Fréttablaðið - 03.05.2007, Side 58
Jón Sæmundur Auðarson
hefur selt tískuverslunina
Liborius. Kaupendur eru
þeir Svanur Kristbergsson,
Jóhann Meunier og Þor-
steinn Stephensen. Jóhann
verður verslunarstjóri
Liborius og hann boðar
breyttar áherslur.
„Ég ætla að snúa mér að öðru.
Það var of mikið fyrir mig einan
að vera með þessa búð enda er ég
náttúrlega myndlistarmaður fyrst
og fremst,“ segir Jón Sæmund-
ur Auðarson sem hefur selt tísku-
verslunina Liborius. Jón hefur þó
ekki alfarið sagt skilið við búðina
því hann verður áfram viðloðandi
innkaup og stíliseringar. Hann
er ánægður með þessa þróun
mála. „Já, ég hef nóg að gera
með mitt merki og að auki
er ég að vinna fyrir Jak-
obínurínu.“
Jóhann Meunier
tekur við sem versl-
unarstjóri í Liborius.
Hann telur að reynsla
sín nýtist vel í búðinni.
„Ég var lengi vel í París
og þar kynntist ég hönnun ýmissa
tískuhönnuða frá hinum og þessum
löndum,“ segir Jóhann sem starf-
aði meðal annars í Collette sem er
risastór búð sem þykir endurspegla
allt það besta í tísku og hönnun.
Jóhann kaupir Liborius með
þeim Svani Kristbergssyni og Þor-
steini Stephensen í Hr. Örlygi.
Þeir keyptu einmitt Kaffibarinn
ekki alls fyrir löngu. „Það er mjög
ánægjulegt að vera með þessu
sterka og trausta liði. Svo verða
þau viðloðandi, Jón Sæmundur og
Hólmgeirsdætur, sem verða inn-
kaupastjórar fyrir konur. Þetta er
ein stór fjölskylda.“
Jóhann segist þegar vera byrjað-
ur að gera breytingar. „Nú eru öll
Dead-fötin hans Jóns Sæmund-
ar farin og með því fer götutísk-
an að mestu úr búðinni. Libori-
us færist nú í aðeins fullorðins-
legra horf. Það er þegar búið
að gera heilmiklar breyt-
ingar á búðinni og sumar-
vörurnar eru að detta inn.
Stóru fréttirnar eru svo
þær að við erum að taka
inn Dior Homme í haust,
það er mikil viðurkenn-
ing fólgin í því. Það verð-
ur líka mjög gaman að sjá
íslenska karlmenn í Dior-
jakkafötum. Þau eru af allt
öðrum standard en við
erum vön.“
is
Tónlistarkonan Lay Low er á leið-
inni í sína fyrstu tónleikaferð til
Bandaríkjanna, sem hefst í lok
þessa mánaðar. Dagana 27. maí til
3. júní spilar hún í Los Angeles og
4. til 9. júní treður hún upp í New
York.
Áður en Lay Low fer til Banda-
ríkjanna spilar hún 17. og 18. maí
á tónlistarhátíðinni The Great Es-
cape sem verður haldin í Brighton
á Englandi. Í rauninni er allt árið
bókað hjá Lay Low því í septemb-
er spilar hún á Popkomm-hátíð-
inni í Berlín, spilar á CMJ-hátíð-
inni í New York í október og fer
að lokum í tónleikaferð um Bret-
land í nóvember sem stendur yfir
í eina viku.
Lay Low, sem vann þrefalt á
Íslensku tónlistarverðlaunun-
um fyrr á árinu, lauk nýverið
vel heppnaðri tónleikaferð um
landið ásamt Pétri Ben og Ólöfu
Arnalds. Síðustu tónleikarnir
voru haldnir á Nasa um síðustu
helgi og var þeim útvarpað beint
á Rás 2.
Lay Low fer til
Bandaríkjanna
Hjartaknúsarinn George Cloon-
ey segist ekki hafa neinn áhuga á
því að eignast börn. Vill hann því
ekki feta í fótspor félaga sinna
Matt Damon og Brad Pitt, sem eru
báðir orðnir feður.
„Ég skil ekki hvers vegna ein-
hver vill að ég verði pabbi. Ég er
of eigingjarn og verð taugaóstyrk-
ur í kringum börn. Ég veit að ég
er ekki tilbúinn fyrir þannig líf,“
sagði Clooney.
Hann segist jafnframt hafa
dregið aðeins úr partílíferni sínu.
„Á endanum fær maður nóg af því
að vakna upp með rosalega timb-
urmenn eftir að hafa farið á fyllirí
með vinum sínum.“
Clooney vill ekki
eignast börn
4 styrkir til náms í háskólum erlendis, hver að upphæð 500.000 kr.
4 styrkir til náms á háskólastigi á Íslandi, hver að upphæð 300.000 kr.
2 styrkir til náms á framhaldsskólastigi, hvor að upphæð 100.000 kr.
Árlega veitir Glitnir 10 félögum í Námsvild veglega
námsstyrki. Við tökum við umsóknum til 1. maí ár hvert
og veitum styrkina fyrir 1. júní. Styrkirnir eru eftirfarandi:
TÍU STYRKIR
FYRIR NÁMSFÓLK
Sæktu um tímanlega á glitnir.is/namsvild