Tíminn - 10.08.1980, Síða 9
Sunnudagur 10. ágúst 1980.
9
bættisma&ur og kunnur aö þvi
að dæma strangt. Þó var eins og
honum likaði þetta ekki alls
kostar. Hann benti verjand-
anum d aö hann gæti krafist frá-
visunar vegna formgalla við
málsoknina. Tryggingarfé var
safnaö i skyndi og Carr lét De-
Palma lausan um tima gegn
tryggingu.
Þannig htífst þriggja ára
martröð hjá fjölskyldu
DePalma.
Hann reyndi að fá lögfræðinga
til að vinna i máli sinu en það
gekk illa. Hann gat ekki greitt
þeim fyrirfram eins og þeir
kröfðust. Hann fékk lán hjá for-
eldrum og tengdaforeldrum,
bræðrum sinum og mági. Hús
sitt veösettu þau hjónin og seldu
húsgögn. Sjálfur vann hann tvö-
faldan vinnudag.
John Bond kemur til
sögunnar.
Þá var það i oktdber 1968 að
hann hitti John Bond. Bond
hafði unnið hjá rannsóknarlög-
reglunni en vann nú sjálfstætt.
Hann neitaði að taka málið að
sér. Það varekki álitlegt mál og
nóg annað að gera.
William DePalma örvingl-
aðist og talaði mikið um sak-
leysi sitt. örvænting hans og
ofsi höfðu áhrif á John Bond.
Hann fór að treysta honum.
Fyrst fékk hann þó DePalma til
að mæta hjá svokölluðum lyga-
mæli. Hann stóðst þá raun
þannig að mælirinn sýndi engin
tortryggileg viðbrögð. Bond tók
málið að sér án fyrirfram-
greiðslu.
Fyrst kannaði hann skýrslur
um öll bankarán i grenndinni á
seinni árum til að svipast eftir
grunsamlegum ránsmanni. Þaö
bar engan árangur. Hann hafði
upp á sjónarvotti úr spari-
sjóðnum, konu sem séð hafði
ræningjann og taldi að það gæti
ekki verið DePalma. Það
breytti þó engu. Honum var
neitað um að málið væri tekið
upp aftur.
30 mánuðir i fangelsi.
1 ágúst 1971 varð ekki lengur
beðið. Tveir lögregluþjónar
sóttu DePalma og hann fjötr-
aður við tvo sakamenn og
sendur i fangelsi á McNeileyju
sem liggur úti fyrir ströndum
Washingtonrikis. Það er eitt
öruggasta fangelsi Bandarikj-
anna.
María og dæturnar ungu
bjuggu við fátækt og þurftu
hjálpar með þó að sparlega væri
á öllu haldið. Frændur og vinir
reyndust þeim vel. Alls einu
sinni gat hún heimsótt mann
sinn þá 30 mánuöi sem hann var
i fangelsinu. Einn mága hennar
ók henni um Californiu og
Oregon til Seattle. HUn hafði
ekki ráð á fleiri ferðum slikum.
Bond kemst á sporið.
Bond vann aö málinu meðan á
þessu stóð. Hann ályktaði að
væri fingrafarið ekki rétt hlyti
lausnin að liggja á lögreglustöð-
inni i Buena. Hann frétti af lög-
reglumanni sem þar hafði unnið
en sagt upp vegna ósamkomu-
lags. Þennan mann heimsótti
Bond, þótt langt væri að fara.
Og þar komst hann á sporið.
Þessi fyrrverandi lögreglu-
maður hét David Nelson og
'hafði verið aðstoðarmaður
James Bakkens yfirlögreglu-
þjóns. Bakken var sá sem hafði
fundið hið örlagarika fingrafar i
sparisjóðnum. Nelson sagði
Bond nú að löngu áður hefði;
hann athugað skammbyssur
sem tveir ræningjar höföu tapað
á flótta Ur verslun nokkurri.
Hann fann engin fingraför á
byssunni þegar hann leitaöi
þeirra. Nokkrum dögum siðar
frétti hann sér til mikillar furðu
að Bakken, sem var yfirmaður
rannsóknarstofu stöðvarinnar
hefði fundið á byssunum fingra-
för tveggja grunaðra manna
sem handteknir höfðu verið.
Þeir meðgengu báðir.
— Ég vissi að þessi fingraför
hlutu að vera fölsuð með einum
eöa öörum hætti og hafði ekki
skap til aö vinna þarna lengur,
sagði Nelson. En hann vildi ekki
leggja fram frekári skýrslu um
Bakken.
MJUKAR plötur undir þreytta fætur
Teg. „Hamburg” Teg. „Rotterdam”
Þolir sæmilega oliu og sjó,
gripur vel fót og gólf, dregur
úr titringi, svört 23 mm á
þykkt, stærðir 40x60 cm,
40x120 cm. 60x80 cm og 80x120
cm. Notast yfir vélarrúmum
og i brú og á brúarvængjum.
Þolir oliu og sjó, rafeinangr.
andi, gripur vel fót og gólf,
dregur úr titringi, svört 11,5
mm þykk, stærðir allt að 1x10
metrar.
Notast i vélarrúmum og verk-
smiðum þar sem fólk stendur
timum saman við verk sitt.
Vesturgötu 16, Reykjavík, símar 13280/14680
Málning og málningarvörur
Veggstrigi
Veggdúkur
Veggfóöur
Fúavarnarefni
Bondex, Solignum, Pinotex, Architectural.
Afsláttur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 þús. jaq/ veitum við lll /0 50 bús. -_0/ veitum við 1070
afslátt. afslátt.
Sannkallaö LITAVERS kjörverð
Ertu að byggja, viltu breyta, þarftu að bæta?
Líttu við í Litaveri,
því það hetur ávallt
borgað sig.
Gransáavagi, Hraytilahúainu. Sfmi 82444.
GLÓÐARSTEIKING
TILGLOÐUNAR
Steiking við opinn eld eða glóð er ein
elsta matreiðsluaðferð mannkynsins og
ennfremur ein sú bezta.
Að undanfömu hefur þessi steikingar-
aðferð orðið æ vinsælli enda haldast
bragð- og næringarefni betur í matnum
sé hann matreiddur á þennan hátt.
Steikingvið trékolaglóð gefur auk þess
sérlega gott bragð af matnum.
Pylsur. hamborgarar, sundurhlutaðir
kjúklingar, buff, kótelettur og önnur
smá kjötstykki er auðvelt að glóða á rist.
Heilar steikur, t.d. læri, stóra vöðva og
heila kjúklinga er betra að glóða á
hverfiteini. Á glóðarrist má ennfremur
glóða blandaðar matartegundir á
prjónum. Þá er ágætt að hver maður
gæti síns prjóns og ákveði sjálfur hve
mikið steiktur maturinn á að vera. Á
hverjum prjóni má þá hafa margar eða
fáar tegundir matar að vild. Kjöt, fisk,
skelfisk, innmat, lauk, sveppi og annað
grænmeti.
Heilan fisk má líka glóða á ristinni.
Auðveldast er þá að glóða fremur smá-
an fisk, sem er fastur í sér (t.d silung)
en hægt er að fá sérhönnuð glóðarnet
nteð handfangi, sem gera mögulegt að
snúa fiskinum í heilu lagi, án þess að
hann detti í sundur
Fiskflök er bezt að vefja í álþynnu og
glóða þannig.Flökin eru þá krydduðog
örlítið smjör eða smjörlíki er látið með,
einkum ef unt ýsu eða annan ntagran
fisk er að ræða.
Bakaðar kartöflur henta ákaflega vel
með glóðarsteiktum mat. Veljið stórar
kartöflur, þvoið þær vel, vefjið hverja
fyrirsig í álþynnu og leggið á ristina eða
beint á glóðina. Á sama hátt ntá með-
höndla flestar tegundir gærnmetis.
Aðferðin er sú sama, hvort sem glóðað
er á rist sem lögð er á nokkra múrsteina
yfir holu sem gerð er í jörðina,
eða notað er dýrt tæki með
ýmis konar auka þægindum.
Botninn er þakinn með
tvöfaldri álþynnu (venjul.
álpappír) og trékolin lögð
í þunnt lag ofan á. Vætið
kolin nteð kveikilegi og
setjið annað lag af kolum
ofan á og vætið aftur í
með vökvanum. Kveikið-
nú í kolunum og bíðið þar
til hættir að loga og þunnt
grátt öskulag hefur myndast ofan á
glóðinni. (3D—60 mín).
Nú má fyrst byrja að glóða.
Þeim mun meira sem notað er af kol-
um helzt hitinn lengur í glóðinni. Þegar
glóðin er brunnin er nauðsynlegt að
fjarlægja öskuna og hreinsa glóðartæk-
ið vel.
HENTUGAST
Pylsur 2—5 mín. Nærri glóðinni.
Hamborgarar. 3—4 mín. á hvorri hlið. Nærri glóðinni.
Kjúklingalæri. U.þ.b. 20 mín. alls. 8—10 cm. frá glóðinni.
Enskt buff. 3—4 mín á hvorri hlið. Nærri glóðinni.
T-bein steik. 6—8 min. á hvorri hlið. 8—10 cm. frá glóðinni.
Entrecote. 10—12 mín. á hvorri hlið. 10—12 cm. frá glóðinni.
Svínakótelettur. 6—8 mín. á hvorri hlið. 6—8 cm. frá glóðinni.
Lambakótelettur. 3—4 mín. á hvorri hlið. 6—8 cm. frá glóðinni.
Hálfir kjúkl. 15—20 mín. á hvorri hlið. 10 cm. frá glóðinni.
Heilir kjúkl. 40—60 mín alls. 15 cm. frá glóðinni á hverfiteini.
Roast beef. 20—25 mín. alls. 5 cm. frá glóðinni á hverfiteini.
Svínakambur U.þ.b. 1 klst. Sem lengst frá glóðinni á hverfiteini.
Lambalæri. U.þ.b. 1 klst. Sem lengst frá glóðinni á hverfiteini.
Heill fiskur. 3—6 min. á hvorri hlið. 6—8 cm. frá glóðinni.
Fiskfl. í álþ. 8—15 ntín. alls. 6—8 cm. frá glóðinni.
Glóðarteinar. 8-—15 mín. alls. 6—8 cm. frá glóðinni.
Stórar kart. 1—l'Áklst. Á rist eða í glóðinni.