Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 26
[Hlutabréf]
Hluthafar í VBS fjárfestingar-
banka og FSP samþykktu samruna
félaganna á hluthafafundum í byrj-
un vikunnar. Samruninn er háður
samþykki FME. Félögin samein-
ast undir merkjum VBS og verð-
ur eigið fé hins nýja banka um 6,1
milljarður króna. Bankinn er met-
inn á tíu milljarða króna miðað við
viðskipti með bréf hans.
Hagnaður hins sameinaða félags
nam 550 milljónum króna á fyrsta
ársfjórðungi. Hreinar rekstrar-
tekjur námu yfir 700 milljónum og
vógu tekjur af eignarhlutum þar
langþyngst, eða um 410 milljónum.
Jón Þórisson fer fyrir þrjá-
tíu manna starfsliði, en Kjartan
Broddi Bragason, sem stýrði FSP,
heldur til annarra starfa. Stjórnar-
formaður hins nýja banka er Gísli
Kjartansson.
VBS og FSP renna saman
Bankinn skilaði 550 milljóna hagnaði á 1. ársfjórðungi.
Peningaskápurinn ...
FL Group og Jötunn
Holding, sem samtals
eiga 38,82 prósenta hlut í
Glitni, mynduðu á mánu-
daginn með sér hluthafa-
samkomulag sem fól í sér
samstarf um kjör stjórnar
á hluthafafundum bank-
ans án þess að hafa sótt
um heimild til Fjármála-
eftirlitsins (FME) fyrir
auknum virkum eignar-
hlut í Glitni. FL Group
hafði eitt og sér heimild FME til að
fara með allt að 33 prósenta virkan
hlut í Glitni.
Samkomulagið byggðist á þeim
sjónarmiðum sem sett voru fram
í bréfi FME, hinn 25. apríl, að það
hefði til skoðunar hvort nýr virkur
eignarhluti hefði stofnast í Glitni,
mögulega milli FL Group og Jöt-
uns. Það var gert til að eyða óvissu
og upplýsa alla um stöðu mála.
Samkvæmt samkomulaginu er
félögunum heimilt að auka eða
minnka við hlut sinn í Glitni, þó
þannig að samanlagður eignarhlut-
ur fari ekki upp fyrir 39,9 prósent.
Fram kom að FL og Jötunn myndu
sækja um þessa viðbótarheim-
ild til FME, en á meðan eftirlitið
hefði málið til skoðunar væri geng-
ið að því vísu að Jötunn, sem á 6,85
prósent í Glitni, hefði ekki
atkvæðisrétt.
Fyrir hluthafafund Glitn-
is mánudaginn 30. apríl var
birt tilkynning frá FME um
takmörkun sameiginlegs
atkvæðisréttar FL Group,
Elliðatindur ehf., Jötuns
Holding ehf. og Sunds ehf.
við 32,99 prósent. Sameig-
inlega eiga þessir aðilar er
um 44,99 prósent hlutafjár
í Glitni.
FME telur að þessir aðilar séu í
samstarfi um meðferð virks eignar-
hlutar í Glitni. „Við töldum ástæðu
til þess að taka þessi viðskipti til
skoðunar og okkar niðurstaða er sú
að þau tengsl væru á milli þeirra
félaga sem um ræðir, þ.e.a.s. Jöt-
unn Holding, Elliðatindur, Sund
Holding og FL Group, færu saman
með virkan eignarhlut og væru þar
með komin yfir þau 33 prósent sem
FL Group hafði heimild til þess að
fara með,“ segir Jónas Fr. Jónsson,
forstjóri FME.
Forsvarsmenn FL Group eru
ósammála niðurstöðu FME að fé-
lagið sé í samstarfi við Jötun Hold-
ing, Elliðatinda og Sund en eiga
eftir að leggja á hana endanlagt
mat við nánari skoðun. „Við erum
enn að kynna okkur úrskurðinn,“
segir Kristján Kristjánsson, for-
stöðumaður upplýsingasviðs FL
Group.
Boltinn er hjá FL Group og er
þrennt sennilegast í stöðunni: Í
fyrsta lagi að FL Group og tengd-
ir aðilar, að mati FME, sæki um
heimild fyrir auknum virkum eign-
arhlut. Þá verður ekki annað séð
en að yfirtökuskylda hafi mynd-
ast í Glitni. Í öðru lagi að umrædd
félög losi um hlutabréf sín í Glitni
til ótengdra aðila til að vera undir
fjörutíu prósentum. Og í þriðja lagi
geta félögin höfðað dómsmál til að
hnekkja niðurstöðu FME. Það ferli
getur verið langt og tímafrekt.
„Það er hlutverk FME að hafa
eftirlit með virkum eignarhlutum
í fjármálafyrirtækjum og fylgjast
með hæfi þeirra aðila sem með slík-
an eignarhlut fara. Erlendir aðilar
hafa gagnrýnt þröngt eignarhald
og hafa til viðbótar haldið því fram
að mikil tengsl séu á milli ýmissa
aðila í íslensku viðskiptalífi. Það er
því mikilvægt að eignarhaldið sé
skýrt,“ segir forstjóri FME.
30. apríl sendi yfirtökunefnd
FME bréf þar sem nefndin vildi
vekja athygli á hugsanlegri yfir-
tökuskyldu vegna eigendaskipta að
19,46 prósenta hlut í Glitni þann 5.
apríl.
Með ákvörðun FME um takmörkun atkvæðisréttar FL Group og tengdra aðila í
Glitni er verið að skora á þá að sækja um heimild fyrir auknum virkum eignar-
hlut. Um 45% hlutafjár eru í höndum FL og tengdra aðila. FL er ósammála FME.
Bjarni Ármannsson hagnaðist um
564 milljónir króna þegar Glitnir
keypti eigin hlutabréf af félögun-
um Landsýn og Sjávarsýn, sem eru
í eigu Bjarna, sama dag og hann
lét af störfum sem forstjóri Glitn-
is. Kaupverðið nam um 6.813 millj-
ónum króna sem var níu prósenta
yfirverð þar sem gengið í viðskipt-
unum var 29 krónur á hlut á sama
tíma og gengi Glitnis var 26,6 við
lokun markaða á mánudaginn.
Bjarni á eftir viðskiptin eignar-
hlut sem er rúmlega fjórtán millj-
óna króna virði miðað við síðasta
viðskiptagengi.
Lárus Welding, nýráðinn for-
stjóri Glitnis, fékk í gær kauprétt
að 150 milljónum hluta í bankanum
á genginu 26,6 krónur hlut. Kaup-
verðið gæti því orðið alls tæpir
fjórir milljarðar króna en fimmt-
ungur af kaupréttinum ávinnist á
hverju ári.
Bjarni hagnaðist
um 564 milljónir
Lárus Welding fékk fjögurra milljarða króna kauprétt.
Fimm punkta hækkun á skulda-
tryggingarálag (CDS) á fimm ára
skuldabréf Glitnis í kjölfar for-
stjóraskipta gekk til baka að hluta í
gær. Í lok dags stóð hækkunin eftir
breytingar í tveimur punktum.
Þrítugasta apríl
var álagið milli 24
og 25 punktar, en ná-
lægt 30 punktum
við opnun markaða í
gær. „Í lok dags var
álagið svo komið í 27
punkta,“ segir Ingv-
ar H. Ragnarsson,
forstöðumaður al-
þjóðlegrar fjármögnunar bankans.
Á sama tíma hefur skuldatrygging-
arálag á bréf hinna bankanna svo
gott sem staðið í stað. Kaupþing er
nálægt 30 punktum og í gær hafði
álag á bréf Landsbankans hækkað í
24, um tvo punkta.
Ingvar segir viðtökur hafa verið
góðar hjá greiningaraðilum en for-
svarsmenn bankans, nýr forstjóri
og fráfarandi, ásamt stjórnar-
formanni kynntu breytingarnar í
Lundúnum í fyrradag og á Norður-
löndum í gær. Áréttað var á fund-
unum að ekki væri stefnubreyting-
ar að vænta hjá bankanum. „Þá er
jákvætt að Moody‘s staðfesti láns-
hæfismat sitt í gær, eins og búist
var við,“ bætir Ingvar við.
Álag eykst á
Glitnisbréf
Vinnuréttardagur Háskólans á Bifröst
Föstudaginn 4. maí
Dagskrá
Kl. 13.00 Setning vinnuréttardagsins, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst
Kl. 13.05 Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ
Alþjóðlegur vinnuréttur - nýir Evrópusamningar og nýjar samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
Kl. 13.25 Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins
Lögfræðileg álitaefni varðandi frumvarp endurskoðunarnefndar jafnréttislaga
Kl. 13.45 Elín Blöndal, dósent við Háskólann á Bifröst
Vottun á jafnlaunastefnu
Kl. 14.05 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 14.20 Kaffihlé
Kl. 14.40 Ástráður Haraldsson, dósent við Háskólann á Bifröst
Nýjar takmarkanir á rétti atvinnurekenda til að ráða og reka?
Kl. 15.00 Bergþóra Ingólfsdóttir, hdl., Mandat lögmannsstofu
Ábyrgð notendafyrirtækja á launum leigðra og útsendra starfsmanna
Kl. 15.20 Lára V. Júlíusdóttir, lektor við Háskóla Íslands
Réttur atvinnurekanda til skaðabóta við brotthlaup starfsmanns úr starfi—heimild til hýrudráttar og fleiri leiðir
Kl. 15.40 Umræður og fyrirspurnir
Kl. 16.00 Vinnuréttardegi lokið
Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála stendur að vinnuréttardeginum í samstarfi
við Vinnuréttarfélag Íslands og lagadeild Háskólans á Bifröst
Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst
Upplýsingar og skráning: bifrost@bifrost.is
Þátttökugjald er 4.000 kr.
Vinnuréttardagurinn