Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 12
Borgarskjalasafni Reykjavík- ur hafa borist fyrirspurnir frá milli 30 og 40 manns sem óska upplýs- inga um dvöl sína á opinberum vist- heimilum. Tekist hefur að svara flestum sem dvöldu á vistheimilum á vegum Barnaverndanefndar Reykjavíkur en öðrum er ósvarað þar sem engin eru skjölin. „Við höfum skjöl Barnaverndar- nefndar en ekki heimilanna sjálfra,“ segir Svanhildur Boga- dóttir borgarskjalavörður sem í vikunni sendi skjalavörðum og bókasafnsfræðingum erindi um hvort þeir viti hvar skjöl um vistheimili væru að finna. Nefnir hún Breiðavík, Kumbaravog, Elliðahvamm, Steinahlíð, Bjarg, Skóga undir Eyjafjöllum, Laugarás í Biskupstungum, Löngumýri og Fitjar í Skagafirði og Keldur á Rangárvölllum. Svanhildur segir skjölin ekki á Þjóðskjalasafninu og veltir fyrir sér hvort þeim hafi verið eytt. Þó kunni eitthvað að leynast í heimahúsum enda sum vistheimil- anna starfrækt af félagasamtökum. Hafi fólk upplýsingar um skjöl biður hún það um að hafa samband við sig á Borgarskjalasafninu. „Við fáum fyrirspurnir frá fólki sem var í vistun jafnvel um árabil og því finnst skrítið að ekki finnist um það stafkrókur,“ segir Svan- hildur. Mikil vinna hefur farið í verkið hjá Borgarskjalasafni og segir Svanhildur það taka allt frá nokkrum klukkustundum upp í marga daga að leita upplýsinga svo að svara megi fólki. Tugir leita upplýsinga um sig Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stað umræðu með þátt- töku hagsmunaaðila í sjávarútvegi í aðildarríkjunum um það hvernig mögulegt sé að betrumbæta fisk- veiðistjórnun í sambandinu. Er þar sérstaklega litið til þess að rann- saka kosti og galla kerfa með fram- seljanlegum veiðiheimildum, með það í huga að slík kerfi verði tekin upp sem víðast. Þórólfur Matthíasson, hagfræði- prófessor við Háskóla Íslands, sem var meðhöfundur að norsk- íslenskri skýrslu um endurskoð- aða sjávarútvegsstefnu ESB sem út kom árið 2003, segir að „ef það er til alvarlegrar umræðu innan Evrópusambandsins að taka upp framseljanlega kvóta í sjávarút- veginum þá er það eitthvað sem myndi gjörbreyta upphafsstöðu Íslands í aðildarviðræðum“. Val á fiskveiðistjórnunarkerfi er á valdi hvers aðildarríkis fyrir sig. En framkvæmdastjórnin vill víðtæka umræðu um það hvernig veiðiheimildum er úthlutað, hvort sem þar er um kvóta- eða sóknar- stýringu að ræða, í því skyni að komast nær niðurstöðu um það hvaða kerfi skilar bestum árangri. Framkvæmdastjórnin leggur mat á hin ýmsu kerfi í skjali sem hún lagði fram í lok febrúar, með tilliti til þess hversu vel þau gagn- ast til að uppfylla markmið sam- eiginlegu sjávarútvegsstefnunnar. Skjalinu er ætlað að þjóna sem grundvöllur fyrir umræðuna. Hún á að standa yfir allt þetta ár og framkvæmdastjórnin hyggst taka málið aftur upp í byrjun næsta árs. „Ég vil tryggja að þessi skýrsla leiði til víðtækrar umræðu um það hvernig fiskveiðiréttindi hafa þró- ast innan sambandsins og það hlut- verk sem þau geta gegnt við að koma á sjálfbærum fiskveiðum,“ sagði Joe Borg, sem fer með sjávar- útvegsmál í framkvæmdastjórn- inni. „Þessi umræða mun hjálpa til við að varpa ljósi á valkostina sem aðildarríkjunum standa til boða til að betrumbæta fiskveiðistjórnun- arkerfi sín. Þannig er þetta mikil- vægur þáttur í viðleitni okkar til að bæta fiskveiðistjórnun sameig- inlegu sjávarútvegsstefnunnar,“ sagði Borg. Markmiðið er að með umræð- unni um kerfi með framseljanleg- um veiðiheimildum séu kannaðar leiðir til að auka á gegnsæi slíkra kerfa, auka lagalegt öryggi og ná fram hagræðingu, sem einnig felur í sér að lágmarka kostnað fyrir samfélagið í heild. Því á umræðan einnig að beinast að neikvæðum hliðum slíkra kerfa, svo sem að veiðiheimildir safnist á fárra hendur á kostnað smærri útgerðarstaða, og hvernig hægt er að mæta þeim. Rætt um framseljan- legar veiðiheimildir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stað umræðu meðal hags- munaaðila í sjávarútvegi í aðildarríkjunum um leiðir til að bæta fiskveiðistjórnunar- kerfi þeirra, með sérstöku tilliti til kerfa með framseljanlegum veiðiheimildum. „Ég hlakka til að funda með Björk,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, formaður fjölskyldu- nefndar ríkisstjórnarinnar. Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi hefur skrifað honum opið bréf, þar sem hún segir að þrettán mán- uðir séu frá síðasta fundi nefnd- arinnar. Óski hún eftir fundi, enda ekki seinna vænna þar sem örfáir dagar séu til kosninga. „Fjölskyldunefnd er vettvang- ur innan ríkisstjórnarinnar, sem hefur fjallað um mörg mál sem hafa orðið að veruleika á kjör- tímabilinu, meðan nefndin var að störfum,“ segir Björn Ingi, sem kveður nefnd- ina ekki endi- lega hafa verið setta á laggirnar til að koma með beinar tillög- ur sjálf. „Sem dæmi um framgang mála má nefna ættleið- ingarstyrki. Þá höfum við rætt mikið um tólf mánaða fæðingarorlof, sem mér sýnist vera komin breið samstaða um að verði að veruleika á næst- unni. Við höfum rætt um gjald- frelsi í leikskólum, samþættingu skóla, frítíma og vinnudags og nú er Reykjavíkurborg að fara af stað með fjörutíu þúsund króna frístundakort fyrir börn á aldrin- um sex til átján ára.“ Björn Ingi kveður nefndina hafa staðið að rannsóknum, ásamt fleirum, að hag og velferð fjöl- skyldunnar. „Sjálfsagt má deila um hvort fundirnir séu nógu margir eða ekki, en aðalatriðið er að það er alltaf verið að vinna að því að gera Ísland fjölskylduvænna samfélag.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.