Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 25
Íslenski dansflokkurinn snýr aftur heim eftir vel heppnaða sýningarferð í Kína. Uppselt var á allar sýningar Íslenska dansflokksins í borgunum Sjanghæ, Guangzhou og Peking í Kína, en ferðalaginu lauk um helgina. Svo mikil var að- sóknin að sums staðar þurfti að bæta við sætum og selja sérstök sæti með takmörkuðu útsýni á afslátt- arverði. Það kom ekki í veg fyrir að fólk stæði í bið- röðum fram yfir hlé í von um að berja íslensku lista- mennina augum. „Viðtökurnar fór fram úr björtustu vonum,“ segir Guðmundur Elías Knudsen, dansari í Íslenska dans- flokknum. „Þetta er líka ánægjulegt þar sem þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn fer til Kína. Það hefur reyndar lengi staðið til að sýna í Kína, en tækifær- ið gafst fyrst eftir að Ása Richardsdóttir fór þangað í fyrra til að mynda tengsl.“ Dansarar og starfsfólk dansflokksins vakti mikla athygli á meðan á dvölinni stóð. Fyrir kom að beðið var um eiginhandaráritanir og ekki var laust við að dönsurunum liði svolítið eins og rokkstjörnum. Guð- mundur segir erfitt að lýsa reynslunni af Kína í nokkrum orðum og segir ekkert eitt hafa staðið upp úr í ferðinni. „Þarna er svo margt áhugavert að sjá. Mannmergðin er náttúrlega ótrúleg og sömuleið- is fátæktin en íbúarnir eru engu að síður mjög lífs- glaðir. Ég vil bara hvetja sem flesta til að heimsækja þessa þjóð.“ Eftir gott gengi Íslenska dansflokksins í Kína hafa listahátíðir í Macau, SiDance í Seúl í Suður-Kóreu og Hong Kong, sem er talin sú stærsta í Suður-Asíu, sýnt áhuga á að fá hann til að sýna. Dansflokkurinn virðist því hafa náð tilætluðu markmiði með Kínaferðinni, sem er að komast inn á Asíumarkaðinn. Sló í gegn í Kína Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400 Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið: Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta. Náðu forskoti með okkur í sumar! “Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu miklum hraða ég náði.” Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari. “Loksins sé ég fram á það að geta klárað lesbækur fyrir próf” Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi. “Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum! Frábært!” Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f yrirlesari og jógakennari. “Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu prófunum.” Jökull Torfason, 15 ára nemi. “Þetta mun nýtast mér alla ævi.” Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi. “...á eftir að spara mér hellings tíma af námsbókalestri.” Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari. P R E N T S N IÐ HEILDARLAUSNIR Í DRIFSKÖFTUM Landsins mesta úrval af hjöruliðum og drifskaftsvörum Jafnvægisstillingar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.