Fréttablaðið - 03.05.2007, Page 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er bull og vitleysa,“ sagði
Bragi Kristjónsson fornbóka-
sali um verðlagningu á Hvala-
sögu Jóhannesar S. Kjarval á upp-
boðssíðunni eBay. Seljandi, sem
virðist búsettur í Kópavogi en
lætur nafns síns ekki getið, býður
upp áritað eintak af smásögunni
„Hvalasagan – átján hundruð níu-
tíu og sjö“ á eBay, fyrir lágmarks-
upphæðina 58.500 bandaríkjadali.
Sú upphæð samsvarar tæplega
3,8 milljónum íslenskra króna. At-
hygli vekur að á uppboði Gallerís
Foldar á Hótel Sögu síðastliðinn
sunnudag var málverkið Skúta
í kvöldsól, einnig eftir Kjarval,
slegið á sama verði, eða 3,8 millj-
ónir íslenskra króna.
„Þetta er bara alveg út í bláinn,“
ítrekaði Bragi. „Við höfum verið
að selja þessi rit hans Kjarvals á
svona sjö til tólf þúsund krónur,
og jafnvel lægra en svo,“ sagði
hann. Bragi og sonur hans, Ari
Gísli, reka fornbókasöluna Bók-
ina á Klapparstíg í Reykjavík.
Seljandi Hvalasögunnar á
eBay skrifar þar í lýsingu að um-
rætt eintak sé það eina sem til sé
með áritun Kjarvals. Á því stend-
ur: „Ásta, frú Austurstræti. Kær
kveðja, Jóhannes S. Kjarval.“
Bragi segir hins vegar senni-
lega vera til fleiri árituð eintök af
ritum Kjarvals en óárituð. „Yfir-
leitt áritaði karlinn nú öll eintök
sem hann lét af hendi, þannig að
það er ekkert sérstaklega merki-
legt. Karlinn var náttúrlega snill-
ingur og gjafmildari en allir menn
á Íslandi. Hann gaf þetta yfirleitt
hverjum sem hafa vildi sem hann
hitti niðri í bæ,“ sagði Bragi.
Hvalasaga Kjarvals er „óður
til hvalsins“ að sögn Braga. „Ég
held það hafi verið prentuð svona
átta til tólf hundruð eintök, sem
var bara eins og venjulegt upp-
lag á þessum tíma í kringum
1950,“ sagði Bragi. Ritið er gefið
út 1957 og telst Braga til að það
sé um sextán blaðsíður. „Þetta er
smábæklingur með litprentaðri
kápu og teikningu af hval eftir
Kjarval,“ útskýrði hann. Hann
telur verðlagninguna á eBay því
vera fyrir neðan allar hellur.
„Langt út í allan himinbláma, af
því að þetta er prentað í um þús-
und eintökum og áritanirnar hans
Kjarvals eru yfirleitt á öllum hans
verkum,“ sagði Bragi.
Enn hafa engin tilboð borist í
Hvalasöguna á eBay, en uppboð-
inu lýkur í dag.
„Ég fæ mér alltaf tvöfaldan
sojalatte. Það er eiginlega orðið
þannig að ef ég fæ ekki minn
tvöfalda sojalatte þá kemst ég
bara ekki í gang.“
„Hann verður í nýju sniði og sér-
saumuðum buxum,“ segir Grétar
Baldursson, hinn landskunni leð-
urhönnuður í Kós-leðurvörum, en
hann hefur skilað af sér leðurfatn-
aðinum sem Eiríkur Hauksson á
að klæðast á sviðinu í Helsinki.
Væntanlega hefur Grétar gert ráð
fyrir tveimur af hvorri sort enda
ólíklegt að Eiríkur klæðist sama
fatnaði bæði kvöldin.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu ríkir mikil spenna
um það í hvaða fatnaði Eiríkur
verður enda skiptir klæðaburð-
ur ekki síður miklu máli í keppni
á borð við Eurovision þegar geng-
ið er til atkvæða. Greinilegt er að
taugarnar eru þandar til hins ýtr-
asta því Fréttablaðið hafði sam-
band við Sigurð Frey Björnsson
hjá BaseCamp, sem sagði að leðr-
ið yrði saumað í London en hannað
hjá Grétari. Leðurkóngurinn Grét-
ar vísar þessu alfarið á bug. „Þetta
verður enginn pabbajakki og ég
sauma þetta sjálfur,“ segir
Grétar og bætir því við að
þegar hafi tíu einstakl-
ingar óskað eftir því að
fá svona jakka fyrir
Eurovision-kvöld-
ið mikla. „Það kemur
ekki til greina, þessi
jakki er bara fyrir
Eirík,“ lýsir Grétar
yfir.
Stífar æfingar
voru í allan gær-
dag í Loft-
kastalanum
hjá hópnum
þótt Eirík-
ur sjálfur
væri víðs
fjarri.
Verið var að æfa svið-
setningu gítarstrák-
anna og þótti hún
heppnast vel. Í
dag verður síðan
síðasta rennsli
áður en hópur-
inn heldur út
snemma á föstu-
dagsmorgni.
Leðrið sérhannað og saumað á Eika
Auddi níundi á Íslandsmóti í skvassi
Skemmtikrafturinn Auðunn Blön-
dal keppti á Íslandsmótinu í
skvassi í Veggsporti um síðustu
helgi. Þetta var í fyrsta sinn sem
hann tók þátt í mótinu og endaði
hann í níunda sæti í A-flokki, sem
er næstefsti flokkurinn.
„Þetta gekk ágætlega. Ég tapaði
þremur leikjum og vann tvo. Ég
hef orðið mér til skammar á öðrum
stöðum þannig að mér fannst bara
allt í lagi að kíkja á þetta mót,“
segir Auðunn, sem hefur stund-
að skvass í fjóra mánuði. „Það er
samt eitt sem böggar mig. Ég er
búinn að vera að leika mér í fót-
bolta og körfubolta í gegnum
árin og er 26 ára, á fínum aldri.
Svo koma 45 til 50 ára menn með
bumbu og salta mann. Það er eitt-
hvað rangt við það og ég var mjög
reiður út af því. Ég veit ekki hvort
ég keppi á svona Íslandsmóti aftur
í bráð.“
Auðunn fer um næstu helgi til
New York þar sem dagskrárliður-
inn Fríkað úti verður tekinn upp
fyrir þáttinn Leitin að strákunum.
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is