Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 34

Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 34
Nú er tilvalið að undirbúa garðinn fyrir gróðursetningu trjáa en geyma klippingar. „Það er talsvert hringt í okkur um þessar mundir vegna þess að mörg grenitré eru rauðleit eftir veturinn,“ segir Jón Geir Pét- ursson, skógfræðingur hjá Skóg- ræktarfélagi Íslands. „Ástæð- an er að hluta til vegna sitka- lúsa, meindýra, sem herjuðu á trén í fyrra. Vondum saltveðrum og öðrum veðurþáttum á Vestur- landinu er líka um að kenna.“ Jón segir þó enga ástæðu til að hafa áhyggjur af trjánum, jafn- vel þótt þau séu búin að glata öllu barrinu, þar sem þau muni jafna sig í tímans rás. „Trén munu end- urheimta sinn græna lit þegar þau springa út. Þetta verður komið í samt lag innan nokkurra ára. Ég ráðlegg því fólki að grípa ekki til klippunnar enda klippingatíminn liðinn í bili. Hann stendur yfir hásumartímann og seinni hluta vetrar.“ Þótt nú sé ekki heppilegur tími til klippinga segir Jón góðan tíma fram undan til að gróðursetja tré, þar sem jörðin er að þiðna og plönturnar ekki byrjaðar að vaxa. „Sá tími er ekki alveg kominn en fólk má engu að síður fara að undirbúa gróðursetningu. Standi til dæmis til að gróðursetja stórt tré má grafa holu fyrir það og setja lífrænan áburð í hana. Svo má gróðursetja tréð um miðjan maí. Síðan er gott að bera tilbú- inn áburð á það. Til að hann hafi tilætluð áhrif verður tréð að vera útsprungið og byrjað að vaxa. Annars er hætta á að áburðurinn skolist bara burtu í næstu rign- ingu.“ Jón segir enn fremur mikilvægt að nota rétt áhöld þegar kemur að því að klippa í sumar. „Best er að nota beitta sög þegar grein er söguð af, en betra að klippa minni greinar með hvössum klippum. Miklu máli skiptir að áhöldin rífi ekki eða særi heldur skilji eftir hrein og snyrtileg sár. Tréð sér síðan um að loka sár- inu með kvoðu eða safa á réttu árstímunum. Safastreymi er hins vegar minna á haustin og því hætt við að sárið lokist ekki. Þá getur óværa komist í sárið og inn í vef trésins. Þess vegna er betra að klippa á sumrin.“ Gróðursetning undirbúin Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík Svífðu inn í drauma- landið í rúmfatnaði frá Fatabúðinni

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.