Fréttablaðið - 09.05.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 09.05.2007, Síða 6
 Bandamaður Slobodans Milosevic heitins var í gær kjör- inn forseti serbneska þingsins, en kjörið markar endurkomu öfga- þjóðernissinna til valda og áhrifa í landinu. Tomislav Nikolic, einn af leið- togum hins öfgaþjóðernissinnaða Róttæka flokks Serbíu, var kjör- inn í þetta áhrifamikla embætti með fulltingi þingmanna íhalds- flokks fráfarandi forsætisráð- herra, Vojislavs Kostunica. Nikolic fékk atkvæði 142 af 244 þing- mönnum sem viðstaddir voru á maraþonþingfundi sem stóð yfir í nærri fimmtán tíma og lauk ekki fyrr en aðfaranótt þriðjudags. Frambjóðandi Lýðræðisflokksins, sem er hliðhollur nánari tengslum við Vesturlönd, fékk 99 atkvæði. Með kjörinu varð Nikolic fyrsti öfgaþjóðernissinninn til að kom- ast í hátt embætti síðan Milosevic var bolað frá völdum árið 2000 í byltingu sem mikill meirihluti almennings studdi. Valið á Nikolic endurspeglar vax- andi áhrif þjóðernissinna í stjórn- málum landsins þegar hillir undir að Kosovo-hérað verði lýst sjálf- stætt samkvæmt áætlun Samein- uðu þjóðanna. Að vestræn-sinnaðir lýðræðisflokkar landsins skyldu ekki geta komið sér saman um stjórnarmyndun frá því þingkosn- ingar fóru fram hinn 21. janúar ýtir einnig undir þessa þróun. Nikolic kjörinn þingforseti Magnús Þór Hafsteins- son, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur óskað eftir því að sjávarútvegsnefnd þingsins komi saman, meðal annars til að ræða um upplýsingarnar sem fram komu í þætti Kompáss á sunnu- dag um kvótamisferli. Samþykki þriðjungs nefndar- manna þarf til að nefndin sé kölluð saman og hafa fulltrúar Samfylkingarinnar í nefndinni, Jón Gunnarsson og Jóhann Ársælsson, samþykkt tillöguna. Magnús segir ljóst að kalla verði nefndina saman í vikunni, fyrir kosningar, en ekki liggur fyrir hvenær það verður. Kölluð saman vegna Kompáss Óánægju gætir meðal kennara og skólastjórnenda í Reykjavík sem fengu sendan tölvupóst frá fyrrverandi for- manni menntaráðs Reykjavíkur, Stefán Jóni Hafstein, sem hann sagði ætlað að kynna fréttasíðu sína og „leggja lið í kosningabar- áttunni“. Stefán Jón, sem er í leyfi sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar til að sinna starfi fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Namibíu, sagði meðal annars í tölvupóstinum kannanir sýna að Samfylking- in væri eina for- ystuaflið utan ríkisstjórnar og að ríkisstjórnin héngi á blá- þræði. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður menntaráðs, segir nokk- uð ljóst að Stefán Jón hafi nýtt sér aðgang að netföngum starfsmanna Reykjavíkurborgar. „Það er ljóst að Stefán Jón hefur sent kennurum og skólastjórnend- um póst sem í er kosningaáróður. Þetta hefur ekki mælst vel fyrir hjá stórum hópi og mönnum finnst almennt mjög óviðeigandi að senda póst með þessum hætti og dreifa þannig kosningaáróðri. Ég myndi ekki senda kennurunum slíkan póst.“ Ekki náðist í Stefán Jón við vinnslu fréttarinnar. Atvinnufrelsi í fiskveiðum verður að innleiða á nýjan leik og virða rétt sjávar- byggða til nýtingar nærliggjandi fiski- miða. Aðeins þannig verður aftur byggt undir atvinnuöryggi í sjávarbyggðum. Allar byggðir þurfa festu í atvinnumál sín. Góðar samgöngur eru skilyrði þess að fólkið á landsbyggðinni njóti lífskjara og samneytis við nágranna sína með sama hætti og þekkist á suðvesturhorni landsins. Fjölbreytt mannlíf og fólksfjölgun næst einungis með góðum samgöngum og tryggri atvinnu. Frjálslyndi flokkurinn vill stefna til jafnra tækifæra og lífskjara um allt land og hefur skýrar tillögur um hvernig þeim árangri megi ná. Við viljum jafna tækifærin á landinu. Það er gríðarleg stemning í kringum Samfylkinguna þessa dagana, baráttugleðin skín úr hverju andliti frambjóðenda okkar og stuðningsmanna og viðbrögð almennings við stefnu okkar eru mjög uppörvandi. Það er mikil eftirvænting í loftinu enda er að skapast tækifæri til að mynda nýja ríkisstjórn með aðild okkar jafnaðarmanna. Ríkisstjórn sem setur á oddinn að ná jafnvægi í efnahagsmálum, bæta hag barna og aldraðra og létta greiðslu- byrði heimilanna. En það getur brugðið til beggja vona og hvert atkvæði getur skipt máli á laugardaginn. Kjósum betri framtíð! Nú eru aðeins þrír dagar til kosninga. Fylgi Framsóknar- flokksins hefur lyfst í skoðana- könnunum, sem er í takt við þann velvilja sem við frambjóðend- ur flokksins finnum fyrir meðal almenn- ings. Samt sem áður er ljóst að ef niðurstaða kosninga verður ekki betri en skoðana- kannanir gefa til kynna, þá hverfur Framsóknarflokkurinn úr ríkisstjórn. Ég trúi því hins vegar ekki að Sjálfstæðisflokkn- um verði einum þakkað fyrir þann mikla árangur og framfarir sem orðið hafa á undanförnum árum. Það er ekki í takt við það að hlutfall þeirra sem vilja Framsóknarflokkinn áfram í ríkisstjórn hefur farið vaxandi. Við ætlum því að bretta upp ermarnar og láta heldur betur til okkar taka á lokasprettinum. Ánægjulegt er að sjá að núver- andi ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks virð- ist vera fallin sam- kvæmt nýjustu skoð- anakönnunum og stefnir því í spennandi lokaslag. Breytingar eru í farvatninu og maður finnur að meðal kjósenda ríkir mikil eft- irvænting um að spilin verði stokkuð upp á laugardaginn. Fólk veit hvar það hefur Vinstri græn og ganga kjósendur að því vísu að besta leiðin til að snúa við blaðinu og setja náttúru, velferð og jafnrétti í forgang er að styðja okkur með atkvæði sínu. Skoðanakannanir hafa sýnt að þegar Íslandshreyfingin fær yfir fimm prósenta fylgi fær hún þrjá þing- menn kjörna og stóriðjustefnan fellur. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórn- málafræði, hefur bent á þetta. Þrefalt fleiri menn spretta upp hjá Íslandshreyfingunni við tveggja prósentustiga fylgis- aukningu en hjá stóru flokkun- um. Þetta eru dýrmætustu atkvæðin í kosningunum. Íslandshreyfingin er hægra megin á miðju og könnun í gær sýnir að stærsti hluti fylgis hennar kemur frá Sjálfstæðis- flokknum, enda hafa 38 prósent sjálfstæðismanna verið ósátt við stóriðjustefnuna samkvæmt nýlegri könnun. Mér fannst sérstaklega ánægju- legt að sjá fréttir um niðurstöður alþjóðlegrar skýrslu Save the Children samtakanna þar sem fram kom að Ísland væri ásamt Noregi og Svíþjóð það land sem byði upp á bestu aðstæðurnar fyrir mæður til að ala upp börn sín. Hverri þjóð er mikilvægt að búa börnum hagstæð skilyrði til að alast upp og það höfum við gert hér, m.a. með því að hækka barnabætur á þessu kjörtímabili og ekki síst með stofnun Fæðingarorlofssjóðs á sínum tíma. Við viljum halda áfram á þessari braut og tryggja að aðstæður barnafólks verði í fremstu röð. Ætti að leyfa sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum? Hefði verið rétt að auglýsa stöðu forstöðumanns nýs fagskóla á Miðnesheiði, sem Hjálmar Árnason hlaut?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.