Fréttablaðið - 20.05.2007, Page 14

Fréttablaðið - 20.05.2007, Page 14
E líza fær sér kaffi amer- íkanó með espressó út í. Það er stærðarinnar koffínskammtur enda segist hún vera koffín- fíkill. Ég spyr hvað hún hafi eigin- lega verið að bauka síðustu miss- erin. „Skandinavía var síðasta tónlist- ardæmið sem ég var í,“ segir hún, „platan okkar kom út árið 2005. Eftir það var ég komin með nóg af London í bili og þreytt á þessu hjakki svo ég flutti upp í sveit. Var í Cornwall eitthvað að hippast og byrjaði þar að semja efnið á vænt- anlegu plötuna mína. Svo ákvað ég að skipta um gír, kom heim og fór í Listaháskólann síðasta haust. Tók eins árs kúrs og aflaði mér kenn- araréttinda.“ Þú varst samt búin að vera í ein- hverju námi fyrir þann tíma, er það ekki? „Jú, ég er útskrifuð úr Söngskól- anum og hafði líka verið í fram- haldsnámi í söng í London. Er há- menntuð óperusöngkona, sjáðu til. Leyni á mér.“ Þú hefur fundið þessa leið út úr meikdraumnum? ,,Þetta er mjúk lending en draum- urinn blundar alltaf í manni en kannski á öðrum forsendum. Kennsluréttindin er góð leið til að nota alla þessa reynslu og miðla henni.“ Segðu mér frá sólóplötunni þinni væntanlegu. ,,Hún heitir Empire Fall og kemur út í sumar. Ég gerði hana til hlið- ar við námið, tók hana upp með honum Kidda í Hjálmum, bæði í Geimsteini og í Hljóðrita. Ég fékk Guðmund Pétursson til að spila á gítar og bassa og þegar hann kom inn þá bara gerðist eitthvað. Ég var búin að hjakka eitthvað sjálf en þegar hann kom inn þá kvikn- aði eitthvað alveg nýtt. Helgi Svavar úr Flís og Biggi Baldurs spiluðu á trommur en annars spila ég rest.“ Var ekki stórt skref að gerast sóló eftir allar þessar hljómsveit- ir? ,,Ég held ég hafi loksins verið til- búin núna. Fyrst eftir að Bella- trix hætti ætlaði ég að vera voða- mikið sóló og var að spila eitt- hvað en fannst það rosalega erfitt. Leið eins og fiski á þurru landi að vera ekki með þennan stuðnings- hóp sem hljómsveit er. Nú held ég að ég geti loksins staðið undir þessu.“ Er þetta öðruvísi tónlist en þú hefur gert hingað til? ,,Já, ég held það. Söngstíllinn hjá mér er mikið breyttur, miklu af- slappaðari. Ég hef alltaf verið á garginu en núna reyni ég að gera eins lítið og ég get. Þetta er mini- malískt rokk og popp. Enskir og ís- lenskir textar í bland. Ég er búin að stofna mitt eigið merki til að gefa þetta út, Lavaland Records. Ég er búin að gera dreifingarsamninga hér heima og í Englandi og Banda- ríkjunum. Þetta gerðist allt mjög eðlilega. Ég var ekkert að hlaupa á eftir þessu heldur buðust mér bara þessi tækifæri. Mér finnst mjög spennandi að geta stjórnað þessu sjálf og þurfa ekki að vera að væla í einhverjum körlum.“ Þú ert með gífurlega poppmeik- reynslu eftir allan tímann með Kolrössu/Bellatrix. Hver er helsti munurinn á íslenska poppheimin- um og þeim enska? ,,Þetta er náttúrulega mjög ólíkt. Íslenski tónlistarbransinn er í rauninni verndaður vinnustaður. Það er yndislegt að koma hingað aftur, eins og að detta í dúnsæng. Það er ekki þessi harka hér eins og úti. Þar er harka og töffaraskapur og þú verður alltaf að berjast fyrir þínu.“ Þið í Bellatrix voruð í tvö ár í stífu meikharki í London. Hvernig fór það með fólk? ,,Misjafnlega held ég, en í heild- ina þá var þetta skemmtileg lífs- reynsla. Þessi ár eru allavega með því skemmtilegra sem ég hef gert. En ég er kannski bara vitleysing- ur sem hefur gaman af ævintýra- mennsku.“ Þið voruð í Keflavík í góðu stuði, unnuð svo Músiktilraunir og gerð- Dr. Gunni tekur viðtal Íslenski tónlistarbransinn er v Það hefur lítið heyrst frá Elízu í Bellatrix um nokkra hríð, eða Elízu Maríu Geirsdóttur Newman, eins og hún heitir í símaskránni. Það er samt allt á fullu hjá henni, fyrsta sóló- platan á leiðinni og hún nýkomin með kennara- réttindi. Ég spjallaði við hana um nútíðina og fortíðina í meikharkinu í London.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.