Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 2
 Átta Rúmenar sem lögreglan á Akureyri handtók og yfirheyrði í gær verða sendir úr landi í dag. Að sögn Daníels Guð- jónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri, voru mennirnir níu hluti sama hóps og Rúmenarnir nítján sem sendir voru af landi brott í fyrrakvöld. Rúmenarnir átta eru allir karl- menn, á milli tvítugs og sextugs. Kvartanir höfðu borist lögreglu um ónæði vegna mannanna, sem höfðu viðurværi sitt af því að leika á harmónikku á götum bæjarins og betla. Að loknum yfirheyrslum í gær voru mennirnir sendir til Reykja- víkur, og fengu þeir sem það kusu inni hjá lögreglu í nótt. Þeir sem fóru af landi brott á mánudag höfðu komið frá Noregi og Dan- mörku og voru sendir þangað aftur. Þessi átta manna hópur kom allur frá Noregi og fer með flugi frá Keflavík til Óslóar síðdegis í dag. Enginn í hópnum átti farseðil til baka og þarf því að kaupa flug- miða undir þá alla, eins og hluta þeirra sem fóru úr landi á mánu- dag. Slíkur farmiði kostar líklega á bilinu tuttugu til þrjátíu þúsund krónur. Daníel segir ekkert hafa komið fram við yfirheyrslurnar sem styrkti þann grun lögreglu að Rúmenarnir væru komnir til landsins á vegum erlends glæpa- hrings, sem hefði sent þá hingað að betla. Þórunn, er þetta risastórt vandamál? Sáttanefnd lögreglu hefur leitt tíu brotamál til lykta með sáttum gerenda og þolenda frá því að hún tók til starfa 1. október, að sögn Hafsteins G. Hafsteinssonar, verkefnisstjóra fyrir hönd dómsmálaráðuneytis- ins og lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Málin sem um ræðir eru minni háttar brotamál. „Flest öll þessara mála hefðu farið fyrir dómstóla að óbreyttu,“ segir hann. „Nefna má þrjú minni háttar líkamsárásarmál, þar sem ungar stúlkur komu við sögu, og tvö skemmdarverkamál þar sem sparkað var í bíla og þeir skemmdir. Þarna var meðal ann- ars um að ræða stúlkur sem höfðu verið vinkonur lengi, en svo slest upp á vinskapinn. Þær voru leiddar til sátta í sínum málum. Þá má nefna þrjú brotamál gegn valdstjórninni, þar sem drukknir menn slógu til lögreglu- manna við störf. Lögreglumenn- irnir hittu þessa menn, leiddu þeim brot þeirra fyrir sjónir og þeir kváðust ekki myndu gera svona nokkuð aftur.“ Auk þessa hafa brot falist í skemmdarverkum á húsum og eigendur þeirra hafa hitt skemmd- arvargana fyrir milligöngu sátta- manna. Sem stendur eru fjögur brota- mál í ferli, að sögn Hafsteins. Auk þessa hafa komið upp mál þar sem þolendur og gerendur hafa ekki viljað leiða mál til lykta, heldur kosið dómstólaleiðina. „Í þeim tilvikum er um að ræða ákvörðun hlutaðeigandi sem hafa þá ekki viljað mæta á sáttafundi,“ segir Hafsteinn. Sérþjálfaðir lögreglumenn sjá um að leiða brotaþola og geranda til sátta. Brotin þurfa að vera innan ramma sem skilgreindur er nákvæmlega samkvæmt tilmælum ríkissaksóknara. Innan rammans eru þjófnaðarmál, húsbrot og minni háttar líkamsárásir, svo dæmi séu nefnd. Þetta úrræði er ætlað sak- hæfu fólki sem hefur játað brot sitt, ekki áður gerst sekt um alvarleg eða ítrekuð hegningarlagabrot og hefur vilja til að leiða sín mál til lykta í sáttamiðlun. „Sáttamiðlunin er tilraunaverk- efni til tveggja ára, sem nær um allt land,“ segir Hafsteinn. „Nú erum við að hefja kynningarátak, þar sem við munum kynna þetta úrræði fyrir öllum embættunum úti á landi og fá þau til að taka þetta upp. Það er mikill vilji en það þarf líka að láta verkin tala.“ Lögregla leitar sátta í líkamsárásarmálum Líkamsárásarmál, þjófnaðarmál, brot gegn valdstjórninni og skemmdarverk eru meðal þeirra mála sem komið hafa á borð sáttamanna lögreglunnar. Sátt hefur náðst í tíu málum, fjögur eru í ferli en sumir velja dómstólaleiðina. Átta Rúmenar úr landi í dag Íslensk NýOrka vinnur að því að setja vetnis- ljósavél um borð í hvalaskoðunar- skipið Eldingu. Ætlunin er að sigla út frá Reykjavíkurhöfn á sumardaginn fyrsta á næsta ári og gera tilraunir með vetnisvél- ina á hafi úti. Jón Björn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku, segir í samtali við Markaðinn, að gangi verkefnið eftir muni þetta verða í fyrsta sinn í veröldinni sem vetnisvél er sett í skip. Hann segir að þekking Íslendinga á vetni muni verða verðmæt eign í framtíð- inni. Vetnisvél í Eld- inguna að ári Íbúar Austur- Tímor ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta í úrslita- umferð forsetakosninga. Í fram- boði eru Jose Ramos-Horta, hand- hafi friðarverðlauna Nóbels og Francisco „Lu-Olo“ Guterres en þeir hafa báðir heitið því að hlíta niðurstöðum kosninganna. Austur-Tímor hlaut sjálfstæði árið 1999 eftir tuttugu og fjögurra ára harðstjórn Indónesíu. Samein- uðu þjóðirnar fóru með stjórn landsins til ársins 2002. Í fyrra brutust út átök þegar þáverandi forsætisráðherra landsins, Mari Alkatiri, rak þriðjung hersins eftir uppreisn hans. Um 155 þúsund manns flúðu heimili sín og 37 létu lífið í átökunum áður en stjórnin féll. Þá tók Ramos-Horta við embætti forsætisráðherra. Friði var komið á eftir að Ástralir sendu 1200 manna friðar- gæslulið til landsins. Flestir telja Ramos-Horta sigur- stranglegri en fimm frambjóðend- ur úr fyrri kosningaumferðinni hafa hvatt stuðningsmenn sína til að kjósa hann. Fransisco Guterres er forsetaefni Fretelin-flokksins sem tengdist vopnaðri andstöðu gegn stjórn Indónesa. „Það var sagt við mig að líklega væri ástæðan fyrir þessari athygli sú að keppnin hefur verið svolítið einokuð af kvenlegum ungum mönnum. Ég þyki víst svolítið karlmannlegri en flestir hérna,“ sagði Eiríkur Hauksson, þegar hann var spurður út í ástæður hinnar miklu kvenhylli sem hann nýtur í Finnlandi. „Við erum nú búin að vera saman í 32 ár þannig að ég nenni nú varla að vera afbrýðisöm núna,“ sagði Helga Steingríms- dóttir, kona Eiríks, þegar Hanna, sem keppir fyrir hönd Finnlands, rak Eiríki rembingskoss á vangann. Þykir mesti karlmaðurinn Jacques Chirac, fráfarandi forseti Frakklands, tók í gær þátt í hátíðahöldum í París í tilefni af 62 ára afmæli stríðslok- anna í Evrópu. Þetta var í síðasta sinn sem franskur forseti með eigin minningar um stríðsárin fer fyrir hinni árlegu minningarat- höfn. Ný kynslóð tekur við forseta- embættinu í næstu viku, þegar Nicolas Sarkozy, sem er fæddur árið 1955, tekur við af Chirac. Óeirðir í kjölfar sigurs Sarkozy í úrslitaumferð forsetakosning- anna á sunnudag héldu áfram í fyrrinótt. Eitt síðasta embættisverkið Sundfélagið Óðinn hyggst gera athugsemdir við hvernig staðið var að breytingu á deiliskipulagi á lóð sundlaugar Akureyrar fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar. Þar á að reisa 2000 fermetra líkamsræktarstöð. „Þetta er allt hið undarlegasta mál og illa að staðið,“ segir Ásta Birgisdóttir, formaður Óðins. Sundfélagið taldi þetta „vafa- sama stjórnsýslu“ og safnaði um 1.400 undirskriftum í mótmæla- skyni. Ætlar að gera athugasemdir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.