Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 42
Margverðlaunuð kvikmynd leik- stjórans Florians Henckel von Donnersmarck, Líf annarra, ger- ist í sundruðu Þýskalandi árið 1984, austanmegin í Berlín hefur öryggislögreglan Stasi nef sitt í hvers manns koppi og vænisýkin er í hámarki. Stasi-liðinn Wiesler (Ulrich Mühe) er að undirlagi menningarráðherrans Brunos Hempf fenginn til að njósna um leikskáldið Dreymann (Sebastian Kock) og leikkonuna Christu- Mariu Sieland (Martina Gedeck) en peðið Wiesler veit þó ekki að það vakir helst fyrir ráðherranum að komast í brækur leikkonunnar. Wiesler tekur starf sitt alvar- lega og grunar Dreymann um græsku en þegar á líður fær hann sífellt meiri samúð með parinu, sem hann hlerar og njósnar um tímunum saman. Bakland sög- unnar í eftirlitsþjóðfélagi Aust- ur-Þýskalands er bæði skelfilegt og grátbroslegt og tekst Donners- marck að skapa mjög trúverðuga mynd af andrúmslofti tortryggn- innar, kerfisbundnum ofsókn- um og þrúguðum listamönnum. Pólitíkin tekur aldrei yfir atburða- rásina, sem fyrst og fremst snýst um fólk í annarlegum heimi, hug- myndir um traust, breyskleika og fórnfýsi. Leikskáldið Dreymann dansar á línu flokkshollustunnar þar til félagi hans, sem verið hefur á svörtum lista stjórnvalda, frem- ur sjálfsmorð og Dreymann skrif- ar grein í Der Spiegel sem síst er þóknanleg Kommúnistaflokknum. Á þeim tíma hafa hlutverk hans og Wieslers snúist við og Stasi-mað- urinn er farinn að skrifa leikritið. Hér helst allt í hendur við að skapa eftirminnilegt listaverk með áhrifamikinn boðskap. Leikaranir, þá sér í lagi Mühe, eru afbragð og handrit leikstjórans virkilega vel úr garði gert. Það eru ekki marg- ar persónur í myndinni en jafnvel minnstu hlutverkin eru vel mótuð. Það var helst óbermisráðherrann sem var full ýktur – síétandi og sílspikaður fauti og holdtekning spillingar. Útlit myndarinnar og allt yfirbragð var heildstætt og sviðsetningarnar trúverðugar. Allt var mátulega temprað og lit- laust til þess að miðla grámanum. Þrátt fyrir allt er Líf annarra líka lúmskt fyndin mynd og nær leikstjórinn afbragðsvel að spila á jafnvægið milli hláturs og hroða – hér er ekki beitt ódýrum brögð- um né yfirkeyrðri dramatík held- ur mætti fremur kenna áherslurn- ar við þýska hófsemi. Líf annarra er afbragðs spennumynd og eftir- minnileg sögustund sem allir ættu að sjá. Forvitin fluga á veggnum „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum Einar Már Guðmundsson 20. sæti Reykjavíkurkjördæmi norður rithöfundur Reykjavík Lísa Kristjánsdóttir 7. sæti Reykjavíkurkjördæmi norður aðstoðarleikstjóri Reykjavík Hlynur Hallsson 18. sæti Norðausturkjördæmi myndlistarmaður Akureyri Einar Laxness 21. sæti Reykjavíkurkjördæmi suður sagnfræðingur Reykjavík Arndís Soffía Sigurðardóttir 8. sæti Suðurkjördæmi ferðaþjónustubóndi Fljótshlíð Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar um heita vatni› www.stillumhitann.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.