Tíminn - 10.08.1980, Side 13
Sunnudagur 10. ágúst 1980.
13
Sigfús
Halldórsson
á Kjarvals-
stöðum
Sigfús Halidórsson, tónskáld,
nýturnær algjörrar sérstöðu
sem menningarmáðurá tsiandi,
og keppir þvi I raun og veru að-
eins við sjálfan sig. öll þessi
yndislegu lög, er hann hefur
samið koma einna fyrst upp f
hugann, en þau sfast inn i þjóð-
ina með þeim hætti, að það er
eins og þau hafi alltaf verið til
innan i fólki, án þess að það
vissi af þvi, þar til Sigfiis festi
þau á blað, spilaði þau og söng.
Mun það naumast ofsagt að svo
vinsæla sönglagahöfunda á
þessari öld má telja á fingrum
annarrar handar.
Þá hefur hann einnig samið
„meiriháttar tónverk” fyrir sin-
fóniur og stóra kóra, er flutt
hafa verið, þannig að hann er
ekki við eina fjölina felldur i
tónlistinni.
Annar þáttur I lifsverki Sig-
fúsar Halldórssonar hefur svo
verið myndlistin, en hann hefur
lengi málað, haldið sýningar og
einnig gjört leikmyndir, og með
þessu öllu vann hann i banka og
ýmsum stofnunum, uns honum
tókst að hasla sér völl sem at-
vinnulistamaður, tónskáld og
listmálari.
Maðurinn Sigfús Hall-
dórsson
Þriðji þátturinn í þessu sam-
spili er siðan maðurinn Sigfús
Halldórsson, en framhjá honum
sjálfum verður naumast gengið,
þótt um verk hans sé fjallað.
Jóhannes Helgi, rithöfundur,
lýsir honum býsna vel er hann
segir, eða ritar i sýningarskrá
m.a. á þessa leið:
„Þvi ersvo fariöum sumamenn,
þvi miður alltof fáa, að þeir
breyta alveg svip og tóni dags,
ef máður er svo heppinn að rek-
ast á þá á förnum vegi. Dagur-
inn er kannski einn af þessum
erfiðu dögum þegar allt gengur
manni öndvert, allt frá þvi að
maður lyftir rakvél að aöorgni
dags og uppgötvar að blaðiö i
henni er ryðgað og sköröótt og
jafnframt það siöasta i eigu
manns: þar næst má maöur
bisa við stiflað frárennsli i
þvottahúsinu —• og að þvi búnu
sendir tilveran á mann alla
smámunaþefara og leiðinda-
poka i heilu lögsagnarumdæmi
uns maður er aö niðurlotum
kominn um miöjan dag. En þá
ber svo við að Sigfús Halldórs-
son verður óvænt á vegi manns
— og það er snarlega skundað á
kaffihús. Og tónn dagsins er
breyttur, yfirbragð hans hýrt og
hlýtt. Það gerist ekki i djúpúðug
um viðræðum: fremur I spjalli
af þvi tagi sem enskir nefna
sweet nonsense, elskulegum hé-
góma, sem er afbragðshollur
fyrir sálina.
Spjallið þarf ekki að vera
langt: þaðsem eftir lifir dags er
tilveran mennsk, náttúrleg og
viðfelldin, máski skopleg i bland
— en full af fegurð og yndisleg-
um viðfangsefnum.
Þannig er að hitta Sigfús:
maöur fer af fundi hans glaður
og betri maður. Slikur er galdur
þessa fjölhæfa listamanns — og
hornsteinarnir eru fjórir: djúp
listhneigð, fegurðarþrá, glað-
værð og góðvild.
Það eru þessir eiginleikar
sem hafa gert okkur manninn
Sigfús Halldórsson minnisstæð-
an, kæran — og allra manna
velkomnastan.”
Undir þessi orð er auðvelt að
taka, hvort heldur menn eru
nánir vinir, eða málkunnugir
Sigfúsi Halldórssyni.
Þau hitta i' mark eins og lögin.
Sýningin á Kjarvals-
stöðum
Ég hefi ekki á takteinunum
hvað Sigfús Halldórsson hefur
haldiö margar málverka-
sýningar, en sú er hann nú
heldur á Kjarvalsstöðum mun
vera ein stærsta sýning er hann
hefur haldið, þvi þar eru 84
verk. Hefur hann lagt undir
allan Austursal Kjarvalsstaða,’
en i húsinu eru um þessar
mundir þrjár sýningar i einu.
Það fer ekkimilli mála, að ef
þessi sýning er borin saman við
seinustu sýningu Sigfúsar á
Kjarvalsstööum, þá hafa fram-
farirnar orðið ótrúlega miklar
og örar, og þá einkum i
teikningu, og samanburðurinn
er auðveldur, þvi viðfangsefnin
eru af sama toga spunnin og áð-
ur, eða svipuðum, hús, þorp,
skip og menn.
Að visu má ávallt deila um
nákvæmni i myndlist, hvort
ljósmyndin hafi ekki ákveöið
verksviö og málverkið annað.
Hvort ekki beri i málverki að
brjóta hlutina upp til einföld-
unar og segja beri söguna allt
eins mikiö i formi og lit, frekar
en i nákvæmni, en um það verða
aðrir að dæma.
Sýning Sigfúsar Halldórs-
sonar stendur frá 2. — 24. ágúst.
Jónas Guðmundsson.
Mótatimbur
1x6, kr. 630 pr. lengdarmeter
Steypustál
10 mm. kr. 369 pr. kg.
K.Þ. Byggingavörur
Húsavik, simi 96-41444.
Matreiðslumann
vantar vinnu strax.
Vill helst taka mötuneyti að sér, alveg
sama hvar á landinu. Algjör reglusemi.
Upplýsingar i sima 91-20717.
kEmper
Bændur
Hinir velþekktu og vinsælu
Kemper heyhleðsluvagnar
til afgreiðslu strax.
Tvær stærðir 24 m3 og 28 m3
Kaupfélögin
umallt land
Véladeild
Sambandsins
Armuia 3 Reykiavik Simi 38900
Bræóraborgarstigl-Simi 20080
(Gengió inn frá Vesturgötu)
Hlíðarendaskóli
Umsóknarfrestur fyrir 1. bekk mennta-
skóla rennur út 20. ágúst og 8. og 9. bekk 1.
sept.
Upplýsingar i sima 99-3606.
Skólastjóri.