Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 22
Suðurkjördæmi er hið gamla Suðurlandskjör-
dæmi að viðbættum Hornafirði sem áður til-
heyrði Austurlandskjördæmi og Suðurnesj-
um sem áður voru í Reykjaneskjördæmi.
Innan þess eru því ólíkar byggðir og þarf-
ir á uppbyggingu atvinnu og þjónustu renn-
ur ekki alfarið í sama farvegi. Efstu menn
flokkanna sem bjóða fram á landsvísu fyrir
alþingiskosningarnar eru sammála um flest
það sem brýnast er að framkvæma á næstu
árum en áherslur eru þó að nokkru leyti ólík-
ar. Samgöngumál nefna allir frambjóðendur
sem brýnt framtíðarverkefni en atvinnumál,
velferðarmál og umhverfismál eru fram-
bjóðendum jafnframt ofarlega í huga.
Umtalaðasta samgöngubót innan Suður-
kjördæmis eru jarðgöng til Vestmannaeyja
eða uppbygging hafnaraðstöðu fyrir ferju í
Bakkafjöru. Mikið er undir, því bættar sam-
göngur munu hleypa nýju lífi í margs konar
starfsemi í Eyjum en gæfi einnig Suðurlandi
í heild margvíslega möguleika.
Guðni Ágústsson, Framsóknarflokki, segir
nauðsynlegt að ný ferja verði keypt strax á
þessu ári og ljúka þurfi rannsóknum á jarð-
göngum og Bakkafjöruhöfn á stuttum tíma.
Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu, segir
samgöngur við Eyjar eitt stærsta kosninga-
málið í kjördæminu og flokkurinn hafi barist
fyrir því lengi að sett verði nægt fé í rann-
sóknir. Hann segir Samfylkinguna ekki hafa
útilokað jarðgöng sem að hans mati væri lang-
besti kosturinn ef það reynist gerlegt. Óháð
rannsóknum vill Björgvin nýja ferju án tafar.
Grétar Mar Jónsson, Frjálslyndum, leggst al-
farið gegn hafnarframkvæmdum í Bakka-
fjöru. Hann vill nýja ferju á meðan metið er
hvort það sé mögulegt fjárhagslega og tækni-
lega að gera göng. Árni M. Mathiesen, Sjálf-
stæðisflokki, segir samgöngur við Eyjar sér-
stakt verkefni. Þar sé verið að leggja síðustu
hönd á að meta hvort einstakar framkvæmd-
ir eru raunhæfar og von sé á stórum ákvörð-
unum varðandi framtíðarsamgöngur. Hvort
aðstæður við Bakkafjöru séu erfiðar til sigl-
inga vill hann að sérfræðingar meti auk þess
hvort eldvirkni útiloki jarðgöng. Atli Gísla-
son, vinstri-grænum, vill nýja ferju strax
og aukaferð verði komið á með fisk og aðra
þungaflutninga. Hann vill frekari rannsókn-
ir á jarðgöngum sem hann trúir að sé hag-
kvæmasti kosturinn, en segist hafa veruleg-
ar efasemdir um höfn í Bakkafjöru. Ásta Þor-
leifsdóttir, Íslandshreyfingu, vill ekki útiloka
neina kosti í samgöngumálum fyrr en rann-
sóknir hafa farið fram og hægt sé að taka
upplýstar ákvarðanir. Það á jafnt við um göng
til Eyja sem aðrar samgöngubætur í kjör-
dæminu.
Samgönguverkefni innan kjördæmisins eru
margs konar eftir því hvert er litið. Tvöföld-
un Reykjanesbrautarinnar á Suðurnesjun-
um, tenging Suðurnesja og Suðurlands um
Suðurstrandarveg og tenging við höfuðborg-
arsvæðið um Suðurlandsveg. Þetta eru þau
verkefni sem efstu menn listanna nefna sem
mikilvægust auk tengivega í sveitum. Brú
yfir Hornafjarðarfljót er mikilvægt verkefni
til að styrkja jaðarsvæði kjördæmisins.
Þegar horft er til atvinnumála í Suðurkjör-
dæmi ber ýmislegt á góma. Þar hefur Grét-
ar Mar sérstöðu í áherslum sínum á sjávar-
útveg. Fyrir honum eru atvinnumálin brýn-
asta málið í kjördæminu því að ef ekki tekst
vel með atvinnuuppbyggingu í kjördæminu
þá sitji allt annað á hakanum. „Við höfum
tækifæri til að auka tekjur í sjávarútvegi, til
dæmis með því að setja allan fisk á mark-
að og auka veiðar með því að koma í veg
fyrir brottkast. Við getum nýtt fiskistofnana
betur en við erum að gera núna, fyrir því
liggja vísindalegar sannanir,“ segir Grétar.
Hann útilokar ekki áltækniiðngarð í Þor-
lákshöfn og vill nýta orkuna sem er í kjör-
dæminu. Guðni Ágústsson telur að stóriðju-
mál séu ekki stærsta eða brýnasta verkefn-
ið sem er við að fást í Suðurkjördæmi. „Eitt
brýnasta verkefni kjördæmisins er háskóla-
menntun og ég bind miklar vonir um að eitt-
hvað stórt muni gerast varðandi alþjóðlegan
háskóla tengt varnarliðssvæðinu. Hér fyrir
austan fjall tel ég afar brýnt að fá háskóla
sem myndi þýða gríðarlega uppsveiflu og
öryggi til framtíðar.“ Hann leggur áherslu á
tækifæri sveitanna til að vaxa.
Björgvin G. Sigurðsson vill berjast fyrir
uppbyggingu á staðbundnu háskólanámi í
kjördæminu og telur menntamál lykilatriði.
„Það þarf ekki að vera nýr háskóli, hann getur
verið undir merkjum Háskóla Íslands. Þetta
er það brýnasta í atvinnumálunum, það er
að byggja upp menntastofnanir, nýja fram-
haldsskóla í Grindavík og Rangárvallasýslu
sem hvíla á sérkennum svæðanna; sjávarút-
vegi, landbúnaði og landgræðslu.“ Árni M.
Mathiesen leggur áherslu á að styrkja land-
búnað, sjávarútveg og ferðaþjónustu en vill
einnig auka fjölbreytnina „því þess sterkari
eru byggðarlögin að fjölbreytnin sé meiri“,
segir Árni. Hann vill því styrkja menntamál-
in í kjördæminu með því að byggja undir það
sem fyrir er. „Hugmyndir eru uppi um tvo
nýja framhaldsskóla í Rangárþingi og á Suð-
urnesjunum og við viljum jafnframt styðja
háskólastarfið í kjördæminu. Ásta Þorleifs-
dóttir vill byggja upp háskóla til að tryggja
atvinnu. „Það er kominn vísir að honum með
umhverfisháskóla á varnarliðssvæðinu sem
sérhæfir sig í orku- og auðlindafræðum. Ég
vil líka fiskvinnsluháskóla og frumkvölaset-
ur með líftækniívafi í Grindavík.“ Atli Gísla-
son vill átak í atvinnumálum en leggja höfuð-
áherslu á mismunandi laun karla og kvenna.
„Hvað varðar kvenréttindi þá eru mannrétt-
indi brotin gegn konum. Mismunandi laun
karla og kvenna fyrir sömu störf eru brot á
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.“
Af öðrum verkefnum tiltaka efstu menn
ýmisleg verkefni sem þeim finnst að ráð-
ast þurfi í. Björgvin G. Sigurðsson segir
öldrunarmálin gríðarlega aðkallandi og vill
átak. Atli Gíslason tiltekur umhverfismál-
in sem forgangsmál. Guðni Ágústsson vill
tryggja að nærþjónusta við aldraða í hér-
aði sé trygg og Árni M. Mathiesen segir að
opinber þjónusta sé mjög mikilvæg í sínum
huga, sama hvort um þjónustu ríkisins eða
sveitarfélaganna sé að ræða. Grétar Mar
Jónsson vill að betur sé gert í heilbrigðis-
málum innan kjördæmisins, sérstaklega
hvað varðar aðbúnað aldraðra og öryrkja.
Ásta Þorleifsdóttir segir umhverfismál
skipta sig meginmáli.
Efstu menn eru sammála um að jaðar-
svæði og sveitir kjördæmisins þurfi að hafa
sérstaklega í huga. Öll segja þau koma til
greina að staðsetja þyrlu á Suðausturlandi til
að bæta búsetuöryggi og fylgja eftir mögu-
leikum sem felast í nýjum Vatnajökuls-
þjóðgarði sem er einn mesti vaxtarbroddur
kjördæmisins.
Menntir fela vaxtarmöguleika
Frambjóðendur allra flokka í Suðurkjördæmi eru sammála um brýnustu verkefni kjördæmisins á næstu árum. Áherslur eru þó
ólíkar. Samgöngumál eru þeim efst í huga ásamt atvinnu-, velferðar- og umhverfismálum. Svavar Hávarðsson innti efstu menn á
listum flokkanna sem bjóða fram fyrir alþingiskosningarnar eftir því hvaða verkefni væru mest aðkallandi í kjördæminu.