Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 18
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Maðurinn sem Framsókn hafnaði Eins og í borgarstjórn? í ágúst munu sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi vinna spennandi verkefni í sam- vinnu við ADHD samtök- in og velferðarsjóð barna. Verkefnið nefnist Gaura- flokkur og er sumarbúða- flokkur sérstaklega sniðinn fyrir 10 til 12 ára drengi með ADHD. „Okkur fannst vanta einhvers konar tómstundaúrræði fyrir þessa krakka og langaði að bjóða þeim upp á dvöl í Vatnaskógi sem væri sérstaklega sniðin að þeirra þörfum,“ segir Bóas Valdórsson, sálfræðingur á BUGL, en hann er einn forsvarsmanna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að tekið verði á móti um 70 drengjum í vikunni eftir verslunar- mannahelgina og fá þeir að njóta lífsins í Vatnaskógi í sex daga. Meðan á dvölinni stendur verður unnið mark- visst með vandamál drengjanna í gegnum leik og starf. Hreyfing og útivera verða í fyrirrúmi en ramminn verður skýr og föst regla á hlutunum, sem hentar drengjum með ADHD vel. „Við höfum í samvinnu við ADHD samtökin unnið að því að móta starfið,“ segir Bóas og bætir því við að allt krefjist þetta auk- ins mannafla. „Í þessum hópi verða talsvert færri drengir en við eigum að venjast í Vatnaskógi en á móti kemur að starfsmenn- irnir verða helmingi fleiri. Þetta starfsfólk sækir sérstakt nám- skeið áður en hópurinn kemur og verður vel undirbúið. Við fengum styrk frá Velferðarsjóði barna, sem gerir okkur kleift að ráða aukinn mannafla án þess að kostn- aðurinn rjúki upp,“ segir Bóas en dvöl í Gauraflokknum mun ekki kosta meira en hefðbundin dvöl í Vatnaskógi. Að sögn Bóasar hafa viðbrögð við Gauraflokknum verið góð enda veit hann ekki til þess að áður hafi verið boðið upp á sér- stakar sumarbúðir fyrir drengi með ofvirkni og skyldar raskanir. Skráning er hafin og allar nán- ari upplýsingar um sumarbúðirn- ar má nálgast á vefslóðinni: www. kfum.is/gauraflokkur. Gaurar með ADHD í Vatnaskógi Þörf áminning Spáir Eika og Framsókn góðu gengi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.