þar sem hann svaf í rekkju sinni, nauðga og misþyrma eiginkonu hans og ræna fé og skartgripum hjónanna. Frá þessu greindi sádi- arabíska innanríkisráðuneytið. Í Sádi-Arabíu á fólk líflát yfir höfði sér sem dæmt er fyrir morð, eiturlyfjasmygl, nauðgun eða vopnuð rán. Aftökurnar fara fram fyrir opnum tjöldum. Hinir dæmdu eru hálshöggnir með sverði. 51 maður hefur verið hálshöggvinn í landinu það sem af er þessu ári.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.