Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 54
„Skjótt skipast veður í þessum bransa. Þetta er vissulega súrt í broti en svona getur þetta verið,“ segir Ingvar Þórðarson, framleið- andi hjá Kvikmyndafélagi Íslands. Þau leiðu tíðindi hafa nú borist að Brynhildur Guðjónsdóttir rétt missti af aðalhlutverkinu í hryll- ingsmyndinni Lordi: Dark Floors með finnsku skrímslahljómsveit- inni Lordi. Kvikmyndafélag Ís- lands er meðframleiðandi mynd- arinnar og þegar tilkynnt var um samstarfið var talið nánast öruggt að eitt af aðalhlutverkunum væri eyrnamerkt íslenskri leikkonu. Bresk leikkona hefur hins vegar verið ráðin í hlutverkið. Hins vegar gætu tveir íslensk- ir karlleikarar af eldri kynslóð- inni fengið stór hlutverk í kvik- myndinni. Þeir Pétur Einars- son og Theódór Júlíusson hafa að undanförnu mætt í pruf- ur hjá Reykjavík Casting og var talið líklegt að þau mál myndu skýrast seint í gær eða í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þykir Theódór þó líklegri og var Mýrin meðal ann- ars send út til leik- stjórans en þar fór leikarinn á kostum sem smá- glæpamaðurinn Elliði. Um er að ræða hlutverk drykkfellds heimilislauss manns og er áætlað að tökudag- arnir verði hátt í tut- tugu hjá Theódóri ef af verður. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Sóley Kristjánsdóttir, betur þekkt sem DJ Sóley, og unnusti hennar Freyr Frostason gengu í það heilaga um helgina. Í athöfninni sjálfri var brúðhjónunum komið á óvart, þegar vinahópur parsins stóð upp og söng. „Þetta var alveg æðislegt. Ég tárað- ist alveg, mér brá svo,“ sagði Sóley, sem var á leiðinni í sprautu hjá lækni vegna yfirvofandi brúðkaupsferð- ar til stranda Indlandshafs þegar Fréttablaðið náði tali af henni. Magnús Jónsson, þekktur sem Maggi Jóns og oft á tíðum kennd- ur við Gus Gus, er vinur brúðhjón- anna. Hann söng fyrir hjónakornin lag sem hann samdi fyrir Silfurtóna á sínum tíma. „Það var ekki óvænt, það var alltaf planið að hann myndi syngja. Hann breytti bara textanum svo hann passaði betur við okkur,“ útskýrði Sóley. „En svo stóðu þrjá- tíu manns upp og sungu bakraddir með honum. Strákarnir öðru megin og stelpurnar hinum megin. Það var ótrúlega flott,“ sagði hún. Sóley segir uppátækið hafa sleg- ið þau dálítið út af laginu, en kveðst þó mæla með óvæntum uppákom- um af þessu tagi. „Athöfnin end- aði á þessu og allir komust í brjál- að stuð fyrir veisluna,“ sagði hún. „Þetta var alveg geðveikt.“ Óvænt uppákoma í brúðkaupi Sóleyjar „Þeir eru þekktir fyrir að sprengja upp allt verð. Ég er ekki viss um að það verði góður kostur í fram- tíðinni að fara til Yokanga fyrir hinn almenna veiðimann,“ segir Hilmar Hansson, umboðsmaður veiðiferðaskrifstofunnar Fronti- ers hér á landi. Hilmar hefur undanfarin ár verið að selja íslenskum stang- veiðimönnum ferðir á Kólaskaga í Rússlandi – nánar tiltekið í Yok- anga-á. Að sögn Hilmars hefur Frontiers samning við eigend- ur árinnar til ársins 2008. En nú hefur Lax ehf, Jón Þór Júlíusson og Gísli Ásgeirsson með fulltingi Peter Rippin, gripið inn í og und- irritað samning við Yokanga-menn um umboðssölu í ánna. Hilmar segir ekki öll kurl komin til grafar í þeim efnum. „Það á eftir að fara yfir þetta af lögfræð- ingum. En skrýtið að þeir skuli vilja Yokanga sem þeir hafa talað illa um. Erfitt fyrir þá núna að „presentera“ hana. Það mun koma út eins og Ragnar Reykáss sé að selja,“ segir Hilmar ósáttur við að missa Yokanga en hann hefur lagt talsvert í að kynna þennan kost ís- lenskum veiðimönnum. „Það er naumast,“ segir Jón Þór hjá Lax ehf. þegar þessi ummæli eru borin undir hann. Jón Þór hafnar því alfarið að fara í sand- kassaleik eins og hann kallar yfir- lýsingar Hilmars og neitar að hafa talað illa um Yokanga enda aldrei þangað komið. „Tveir ættingja minna eru að fara í sumar og ég hafði mikinn áhuga á að komast þangað sjálfur. Nei, það er ekki verið að sprengja upp verð á Kólaskaga. Menn þurfa ekki að hafa af því áhyggjur. Eftir sem áður mun íslenskum veiði- mönnum bjóðast góðir dagar í Yokanga á sambærilegu verði og verið hefur.“ Jón Þór segir þetta til komið í gegnum Peter Rippin og enskt umboðsfyrirtæki sem Lax á hlut í. Og talsvert flóknara sé hvern- ig veiðiréttur og leyfi í Rússlandi gangi fyrir sig en hér. Lax ehf. er að verða eitthvert umfangsmesta fyrirtæki á Íslandi í sölu laxveiði- leyfa og er til dæmis með Laxá í Kjós og Grímsá á sínum snærum... og nú nýlega, Langá í Borgarfirði, þar sem ráðið hefur ríkjum sjálfur Ingvi Hrafn Jónsson. „Allt gert með fullu samþykki Ingva Hrafns. Hann er ekkert hættur í Langá þó við tökum við og hann verður okkur innan hand- ar með allar breytingar.“ Hilmar er síður en svo búinn að gefa Kólaskaga upp á bátinn þó allt líti út fyrir að Yokanga sé runnin honum og Frontier úr greipum. „Sumarið er vel selt. Við erum einnig með ánna Ponoi sem er flaggskip Frontier á Kólaskaga. Þar geta allir veitt. Vikan gefur að meðaltali 50 laxa. Yokanga er meira fyrir mjög vana veiðimenn,“ segir Hilmar og upplýsir að hann sé búinn að selja 90 stangveiði- mönnum íslenskum ferð á Kóla- skagann í sumar. Fyrir það borga menn 300 þúsund auk flugfars til Rússlands. „Þessi mynd er úr kvikmyndinni 65. grein lögreglusamþykktar- innar svo ég er í búningi. Ég lék pjattaðan einkabílstjóra sem var algjör snobbhæna og fuss- aði og sveiaði í allar áttir.“ Brynhildi skipt út fyrir breska leikkonu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.