Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 03.05.2007, Qupperneq 48
Nú í aðdraganda kosn- inganna varð mér hugs- að til Frankfurts próf- essors sem samdi grein um kjaftæði fyrir nokkr- um árum og kallaði hana „On Bullshit“. Þessi grein kom síðar út á bók og nýtur hún nokkuð almennra vinsælda. Í ritgerð sinni setur Frankfurt fram kenningu um kjaftæði, skilgreinir hugtakið og virkni þess, ekki síst út frá hugmyndinni um lygi. Kenning Frankfurts um að kjaftæði sé skað- legra en lygin finnst mér afar áhuga- verð í fyrrgreindu samhengi. Hann heldur því fram að á meðan lygar- ar fara vitandi með fleipur og fals hafi froðusnakkar og kjaftaskar ein- faldlega ekki áhuga á sannleikanum. Markmið þeirra sé fyrst og fremst að heilla aðra og þeir þurfi, ólíkt lygur- unum, ekki að „vita“ sannleikann til að ana af stað með sitt slúður og hjal. Því telur Frankfurt að kjaftæði sé skaðlegra sannleikanum en lygin. Afstæði sannleikans er vitanlega botnlaust, ekki síst í pólitíkinni, en mér finnst þetta vel athugað hjá próf- essornum. Nú þegar stjórnmálamenn keppast við að skrafa við kjósend- ur og fjölmiðla um hvernig allt muni fara ef þeir komist bara á þing þá fer kjaftæðisskynjarinn minn í gang. Ekki svo að segja að mér finnist þeir allir vera eintómir froðusnakkar og blöðruselir en það er nokkuð grunnt á því þessa dagana. Í skrifum Frankfurts er kjaftæðið ekki tengt illum ásetningi þess sem ætlar að blekkja aðra, þvert á móti getur viðkomandi meinað vel með raupi sínu, og það er ég viss um að allir frambjóðendurnir gera. Kosn- ingaloforð eru afar fallegar hug- myndir í hentugum búningi sem hægt er að kasta fram í krafti þess að þegar á hólminn er komið vita flest- ir að efndirnar verða litlar. Og ef það verða einhverjar efndir þá er ekki einsýnt að fólk verði sammála um hvort þær séu til góðs eða ills. Stundum væri ósköp gott ef til væri sía sem hægt væri að beita á stjórn- málamenn og annað fólk sem hefur hag af því að móta skoðanir annarra. Kannski myndi pólitískt argaþras minnka eða verða markvissara eða myndi þá kannski ekki heyrast neitt í þeim? SENDU SMS JA FSP Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR Á SPID ERMAN, SPIDERMAN TÖLVULEIKIR, TÓNLIS T ÚR SPIDERMAN, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA SMS LEIKUR SJÁÐU MYND INA! SPILAÐU LEI KINN!J I ! IL L I I ! V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b . 9 9 kr /s ke yt ið . Bannað! Er orð sem við þekkjum ekki Zúúber – morgunþáttur alla virka morgna frá kl. 7.00–10.00. Upptökur úr þættinum er að finna á FM957.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.