Tíminn - 10.08.1980, Qupperneq 11
Sunnudagur 10. ágúst 1980.
11
„Við komum
aftur með
mykju-
dreifara”
segja jóskir bændur í
mótmælaferð til Kaup-
mannahafnar, og leggjum
þá leiðinaá Ráðhústorgið
ÍilÍIÍÍÍIÍM
■Hh
■ShhI
■■■■
Dag einn i júlimánuöi moraði
Axelstorg i Kaupmannahöfn,
þar sem höfuðstöðvar danskra
landbúnaðarsamtaka eru, af
józkum bændum, sem höfðu
uppi hávær mótmæli, og lofuðu
að koma i annað sinn, og þá með
dráttarvélar sinar og mykju-
dreifara og beina ferðum sinum
að Ráðhústorginu ef orð þeirra
yrðu að engu höfð.
Þeir töldu sig ekki gera þetta
að raunlausu. Meðal danskra
bænda er hin mesta ókyrrð, og
þaðeru hinir háu vextir, sem nú
eru viða komnir i tisku sem
læknislyf gegn verðbólgu, er eru
þeim mestur þyrnir i auga.
Þessirháu vextir, á samt lágu
verði á landbúnaðarvöru i sam-
keppnislöndum, hafa leitt til
þess, að margir hafa orðið
gjaldþrota, og i kjölfarið hafa
komið nauðungaruppboð og
persónulegir harmleikir.
Aður en til þessarar Kaup-
mannahafnarferðar kom, höföu
jóskir bændur hætt að flytja
mjdlk i sin eigin mjólkursamlög
og gripi i sláturhús, þar eð þeir
telja meginið af afurðaverðinu
hverfa i vaxtahitina.
Sérstök samtök, LR 80, hafa
einnig i hótunum að loka brúnni
á Stórastraumi með dráttar-
vélum og landbúnaðarvélum.
Eru það einkum hinir yngri
bændur sem fylla þennan flokk
innan LR 80. Þeir telja ekki bú-
andi undir þeim vöxtum, sem
þeim hefur verið gert að greiða,
og þeir vantreysta því, að
trúnaðarmönnum og forsvars-
mönnum þeirra i Kaupmanna-
höfn takist að sannfæra
stjórnarvöld og þing um, að
byrðarnar eru þeim ofviða.
Þúsundir ungra bænda eru
skuldum vafðir, og þeir fá ekki
risið undir 25% vöxtum, sem
gilda i Danmörku.
1 fyrra varö mikil skulda-
söfnunhjá þeim, en nú telja þeir
visan voða að halda lengra út á
þá braut. Margar jarðir hafa
þegar verið auglýstar til sölu á
nauðungaruppboðum, en aðrir
reyna að fleyta sé i bili með þvi
að ganga á bústofn sinn. En ekki
getur það gengið til langframa.
Þvi til sönnunar, út á hversu
alvarlega braut er komið, er á
það bent, að þó nokkrir bændur
hafi framið sjálfsmorð i örvænt-
ingu vegna fjárhagsþrenginga
sinna.
Meginsökinni varpa þeir á há-
vaxtastefnuna og ástandiö á
Evrópumarkaðnum, sem fylltur
er af landbúnaðarafúrðum á
óeðlilega lágu verði. Það er
krafa dönsku bændanna, að
vextirnir verði færðir niður,
nauðungaruppboð stöövuð og
styrkir veittir til fóðurkaupa.
Sams konar ókyrrðar vegna
hárravaxtagætir meðalnorskra
bænda, þótt óánægjan hafi ekki
fengið þar útrás i mótmælaaö-
gerðum.
VtNARPYLSUFAT
6 stk. vínarpylsur
'á hvítkálshöfuð
1 laukur
sósa:
50 g. mayonnaise
1 dl. tómatsósa
2tsk. edik
Vi dl. vatn
salt — pipar.
KINDAKÆFA
LIFRAKÆFA
RAFTASKINKA.
BACON
BJÓRSKINKA
BRINGUPYLSA
LAMBASPÆGIPYLSA
LYONPYLSA
MALAKOFF
MORTADELLA
Skerið pylsurnar í bita, saxið hvítkál og
lauk smátt, blandið saman.
Blandið sósunni saman og hellið yfir.
Skreytið með tómatsneiðum og saxaðri
steinselju.
Berið fram með rúgbrauði og tei.
ITALSKI
ÞJÓÐARRÉTTURINN
PIZZA
NÝTUR VINSÆLDA.
NOTAÐU GQÐA
PYLSURNAR SEM FYLL-
INGU ANNAÐHVORT
MEÐ RIFNUM OSTI EÐA
OSTKREMI.
HÉR GEFST GOIT TÆKI -
FÆRITIL AÐ REYNA
NÝJAR KRYDDTEGUNDIR.
HVERSVEGNA
Kjötvörur eru settar í lofttæmdar um-
búðir fyrst og fremst, til að koma í veg
fyrir skaðleg áhrif súrefnis í andrúms-
loftinu. Súrefni veldur þránun fitunnar
og eyðileggur eðlilegan pækillit vör-
unnar.
Lofttæmdar umbúðir veita einnig ör-
ugga vörn gegn óhreinindum, þær verja
vörurnar fyrir þurrki og hindra tap á
bragðefnum. Lofttæmdar umbúðir úr
marglaga plasti lengja geymsluþol var-
anna og því lengur, sem umbúðirnar
eru þéttari og lofttæming er betri.
Geymsluþoi flestra áleggstegunda í
lofttæmdum umbúðum er um 21 dag,
en reyktar og soðnar matarpylsur (s.s.
vínarpylsur og reykt medister) geymist í
28 daga frá framieiðsludegi.
1 pk. frosið brokkál
5 Goða vínarpylsur
3 laukar
4 tómatar
3 egg
1 msk hveiti
3 dl. mjólk
salt, pipar, majoran
Kartöflur — salt — f ranskbrauð.
Þíðið brokkálið og raðið í vel smurt
eldfast fat. Brúnið niðurskornar pyls-
urnar og laukinn örlítið á pönnu og
hellið yfir. Þakið með tómatsneiðum.
Þeytið eggin jafnið þau með hveiti og
mjólk, kryddið með salti. pipar og
majoran. Hellið blöndunni yfir. Bakið
við 225°C í 30 mínútur.
EhlerSi
KRYDD
GRÆNMETI