Fréttablaðið - 20.05.2007, Page 88

Fréttablaðið - 20.05.2007, Page 88
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alla daga - Lifið heil OMXI15 var 7.981,15 á fimmtu-dagsmorgun, þegar ég pant- aði fjórar heilsíður í blöðunum, og Dow Jones stóð í 13.468,03 þegar Geir og Imba Sól opinberuðu leyni- lega trúlofun sína og ég varð að af- panta þessar auglýsingar. Ég ætlaði að skora á Sjálfstæðisflokk og Fram- sókn að halda áfram að byggja upp gott þjóðfélag fyrir skapandi kap- ítal. Ég var of seinn. Stjórnarslitin eru disaster! Ég sem hélt að Geir og Grani væru að spúna í góðum gír í stjórnarráðinu. leið eins og Steingrími útund- an. Við Baddi fengum lánaða þotuna hjá Jóa og reyndum að jafna okkur með exklúsivv eskort og mass as á lúxushóteli í London. Við jöfnuðum okkur ekki neitt. Þegar við komum heim í gær vorum við í framan eins og Steingrímur, gráir og stífir eins og hafragrautur sem einhver hefur gleymt í ísskápnum. Það eru milj- arðar í húfi! Skilja menn það ekki?! Fólk eins og við Baddi getur flog- ið út á einkaþotunum með alla sína peninga og aldrei sést meir. þannig að stjórnmálamenn ráði einhverju eftir að við í grúpp- um og bönkum og gömlum sam- bandsklíkum erum búnir að fá það sem við vildum fá hjá íhaldinu og framsókn. Hún er bara eitthvað svo mikið dressman þessi tilfinning að hafa hvunndagslega krata með ódýr bindi og dinglandi lokka í nið- urdregnum eyrnasneplum að þvæl- ast fyrir uppbyggingu og útrás. Svo á eftir að einkavæða virkjanirnar. Nú veit enginn hvort við Hámi fáum tækifæri til að nota Sjálfsmínbanka og Energroup til að kaupa íslenska vatnsorku á botnprís. hafði mikið fyrir auglýsingunni sem aldrei birtist. Það átti að vera stór litmynd og standa undir í fyr- irsögn: „Billjón hvetur B og D til að starfa áfram saman í ríkisstjórn.“ Ég hafði fyrst verið að hugsa um að nota mynd af íslensku landslagi – frá Þingvöllum, af Herðubreið eða af Guðna Ág. Svo datt mér í hug að væri sterkara að hafa mannsmynd, t.d. af Jóni „eigi skal víkja“ Sigurðs- syni (ekki af Jóni „ekkert stopp“, núna Jóni „stopp“). Loks féllst ég á það með Mallí að væri sterkast að nota mynd af sjálfum mér. Auglýs- ingar með myndum af fólki, sem almenningur treystir, eins og til dæmis Lalla Jóns, eru miklu áhrifa- ríkari. Ég er viss um að sterk skila- boð frá mér á fjórum heilsíðum hefðu knúið menn til að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfinu. Og það hefði ekki staðið á Sjálfsmínbanka að liðka fyrir uppbyggingunni. Fyrir mér hefðu þeir jafnvel mátt skipa hvaða djakkass sem er í emb- ætti ríkissaksóknara. En ég var of seinn að auglýsa. Þetta er búið. Bak- herbergin eru auð. Í bili. Biljónsdagbók 20.5.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.