Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 59
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele
Bündchen er hætt störfum fyrir
undirfatarisann Victoria´s Secret.
„Við óskum henni alls hins besta
og viljum þakka henni fyrir frá-
bært starf. Hún mun halda áfram
að vera áberandi hluti af kyn-
þokkafyllsta vörumerki heims það
sem eftir er ársins,“ sagði Edward
Razek hjá Victoria´s Secret.
Gisele, sem er 26 ára, er ein
þekktasta fyrirsæta heims. Hún
átti á sínum tíma í ástarsambandi
við leikarann Leonardo DiCaprio
en er núna með ruðningskapp-
anum Tom Brady. Ofurfyrirsæt-
an Gisele hefur margoft verið of-
arlega í kjöri á kynþokkafyllstu
konum heims og fyrirsætustörf
hjá Victoria‘s Secret hafa ekki
skemmt þar fyrir.
Gisele hætt
hjá Victoria‘s
Secret
Söngkonan Amy Winehouse og
Shaun Ryder, forsprakki Happy
Mondays, verða að öllum líkindum
í gestahlutverki á annarri plötu
Babyshambles. Sveitin er í við-
ræðum við Ryder um þátttökuna
og næst á blaði er síðan Wine-
house, sem er mikil vinkona Pete
Doherty og félaga.
Ryder og
Amy gestir
Japanskur dreifingaraðili kvik-
myndarinnar Babel hefur varað
fólk við því að því gæti liðið illa
við að horfa á myndina. Að sögn
dreifingaraðilans hafa fimmtán
manns kvartað undan ógleði eftir
að hafa horft á myndina.
Um er að ræða atriði þar sem
persóna japönsku leikkonunnar
Rinko Kikuchi fer á næturklúbb
með ljósum sem blikka ákaft.
Hefur áhorfendum orðið óglatt
við það að horfa á ljósin.
Áhorfendur
varaðir við
150 íslenskir línudansarar
stíga sporin við undirleik
Baggalúts í Laugardals-
höll á laugardagskvöld á
línudanshátíð. Jóhann Örn
Ólafsson segir að 500-600
manns stundi línudans að
staðaldri á Íslandi.
„Þetta hefur verið í lægð út á
við en alls ekki inn á við. Ákveð-
inn kjarni stundar línudans af
kappi,“ segir Jóhann Örn Ólafs-
son, dansari og danskennari.
Mikil línudanshátíð hófst í
gær og verður fram haldið yfir
helgina. Í gær var efnt til línu-
dans í Ráðhúsinu klukkan 17.30
og verður það endurtekið í dag.
Hápunktar hátíðarinnar verður
á laugardagskvöldið á Broadway
þar sem Rob Fowler, línudansari
frá Liverpool, verður með sér-
staka sýningu og klukkan 23.00
leikur svo kántrísveitin Bagga-
lútur undir gríðarmiklum hóp-
línudansi í Laugardalshöll. „Það
verður magnað að sjá einhverja
150 línudansara taka sporið fyrir
framan þá,“ segir Jóhann Örn.
Hann segir svo frá að línu-
dansinn hafi komið fram á sjón-
arsviðið árið 1994 þegar RÚV
sjónvarpaði frá Kántríbæ en þar
var hópur kana af Vellinum sem
steig línudans. „Nokkru seinna
var ég farinn að sýna þetta á
Ömmu Lú og þá byrjar þetta.“
Jóhann Örn metur það svo
að um land allt sé línudans-
inn stundaður af kappi af ein-
hverjum fimm til sex hundruð
manns. „En stærsti kjarninn er
hér í Reykjavík. Þetta er fólk á
öllum aldri. En meðalaldurinn
er kannski í kringum fimmtíu.
Ég er með ansi marga hressa í
tímum, til dæmis er ein áttræð
sem rúllar upp öllum flóknustu
dönsunum. Fólk lifir svo lengi
sem dansar línudans,“ segir Jó-
hann Örn.
Jóhann er frábær dansari
sjálfur og jafnvígur á hinar ýmsu
tegundir. En hann hefur einkum
lagt fyrir sig línudansinn. „Mér
fannst þetta sniðugt fyrir tólf
árum og finnst það enn þá. Þetta
er svo stór partur af mínu lífi
og mínu lifibrauði. Þetta er svo
skemmtilegt form að kenna.“
Konur