Fréttablaðið - 20.05.2007, Side 86

Fréttablaðið - 20.05.2007, Side 86
Örlög Eiríks í Eurovision mestu vonbrigðin Fangarnir í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg hafa ekki setið að- gerðarlausir undanfarna daga því þeir hafa verið að stinga upp og setja niður kartöflur og fleira í garðinum. „Hugmyndin kom bara þegar við sátum hér þrír á spjalli, ég, annar vistmaður og Reynir fangavörður,“ segir Davíð Garð- arsson, sem afplánar nú dóm í Hegningarhúsinu. „Þessi blettur var hérna og lítið notaður í annað en að labba á honum. Reynir tók svona vel í hugmyndina og kýldi þetta í gegn. Svo kom hann einn daginn með hrífur og haka þannig að þá var ekkert aftur snúið,“ segir Davíð og hlær. „Það var haugur hér af grjóti sem við þurftum að byrja á að færa áður en við settum moldina í beðin þannig að þetta var heilmikil vinna,“ bætir hann við. „Þegar beðin voru tilbúin sett- um við niður kartöflur, gulræt- ur, spergilkál og rabarbara sem fangaflutningamennirnir gáfu okkur enda hefur fréttin um garð- yrkjuna farið eins og eldur um sinu út um allt síðan við byrjuð- um, þannig að við erum búnir að gera garðinn frægan,“ segir Davíð hlæjandi og bætir því við að allir verði jú að rækta sinn eigin garð. Davíð segir kartöflurnar reynd- ar sérstaklega ætlaðar í skóinn hjá þeim sem ekki séu tilbún- ir til að taka á fangelsismálun- um en bætir síðan við alvarlegri í bragði: „Hugmyndin á bak við þetta er í rauninni sú að maður situr hér inni og reynir að finna eitthvað jákvætt í þessu umhverfi en það getur verið erfitt. Hvað er þá jákvæðara en að vera að rækta eitthvað, hugsa um eitthvað og hirða eitthvað?“ Þá segir hann að þetta sé að vissu leyti táknrænt og gefi þeim mjög mikið. „Ég vona að ég fái að vera hér eitthvað áfram og hlakka til þegar arfinn fer að koma upp. Síðan vona ég að ég geti komið hingað aftur í haust til að taka upp kartöflurnar en það veltur á því hvort fangaflutningamennirnir séu tilbúnir til að skutla mér. Ann- ars ætlum við að fá einhverja til að taka við þessu og halda þessu gangandi,“ segir Davíð og bætir því við að þeir væru alveg tilbúnir til að rækta eitthvað fleira í garð- inum enda séu þar kjöraðstæður fyrir hvers kyns ræktun. „Það er ekki nokkur spurning um að það er hægt að gera miklu fleira hér í garðinum. Við erum búnir að sýna að það sé hægt að gera eitthvað án þess að það kosti mikla peninga eða fyrirhöfn. Það er bara einn fangavörður sem hrindir þessu í framkvæmd svo það ætti að vera hægt að gera mun meira ef þeir sem stjórna og ráða einhverju setja sig í málið.“ Davíð segir það muna öllu að hafa einhverja afþreyingu og eitt- hvað að stefna að því það stytti tímann heilmikið. „Þetta er bara spurning um að tala við menn sem eru jákvæðir og tilbúnir til að gera eitthvað eins og Reynir, sem er með fullt af hugmyndum,“ segir Davíð og bætir því við að nú eigi eflaust fleiri vistmenn eftir að taka þátt í ræktuninni. „Þeir koma hlaupandi um leið og þeir sjá okkur hina orðna brúna og sæta hér úti í garði,“ bætir hann við og hlær. „Áskrifendahópurinn er eiginlega orðinn eins og ein þjóð í sýndarveruleika og svona viðbrögð eru ekki óalgeng,“ segir Hilm- ar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, sem á og rekur netleikinn Eve Online. Í bandaríska dagblaðinu Miami Herald var nýlega fjallað um allsérstakt mál þar sem notendur Eve Online syrgja fallinn félaga í leiknum sjálfum. Verslunarkonan Dorothy Jean McReynolds var myrt fyrir framan heimili sitt í Holly- wood skömmu áður en hún átti að bera vitni í sakamáli. Morðinginn braust inn á heimili hennar og skaut hana til bana og særði nítj- án ára dóttur. Dorothy og eiginmaður henn- ar, Kenny McReynolds, voru virkir notend- ur í Eve Online-leiknum, Kenny sem iðnað- arsérfræðingurinn Fordfan og Dorothy sem aðstoðarmaður hans. „Þetta er hræðileg- ur atburður sem þarna átti sér stað og það finna allir spilarar til samkenndar þegar eitthvað kemur fyrir meðspilarana, rétt eins og þegar Íslendingar í útlöndum lenda í ein- hverjum hremmingum. En eftir því sem leik- urinn hefur stækkað hefur samhugur á borð við þennan orðið algengari,“ útskýrir Hilm- ar og nefnir sem dæmi að þegar hamfarirn- ar í Suðaustur-Asíu hafi riðið yfir stofnuðu áskrifendur Eve styrktarsjóð að eigin frum- kvæði og var upphæðin afhent Rauða krossi Íslands. Í frétt Miami Herald kemur fram að eig- inmanninum hafi borist blóm og samúðar- kveðjur frá löndum á borð við Ísland, Hol- land og England. Og í samtali við blaðið kemur fram að hann sé hrærður yfir þeim viðbrögðum sem spilendur Eve Online hafa sýnt. Þá hafa yfir fimm hundruð manns skrifað minningarorð um Dorothy og per- sónu hennar, Beachie88, á spjallþráð sem var stofnaður vegna þessa atburðar. Notendur Eve Online syrgja fallinn félaga „Lærdómur vikunnar er sá hvað Sjálfstæðisflokkurinn er flinkur við að hafa vinstri öflin að fíflum. Það hlýtur að vera hlegið dátt í Valhöll.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.