Fréttablaðið - 20.05.2007, Side 88
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alla daga
- Lifið heil
OMXI15 var 7.981,15 á fimmtu-dagsmorgun, þegar ég pant-
aði fjórar heilsíður í blöðunum, og
Dow Jones stóð í 13.468,03 þegar
Geir og Imba Sól opinberuðu leyni-
lega trúlofun sína og ég varð að af-
panta þessar auglýsingar. Ég ætlaði
að skora á Sjálfstæðisflokk og Fram-
sókn að halda áfram að byggja upp
gott þjóðfélag fyrir skapandi kap-
ítal. Ég var of seinn. Stjórnarslitin
eru disaster! Ég sem hélt að Geir og
Grani væru að spúna í góðum gír í
stjórnarráðinu.
leið eins og Steingrími útund-
an. Við Baddi fengum lánaða þotuna
hjá Jóa og reyndum að jafna okkur
með exklúsivv eskort og mass as á
lúxushóteli í London. Við jöfnuðum
okkur ekki neitt. Þegar við komum
heim í gær vorum við í framan eins
og Steingrímur, gráir og stífir eins
og hafragrautur sem einhver hefur
gleymt í ísskápnum. Það eru milj-
arðar í húfi! Skilja menn það ekki?!
Fólk eins og við Baddi getur flog-
ið út á einkaþotunum með alla sína
peninga og aldrei sést meir.
þannig að stjórnmálamenn
ráði einhverju eftir að við í grúpp-
um og bönkum og gömlum sam-
bandsklíkum erum búnir að fá það
sem við vildum fá hjá íhaldinu og
framsókn. Hún er bara eitthvað
svo mikið dressman þessi tilfinning
að hafa hvunndagslega krata með
ódýr bindi og dinglandi lokka í nið-
urdregnum eyrnasneplum að þvæl-
ast fyrir uppbyggingu og útrás. Svo
á eftir að einkavæða virkjanirnar.
Nú veit enginn hvort við Hámi fáum
tækifæri til að nota Sjálfsmínbanka
og Energroup til að kaupa íslenska
vatnsorku á botnprís.
hafði mikið fyrir auglýsingunni
sem aldrei birtist. Það átti að vera
stór litmynd og standa undir í fyr-
irsögn: „Billjón hvetur B og D til að
starfa áfram saman í ríkisstjórn.“
Ég hafði fyrst verið að hugsa um
að nota mynd af íslensku landslagi
– frá Þingvöllum, af Herðubreið eða
af Guðna Ág. Svo datt mér í hug að
væri sterkara að hafa mannsmynd,
t.d. af Jóni „eigi skal víkja“ Sigurðs-
syni (ekki af Jóni „ekkert stopp“,
núna Jóni „stopp“). Loks féllst ég á
það með Mallí að væri sterkast að
nota mynd af sjálfum mér. Auglýs-
ingar með myndum af fólki, sem
almenningur treystir, eins og til
dæmis Lalla Jóns, eru miklu áhrifa-
ríkari. Ég er viss um að sterk skila-
boð frá mér á fjórum heilsíðum
hefðu knúið menn til að halda áfram
ríkisstjórnarsamstarfinu. Og það
hefði ekki staðið á Sjálfsmínbanka
að liðka fyrir uppbyggingunni.
Fyrir mér hefðu þeir jafnvel mátt
skipa hvaða djakkass sem er í emb-
ætti ríkissaksóknara. En ég var of
seinn að auglýsa. Þetta er búið. Bak-
herbergin eru auð. Í bili.
Biljónsdagbók
20.5.