Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 1
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
Sextíu milljarðar | Novator, fjár-
festingafélag Björgólfs Thors, átti
85 prósenta hlut í búlgarska síma-
félaginu BTC sem gengið var frá
sölu á í síðustu viku. Söluhagnað-
ur Novators nam 55 til 60 milljörð-
um króna.
Óheimilt samstarf | FME skorar
á FL Group og tengda aðila í Glitni
að sækja um heimild fyrir aukn-
um virkum eignahlut. Um 45 pró-
sent hlutafjár eru í höndum FL og
tengdra aðila. FL Group er ósam-
mála FME.
Ágæt starfslok | Bjarni Ár-
mannsson hagnaðist um 564 millj-
ónir króna þegar Glitnir keypti
eigin hlutabréf af félögum hans,
Landsýn og Sjávarsýn, sama dag
og hann lét af störfum sem for-
stjóri Glitnis.
Ekkert Merck | Actavis hefur
dregið sig út úr slagnum um sam-
heitalyfjahluta þýska lyfjafyrir-
tækisins Merck. Vænt söluverð
var hærra en stjórnendur töldu
skynsamlegt. Lyfjafyrirtækin
Teva og Merck standa eftir.
Gott uppgjör | Landsbankinn
hagnaðist um 13.760 milljónir
króna á fyrsta ársfjórðungi. Arð-
semi eigin fjár var 45,2 prósent.
Uppgjörið var vel yfir meðaltals-
spá bankanna upp á 11.215 millj-
ónir króna.
Össur tapar | Össur skilaði 2,7
NBA
Rekstrarlögmálin
gilda ekki alltaf
13
Sparisjóðirnir
Í sjöunda
himni
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Í aðdraganda alþingiskosninga
Formenn flokkanna hlutgerðir
8-9
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Íslensk NýOrka vinnur nú að undirbúningi þess að
setja vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn Eldingu
við Reykjavíkurhöfn og gera tilraunir með hana
á hafi úti á sjómannadaginn á næsta ári. Heildar-
kostnaður nemur um 40 milljónum króna. Hönnunin
er að öllu leyti íslensk að því undanskildu að efna-
rafallinn er keyptur erlendis frá. Að verkefninu
kemur fjöldi innlendra fyrirtækja auk nemenda við
Listaháskólann en þeir hanna sýningarrými í Eld-
inguna. Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Ný-
Orku, telur þetta vera í fyrsta sinn í veröldinni sem
gerðar hafi verið tilraunir með efnarafal á sjó.
Vetnisljósavélin er næsta skref NýOrku á sviði
vetnisvéla í samgöngutækjum og segir Jón að
velheppnað tilraunaverkefni NýOrku með notkun
vetnisstrætisvagna í Reykjavík síðastliðin þrjú ár
hafi rutt brautina fyrir því að fleiri aðilar koma til
samstarfsins nú en áður. „Þetta hefði ekki hvarflað
að mörgum áður,“ segir hann.
Nokkrum vandkvæðum er bundið að setja
vetnisvél um borð í báta og segir Jón að til öryggis
hafi verið ákveðið að byrja á að nota vetni í ljósavél
Eldingarinnar. „Efnarafalar eru viðkvæmir fyrir
seltu og sjávarumhverfi,“ segir hann en það getur
truflað rafkerfið.
Jón segir að talsverðar fyrirspurnir hafi borist
um nýtingu vetnisvéla frá ferðabátageiranum auk
þess sem erlendir fjölmiðlar, svo sem sjónvarps-
stöðin Discovery, hafi sýnt verkefninu áhuga.
„Menn sjá fyrir sér að nota umhverfisvæna orku
í stað olíu í báta, ekki síst við hvalaskoðun. Við
slíka skoðun er siglt út á aðalvél skipsins en drepið
á henni þegar komið er á hvalaslóðir. „Þá tekur
ljósavélin við. Með efnarafalnum verður hvorki
mengun út frá vélinni né titringur frá bátnum, sem
verður hljóðlaus,“ segir Jón. „Við teljum að við
séum þarna að fara mjög ótroðnar slóðir og gerum
ráð fyrir að þekking á þessu geti orðið mjög verð-
mæt vara í framtíðinni. Upplýsingar sem koma úr
verkefninu verða hvergi annars staðar til en hér,“
segir Jón.
Fyrstu vetnistilraun-
irnar á sjó að hefjast
Íslensk NýOrka setur vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátinn
Eldingu á næsta ári. Tilraunaverkefni með notkun vetnis-
strætisvagna ruddi brautina, segir framkvæmdastjórinn.
Hópur Eyjamanna, sem á meiri-
hluta hlutafjár í Vinnslustöðinni,
birtir í dag opinbert yfirtökutilboð
í félagið þar sem boðnar eru 4,6
krónur fyrir hvern hlut. Hópur-
inn, sem samanstendur af Haraldi
og Kristínu Gíslabörnum og Sigur-
geiri Brynjari Kristgeirssyni, for-
stjóra félagsins, hyggst sitja við
sinn keip, jafnvel þótt að síðasta
viðskiptagengi Vinnslustöðvarinn-
ar hafi verið 8,3 krónur á hlut.
Gengið 8,3 er sjötíu prósent yfir
tilboðsverði að teknu tilliti til þrjá-
tíu prósenta arðgreiðslu fyrir síð-
Eins og komið hefur fram í Mark-
aðnum eru hluthafar í Vinnslu-
stöðinni ekki á eitt sáttir um verð-
mæti „síðasta móhíkanans“, eins
og síðasta útgerðarfélagið á Að-
allista Kauphallar hefur verið
kallað. Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri Brims, sem fer fyrir ríf-
lega þrjátíu prósenta hlutafjár í
Vinnslustöðinni, hefur lýst því að
yfirtökutilboðið sé of lágt. Lands
bankinn keypti mikið magn af
bréfum í gær en talið er líklegt að
Guðmundur standi á bak við þau
viðskipti.
Samkvæmt heimildum Mark
aðarins er talið ólíklegt að sam
komulag náist með stærstu hlut
höfum Vinnslustöðvarinnar að svo
stöddu.
Meirihluti hluthafa óskar jafn
framt eftir því við stjórn Kaup
hallarinnar að Vinnslustöðin
verði afskráð úr Kauphöll sam
hliða yfirtökutilboði. Væntanlega
verður félagið afskráð úr Kaup-
höll miðað við óbreytta stöðu. Ætla
má að smáir hluthafar selji bréf
sín áfram ef núverandi kjör bjóð-
ast og gæti því eignarhaldið í fé-
laginu þrengst enn meira.
Meirihlutinn situr við sinn keip
Síðasta viðskiptagengi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum var 70
prósentum fyrir ofan yfirtökutilboð. Pattstaða kann að vera komin upp.
Hagnaður Teymis nam 1,6 millj-
örðum króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins.
Um er að ræða birtingu uppgjörs
annars ársfjórðungs fyrirtækisins
eftir skiptingu Dagsbrúnar í tvö
félög, 365 sem tók yfir fjölmiðla-
hlutann og svo Teymi sem tók yfir
fjarskiptahluta, upplýsingatækni
og aðra starfsemi.
Afkoman er nokkru yfir spám
Afkoma Teymis
er yfir spám
Sló í gegn í Kína
Nútímafræði
kennd á Akureyri
Íslenski dansflokkurinn snýr aftur heim eftir vel
heppnaða sýningarferð í Kína.Uppselt var á allar sýningar Íslenska dansflokksins
í borgunum Sjanghæ, Guangzhou og Peking í Kína
en ferðalaginu lauk um helgi S
sóknin að
Dansarar og starfsfólk dansflokksins vakti mikla
athygli á meðan á dvölinni stóð. Fyrir kom að beðið
var um eiginhandaráritanir og ekki var l
dönsurunum liði sv lí ið
P
R
E
N
T
S
N
I Ð
HEILDARLAUSNIRÍ DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrvalaf hjöruliðum ogdrifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 ReykjavíkSími: 517 5000
háskólarMIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 Fleiri greinar í boði Fyrirhugað er að bjóða upp á meistaranám fyrir listamenn og fræðimenn í myndlist, hönnun, tónlist og leiklist. BLS. 4
framsokn.is
Þriðjungi námslána breytt í styrk
Nú er unnið að endur-
bótum á þaki Alþingishússins,
meðal annars skipt um þakskífur
hússins í annað sinn frá byggingu
þess árið 1881. „Þetta er mjög
aðkallandi viðgerð,“ segir Helgi
Bernódusson, skrifstofustjóri
Alþingis. „Það var farið að bera á
leka í húsinu.“
Bæði gömlu skífunar og þær
nýju eru steinskífur frá Noregi,
og munu þær orðnar nokkuð
lúnar enda áratugir síðan skipt
var um síðast. Gömlu skífunum
verður flestum hent, en séu þær
heillegar að einhverju ráði verða
þær hugsanlega endurnýttar.
Einnig er unnið að öðrum
viðgerðum, svo sem að laga fúgur
á útveggjum. „Við vonum að þessu
ljúki áður en þing kemur saman,“
segir Helgi. Heildarkostnaður við
viðgerðirnar er áætlaður á bilinu
60 til 70 milljónir.
Nýtt þak yfir
nýja þingmenn
Allir hjúkrunarmenntaðir
stjórnendur á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
munu ganga í hjúkrunarstörf yfir sumarmán-
uðina, þar sem afleysingafólk fæst ekki.
Meiri samdráttur verður í starfsemi Landspít-
alans í sumar en verið hefur undanfarin sumur,
að sögn Önnu Stefánsdóttur, framkvæmda-
stjóra hjúkrunar.
Nefna má að samdráttur í mögulegum legu-
dögum verður fjórtán prósent í stað ríflega tíu
prósenta í fyrrasumar og helmingi skurðstofa
verður lokað. Þetta þýðir að mögulegum legu-
dögum á sjö daga deildum verður fækkað úr 75
þúsund í um 64 þúsund yfir sumarmánuðina.
Þá verður dregið saman um þrjú til fjögur pró-
sent í starfsemi dagdeilda. Af átján skurðstof-
um verða aðeins níu opnar.
„Þessi aukni samdráttur stafar fyrst og fremst
af því að það er afar erfitt að fá fólk í sumar-
afleysingar,“ segir Anna. „Starfsmenn sem tengj-
ast hjúkrun á spítalanum eru rétt um þrjú þús-
und og allir þurfa að fá sumarleyfi í júní, júlí og
ágúst. Það er útilokað að halda fullri starfsemi
með því að allir geti fengið sumarleyfi. Það er
ekkert fólk til og það gefur auga leið að við kipp-
um ekki upp 1.500 manns til þess að leysa af.“
Um hættu á lengingu biðlista vegna lokunar
helmings skurðstofa segir Anna að vissulega
hafi fólki í bið fjölgað á sumrin. Það hafi þó
yfirleitt tekist að vinna upp. Um hásumarleyfis-
tímann sé sem fyrr áhersla á að sinna öllum
sem séu bráðveikir. Hinir bíði fram á haustið.
„Stjórnendur og sviðsstjórar munu starfa
við meiri klíníska vinnu en ella. Hjúkrunar-
menntaðir stjórnendur klæða sig í búninginn
og taka til hendinni við hjúkrunarstörf í
sumar,“ segir Anna, sem kveður um þrjátíu
hjúkrunarfræðinga sem annars séu í yfir-
mannsstörfum munu ganga vaktir í sumar.
Hið sama gildir um lækna á Landspítalanum.
Reynir Tómas Geirsson, yfirlæknir á fæðing-
ardeild, mun bæta við sig læknisverkum á fæð-
ingargangi: „Það er búið að skipuleggja vakt-
irnar hjá okkur og ég fjölgaði mínum vöktum
þótt ég sé stjórnandi á sviðinu.“
Stjórnendur í hjúkrunarstörf
Stjórnendur á Landspítala – háskólasjúkrahúsi munu ganga í hjúkrunarstörf á spítalanum í sumar þar sem
afleysingafólk fæst ekki. Samdráttur í starfseminni verður mun meiri en undanfarin sumur af sömu ástæðu.
Jóhannes Rúnar
Jóhannsson, einn fimm umsækj-
enda um embætti ríkissaksóknara,
hefur dregið umsókn sína til baka.
Hann segir að ástæðurnar séu
fleiri en ein en einna þyngst vegi
þó að hann sjái ekki mikinn tilgang
í því að sækja um embætti sem
hafi þegar verið ráðstafað.
„Ef þú spyrð mig að því þá er það
mín tilfinning að stöðunni hafi
þegar verið ráðstafað,“ segir
Jóhannes Rúnar og undrast jafn-
framt þá óútskýrðu seinkun sem
orðið hefur á ráðningunni.
Spurður hvort búið sé að eyrna-
merkja Jóni H. B. Snorrasyni stöð-
una segir Jóhannes Rúnar að Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra geti
einn svarað því.
Í viðtölum við umsækjendur til-
kynnti Björn að niðurstaða myndi
liggja fyrir síðastliðinn föstudag.
Þann dag fengu umsækjendur til-
kynningu um að ráðningu væri
seinkað ótímabundið.
Björn Bjarnason segir í samtali
við Fréttablaðið að það sé af og frá
að embætti ríkissaksóknara sé nú
þegar eyrnamerkt Jóni H. B.
Snorrasyni eða nokkrum öðrum.
„Ég tilkynnti umsækjendum að
niðurstöðu væri að vænta öðru
hvoru megin við helgi. Síðan dró
einn umsækjandi sig til baka og
það flækti málin,“ segir Björn og
vill ekkert gefa upp um hvenær
ráðning í embættið liggi fyrir. „Það
verður að vanda til verka,“ segir
hann og útilokar jafnframt ekki að
það geti dregist fram yfir kosning-
ar að ráða ríkissaksóknara.
Egill Stephensen, sem er meðal
umsækjenda, vildi lítið tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið ræddi við
hann en viðurkenndi að hann undr-
aðist frestunina sem orðið hefði á
ráðningunni án þess að nægjanleg-
ar skýringar hefðu komið fram.
Umsækjendurnir Sigríður Frið-
jónsdótttir og Brynjar Níelsson
vildu ekki tjá sig um málið en ekki
náðist í Jón H. B. Snorrason þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Telur stöðunni þegar ráðstafað
www.xf.is
JARÐGÖNG Í STAÐ
ERFIÐRA FJALLVEGA framsokn.is
Árangur áfram
- ekkert stopp
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR