Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 55

Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 55
Leikkonan Keira Knightley íhug- ar alvarlega að hætta kvikmynda- leik en leikkonan segir að kast- ljós fjölmiðlanna sé orðið alltof mikið. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Elle. Knightley er ein stærsta kvik- myndastjarna heims um þessar mundir og verður því fyrir mikl- um ágangi af hendi svokallaðra paparazzi-ljósmyndara sem sitja fyrir henni í hverju horni. Mynd- birting af leikkonunni á vefsíðu hjá baráttusamtökum gegn átröskun er þó talin hafa verið kornið sem fyllti mælinn en Knightley hefur ávallt neitað því að mæla megrun bót heldur segist alltaf hafa verið grönn frá náttúrunnar hendi. Í gær var síðan greint frá því að hinn virti konunglegi Shake- speare-leikhópur í London hefði lýst yfir miklum áhuga á að fá Knightley til liðs við sig. Leikkon- an sagðist vera í skýjunum yfir þessum áhuga og fannst það mikil viðurkenning að jafnmikið fagfólk og þarna störfuðu skyldu hafa trú á sér í verkefnið. Þannig að allt stefnir í að Keira Knightley muni ljúka ferlinum á hvíta tjaldinu. Knightley býðst hlutverk í leikhúsi Sena hefur tekið við rekstri Há- skólabíós af Sambíóunum og hyggst gera kvikmyndahúsið að heimavelli íslenskrar kvikmynda- gerðar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að bjóða upp á „tveir fyrir einn“-tilboð á spennumynd- irnar Köld slóð og Mýrina. Mynd- irnar tvær nutu mikilla vinsælda þegar þær voru sýndar en Mýrin er ein aðsóknarmesta íslenska kvikmyndin í sögunni, alls sáu hana 85 þúsund manns. Að sögn Guðmundar Breiðfjörð hjá Senu var ákveðið að taka þessar tvær myndir til sýningar vegna fjölda áskorana. Háskólabíó verði heimavöllur Íslands Stórsmellurinn 300 og sjóræn- ingjarnir á Karíbahafinu berjast um hylli áhorfenda á MTV-kvikmynda- verðlaununum sem afhent verða í Los Angeles. Báðar eru tilnefnd- ar sem besta myndin og keppa þar við Little Miss Sunshine, Blades of Glory og Borat. Tilkynnt hefur verið að Sarah Silverman muni kynna há- tíðina, sem verður sýnd í beinni út- sendingu í fyrsta sinn. MTV-hátíðin sker sig nokkuð úr öðrum uppskeruhátíðum enda eru verðlaunaflokkarnir þar nokk- uð fjölbreyttari en flestir eiga að venjast. Nægir þar að nefna að verðlaunað er fyrir besta kossinn, besta bardagaatriðið og mesta ill- mennið en þar berjast gömlu brýn- in Jack Nicholson og Meryl Streep um sigurinn. Johnny Depp og Keira Knightley eru bæði tilnefnd sem bestu leikararnir fyrir frammi- stöðu sína í sjóræningjamynd- inni Pirates of the Caribbean. Þau munu berjast þar við Gerard But- ler úr 300, Will Smith í Pursuit of Happyness og Draumastúlkurn- ar Beyoncé Knowles og Jenni- fer Hudson. Sasha Baron Cohen verður einnig áberandi en hann er meðal annars tilnefndur sem besti gamanleikarinn fyrir Borat og etur þar kappi við Ben Still- er, Will Ferrell, Adam Sandler og Emily Blunt. Sjóræningjar og Spartverjar einoka MTV-hátíðina John Cusack er fyrsti leikarinn sem skrifar undir samning um að leika í kvikmyndinni Stoppin Power en henni er leikstýrt af Jan De Bont. Íslendingar eiga sinn hlut í myndinni en tökumaður myndar- innar verður Óttar Guðnason. Cus- ack mun leika þotuflugmann sem heldur í frí til Berlínar en hlutirn- ir fara á versta veg þegar fangi á flótta rænir húsbíl hans með dótt- ur þotuflugmannsins innanborðs. Í kjölfarið upphefst mikill elting- arleikur þar sem Cusack reynir að hafa hendur í hári mannsins. Jan De Bont þarf sárlega á góðri mynd að halda því eftir að Speed gerði allt brjálað í kvikmyndahús- um borgarinnar fyrir rúmum ára- tug hefur hann litlu áorkað. Og Cusack gæti aðstoðað hollenska leikstjórann til þess en hann hefur leikið í metsölumyndum á borð við Con Air, High Fidelity og Bullets over Broadway. Cusack til liðs við Óttar og De Bont

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.