Fréttablaðið - 09.05.2007, Síða 38

Fréttablaðið - 09.05.2007, Síða 38
Kosningavertíð- in er ekki í uppá- haldi hjá mér. Ég hef alla tíð feng- ið köfnunartilfinn- ingu, ef ekki útbrot, þegar pólitíkusarnir byrja að karpa. Og ég man að minnsta kosti ekki eftir stjórnmálaumræð- um sem hafa ekki endað í karpi svona í svipinn. Það myndi henta mér mun betur að fá stefnuskrár flokkanna sendar heim í þægileg- um bæklingum sem ég gæti borið saman yfir kaffibolla og súkku- laði. Í seinni tíð hef ég þar að auki fengið snert af talnablindu sem veldur því að skoðanakannanirnar sem einkenna þetta tímabil ofar öllu öðru valda mér eiginlega bara hugarangri og hausverk. Prósent- ur, fjárhagsáætlanir og vísitölur flokkast í sama hólf. Ég var aldrei sérstaklega hrif- in af stærðfræði þegar ég sat á grunnskólabekk hérna í denn. Ég var ekkert óskaplega léleg í henni, ég var bara ein af þeim stóra hópi fólks sem skildi ekki alveg hvernig algebra á að gagn- ast manni í daglegu lífi. Svo ekki sé nú minnst á lógaritma, heildun, diffrun og allan þennan aragrúa af hugtökum sem ég hef ekki lengur hugmynd um hvað þýðir. Ég er óðum að reka mig á að stærðfræðikennararnir höfðu rétt fyrir sér. Maður þarf að nota stærðfræði í lífinu, til dæmis á kosningavertíð. Að mínu viti er líka ekki til neitt gott uppfletti- rit í námsgreininni, ekki eins og wikipedia sem bætir upp fyrir alla sögutímana sem ég skrópaði í á augabragði. Mig sárvantar slíkt rit, og fyrst að það skortir lýsi ég eftir „Stærðfræði fyrir fávita“ í takt við útlensku „for idiots“ bæk- urnar sem til eru um nánast hvaða efni sem er. Eða hreinlega „Pólitík fyrir fávita,“ hún myndi ekki held- ur koma sér illa. Ég er svartsýnni en svo að ég haldi að þær bækur verði til fyrir laugardaginn. Þess vegna verður væntanlega kveikt á Eurovision í mínu sjónvarpi. Tólf, tíu og átta stig er hæfilega flókinn reikning- ur fyrir mig. 2.980 kr. BUMP’N GO! 2.480 kr. SUPERMAN-BÚNINGUR 1.980 kr./stk. SPIDERMAN OG FÉLAGAR 3.980 kr. VEF-BYSSA Súperhetjufarartæki! Spiderman fylgir! HETJU dagar Spiderman bíll sem skýtur kóngulóavef - Spiderman fylgir! BATTLE ACTION 5.980 kr. Uppblásanlegur!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.