Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 16
 Sjö öryrkjar, sem allir hafa reynslu af því að vera með geðsjúkdóm, starfa nú að sérstöku nýsköpunarverkefni á vegum AE starfsendurhæfingar og félags- málaráðuneytisins. Um 25 pró- senta starf er að ræða. Verkefnið byggir á þjónustusamningi ráðu- neytisins og AE starfsendurhæf- ingar, sem rekur Hlutverkasetur í samvinnu við samtökin Hugarafl. „Um er að ræða gæðaþróunar- verkefni sem kallað er Notandi spyr Notanda, eða NsN,“ segir Kristjana Milla Snorradóttir iðju- þjálfi, sem starfar hjá Hlutverka- setrinu. „Að því starfa tveir iðju- þjálfar og umræddir sjö einstaklingar sem hafa reynslu af því að vera með geðsjúkdóm. Þess- ir sjö einstaklingar eru öryrkjar en eru ráðnir hjá Hlutverkasetr- inu í 25 prósenta starf hver. Miðað er við það starfshlutfall því bæði er vinnuúthald þessara einstakl- inga minna, eftir langa fjarveru frá vinnumarkaði, og svo er þetta viðmiðið sem þeir geta unnið án þess að til tekjuskerðingar á vegum ríkisins komi.“ Kristjana Milla segir Hlutverka- setrið vera fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem hafi það að markmiði að ráða til sín fólk sem misst hafi hlutverk og sé á örorku. „Markmið okkar er að skapa einstaklingum sem misst hafa starfshlutverk tækifæri til þess að skapa sér hlutverk og auka lífs- gæði. Það gefur lífinu gildi og til- gang, eins og glögglega hefur komið fram hjá starfsfólki okkar, að vakna á morgnana og sinna verkefni sem hefur markmið, upp- haf og endi. Þessi hópur er að skila einhverju mikilvægu af sér.“ Kristjana Milla segir enn frem- ur að um nýsköpunarverkefni og frumkvöðlastarf á Íslandi sé að ræða, sem unnið sé eftir valdefl- ingu og á jafningjagrunni. „Við teljum að við séum að gefa einstaklingum á örorkubótum aukið val, tækifæri til þátttöku og möguleika til að vaxa,“ bætir hún við. „Verkefnin sem við sköpum tengjast starfsfólki okkar beint, þar sem það fær að nýta eigin styrkleika og reynslu með því að leita í þann mikla þekkingarbrunn sem einstaklingarnir luma á. Með þátttökunni eflast þau í starfshlut- verkinu og við fjölgum þátttak- endum á atvinnumarkaðinum. Félagsmálaráðuneytið hefur með gerð samningsins tekið stórt og merkilegt skref í þá átt að gefa öryrkjum tækifæri og fjölga þeim á atvinnumarkaði, sem til lengri tíma litið eykur lífsgæði og sparar ríkinu fjármuni.“ Sjö öryrkjar vinna frumkvöðlaverkefni Sjö öryrkjar sem reynslu hafa af því að vera með geðsjúkdóm starfa nú að ákveðnu frumkvöðlaverkefni. Það byggir á þjónustusamningi AE starfsendur- hæfingar og félagsmálaráðuneytisins. Öryrkjarnir eru allir í 25 prósent starfi. Eldri borgarar 60+ Byrjendur 30 kennslustunda byrjenda- námskei›. Engin undirsta›a nau›synleg, hæg yfirfer› me› reglulegum endurtekningum í umsjá flolinmó›ra kennara. A›almarkmi› námskei›sins er a› gera flátttakendur færa a› nota tölvuna sjálfstætt, m.a. til a› skrifa texta og prenta, nota Interneti› sér til gagns og gamans, taka á móti og senda tölvupóst. Kennsla hefst 16. maí og lýkur 11. júní. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13-16. Ver› kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. Framhald I 30 kennslustundir. Hentar fleim sem loki› hafa byrjendanámskei›inu e›a hafa sambærilega undirstö›u. Byrja› er á upprifjun á›ur en haldi› er lengra í ritvinnslu í Word. Framhaldsæfingar á Internetinu og í allri me›fer› tölvupósts. Kennsla hefst 15. maí og lýkur 7. júní. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-16. Ver› kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS SÍMI: 544 2210 SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, hefur útbúið reiknivél sem reiknar út hve mikið sparast hjóli maður í vinnuna. Með því að fylla inn réttar upplýsingar fást tölur um orku- sparnað, peningasparnað og hita- einingabruna. „Ég hef sett ýmsar reiknivélar í loftið í gegnum tíðina og langaði að leggja mitt af mörkum í verkefninu Hjólað í vinnuna,“ segir Sigurður. Reiknivélina má nálgast á heima- síðu Orkuseturs. Þar setur maður inn upplýsingar um hversu langt er hjólað og hversu margar ferðirnar eru. Þá er einnig tekið fram hvers konar bifreið er skilin eftir heima. Reiknivélin tekur að auki tillit til bensínverðs sem og líkamsþyngdar hjólreiðamannsins svo hægt sé að reikna út hversu mörgum hitaein- ingum er brennt. „Ég hef lengi verið talsmaður þess að menn brenni líkamsfitu í stað jarðefnaeldsneytis,“ segir Sig- urður og bætir því við að mörgum þyki sláandi að sjá tölurnar um útblásturinn sem sparast með því að hjóla. Maður sem hjólar fimm kílómetra til vinnu, fimm daga vikunnar (10 km á dag) og skilur eftir heima bein- skipta bifreið af tegundinni Toyota Yaris með 1497 cc slagrými sparar 3,5 lítra af bensíni og þar með um 400 krónur. Færi hann á bílnum myndi hann losa 8,2 kíló af koltvíox- íði. Sé maðurinn 80 kg á þyngd má hann einnig búast við því að brenna um 1.692 hitaeiningum. Sláandi tölur um mengun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.