Fréttablaðið - 20.05.2007, Side 13

Fréttablaðið - 20.05.2007, Side 13
ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 3 76 72 0 5/ 07 • Orkuveitan styrkir skógrækt í Skólaskógum, Bernskuskógi, Straumnesi við Úlfljótsvatn og á fleiri stöðvum. Með skógræktinni leggur Orkuveitan sitt af mörkum til þess að binda CO2 í andrúmsloftinu og hjálpar til við að koma í veg fyrir gróðurhúsaáhrifin. www or.is Frá árinu 1990 hefur OR gróðursett meira en 350 þúsund plöntur og þannig bundið tæplega 1.400 tonn af koltvísýringi sem er töluvert meira en fellur til vegna eigin orkunotkunar. Í ljósi sögu og stefnu OR í umhverfismálum er eðlilegt framhald að fyrirtækið eigi aðild að Kolviði. Með þátttöku sinni mun OR skuldbinda sig til að binda meiri koltvísýring en fellur til af orkunotkun fyrirtækisins sjálfs og allra starfsmanna hennar, hvort sem er í vinnutíma eða frítíma. Við hvetjum landsmenn til að gera slíkt hið sama og kolefnisjafna bílinn sinn á www.kolvidur.is Við viljum gera enn betur FÆDDUST ÞENNAN DAG Guðfríður Lilja Grétarsdóttir var endurkjörin forseti Skáksam- bands Íslands á aðalfundi sam- bandsins í gær. Á sama fundi voru konur kjörnar í meirihluta í stjórn Skáksambandsins. „Það eru held ég merkari tíðindi en flestir gera sér grein fyrir,“ sagði Guðfríður Lilja í samtali við Fréttablaðið. „Skákheimurinn, og íþróttirnar yfirleitt, eru náttúrulega gríðar- legur karlaheimur í svona stór- um samböndum,“ sagði Guðfríð- ur. Aðspurð hvort vegur kvenna fari vaxandi innan skákheims- ins segist Guðfríður ekki ætla að skera úr um það. „Það er að minnsta kosti flott skref í rétta átt að þær séu kosnar á aðalfundi í stjórn Skáksambandsins,“ sagði hún. „Nú skora ég bara á Knatt- spyrnusambandið að gera slíkt hið sama.“ Guðfríður sagði áframhaldandi forsetastarf leggjast vel í sig. „Þetta er búið að ganga vel og ég hlakka bara til að halda áfram,“ sagði hún. Á dagskrá Skáksam- bandsins eru helst erlend mót í sumar. „Við ætlum að senda ungl- ingalandsliðið á Ólympíuskákmót ungmenna, sem hefur ekki verið gert í fleiri ár. Við höfum náð að byggja upp fjárhagsstöðu sam- bandsins á undanförnum árum, svo við munum gera ýmislegt sem ekki hefur fengist fjármagn fyrir áður,“ sagði hún. Guðfríður segir Skáksambandið jafnframt stefna að því að auka umsvif sín úti á landi. Haldið verður hraðskákmót í Bolungarvík í haust, samband- ið stendur fyrir stórri, alþjóðlegri skákhátíð á starfsárinu og Guð- fríður kveðst láta sig dreyma um alþjóðlegt kvennaskákmót. „Svo höldum við áfram að breiða út fagnaðarerindið,“ sagði hún og hló við. Konur nú í meirihluta

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.