Tíminn - 10.08.1980, Síða 32
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
5M9J Sunnudagur 10. ágúst 1980
A fgreiðslutimi
1 til 2 sói-
arhringar
Félagsprentsmiðjunnar hf.
Spítalastíg 10 — Sími 11640
FIDELITY
HLJOMFLUTNINGSTÆKI
Pantið myndalista.
Sendum í póstkröfu.
C |A|J||A 1 Vesturgötu II
OJW1VML sirri* 11 600
J,
Frá Islandsheimsðkn tveggja sænskra blaðamanna:
Þar er barist við
að halda uppi
velferðarríki í
50% verðbólgu
Myndir: Hasse Erikson
AM — Nýlega rákumst viö á
frásögn at tslandsheimsókn
tveggja sænskra blaöamanna
viö Dagens Nyheter, þeirra Bo
Melander og Hasse Erikson í
blaöi þeirra. Hasse er teiknari
viö blaöiö og bregöur upp
nokkrum skemmtiiegum mynd-
um af kunnuglegum fyrirbrigö-
um hérlendis meö greininni.
Þeir segja aö á Islandi, þar
sem sildarmjöl og lýsi flæddi
áöur, sé mannlifiö nú meö öör-
um brag. Lýsiö fljóti ekki leng-
ur, en allir hafi nú nóg aö gera
viö aö ’eignast ibúöir og stereó-
græjur og vinni langan dag í
kapp viö 50% veröbólgu.
A Islandi óttast menn þó
framtiöina, segir blaöiö. Síldin
er á brott og treyst á loönuna,
sem ekki má þó ofveiöa.Stjórn-
málamennirnir eru enda sem
lús milli tveggja nagla og veröa
bæöi aö taka tillit til þess aö
landinn geti haldið heldur rif-
legum lifsstandard og þess aö
hann fiski ekki upp forsendurn-
ar fyrir þvi aö þaö sé hægt.
—■ Ekki er ég fullkomlega
ánægöur, segir Steingrimur
Hermannsson viö þá félaga um
Jan Mayen samkomulagiö, en
viö fengum þó framgegnt kröf-
um okkar um stjórn á ioönu-
Ungmeyjar fylgjast meö um-
ræöum á Aiþingi
veiöunum, en loönuna teljum
viö okkar, sé á allt litiö.
Þá er minnt á aö nú standa fyr
irdyrum samningaviöræöur viö
Dani um fiskveiöarnar viö
Grænland.
1 greininni segir aö menn
veröi aö hafa hraöann d, þegar
fariö er yfir götu i Reykjavik og
á Akureyri. Islendingar
kunni nefnilega vel aö meta
stóra ameriska bfla og gefa vel
i. Stórir bilar eru nefnilega
stööutákn á tslandi, en Land-
Roverjeppinn er eins og hver
önnur dráttarvél, sem alla reisn
skortir, segja þeir.
Diskótónlistin dunar á dans-
stööunum og ekki fer á milli
mála: meiri markaöur er fyrir
klæönaö samkvæmt nýjustu
tisku á íslandi en i Sviþjóð. I
landinu rikir ný stefna efnis-
hyggju, sem alls staöar blasir
við augum.
Þó er þetta þjóö sem rnjög er
bókhneigö og leikhúsaðsókn er
mikil og menn þekkja sögu
lands sfns vel.
— Ég stakk af til Sviþjóðar i
fimm ár og vann, til þess aö
græöa peninga, en svo hélt ég
hingaö aö nýju. Hér veröa menn
aö berjast hart fyrir daglegu
brauöi, en heim varö ég aö fara,
hafa þeir blaöamenn Dagens
Nyheter eftir þritugum Islend-
ingi.
Þetta á við um flesta hinna
yngri á tslandi. 12 tfma vinnu-
dagur er almennur og launin
eru lág. Verðbólgan hvilir sem
farg á ungum og öldnum.
lslendingar eru stolt fólk og
ekki aöeins vegna Eddanna og
bókmenntaarfs sfns. Þeir eiga
heimsins elsta þing, sem stofn-
sett var 930. Síöar er minnt á
hvernig Island hvarf undir yfir-
ráö Noregs og Danmerkur og
sjálfstæöisbaráttuna, sem lauk
meö stofnun lýöveldis á Þing-
velli 1944.
t smábænum Akureyri er aöfinna aöalgötu. Þar mega fótgangend-
ur vara sig, þvi ökuþórarnir gefa vel f.
A Alþingi Islendinga.Hérer Jan Mayen máiiö til umræöu.
Island er nú örlitil þjóö, þar
sem 250 þúsund manns rey na aö
sýnast, sjálfstæö þjóö, meö
skjaldarmerki, þingi, forseta,
útvarpi og sjónvarpi og öllu þvi
sem einkennir sjálfstæöa þjóö.
— t Reykjavik eru tvö stein-
hús, segir Höskuldur Skagfjörö
og hlær viö. Annaö þeirra er
kallaö „litlisteinninn” og þaöer
geymslustaður fyrir fulla
menn, en hitt er „stóri steinn-
inn”, þar sem islenskir stjórn-
málamenn reyna aö stýra á
milli skerja til móts viö framtiö-
ina.
Stjórnmálamennirnir standa
fólkinu mjög nærri og vei þeim
þeirra, sem ekki gefur sér tima
til þess aö ræöa viö menn á göt-
um útium horfurnar f landsmál-
unum.
Blaðamennirnir bregöa sér
inn I Alþingishúsiö þar sem Jan
Mayen m áliö er til um ræöu. Þar
er fjör i umræöunum, en forseti
þingsins hefur tögl og hagldir
meö hjálp hamars og bjöllu. A
áheyrendapöllunum sitja yngri
og eldri menn og hlusta á. Þó er
sáttaandi I loftí og rikisstjórnin
hefur sitt fram.
Þannig komum við tslending-
ar tveimur Svium fyrir sjónir,
sem hingaö komu i snögga ferö
og þótt við gætum gert athuga-
semd hér og hvar, er þétta þó i
stórum dráttum mynd af dag-
legu lifi á tslandi á sl. vori.
Varöskip i Reykja vikurhöfn. „Þessi skip, er áöur böröust viö erient
vald, hafa nú vökul augu á Islenskum fiskiskipum, vegna ótta viö of-
veiöi", segja sænsku blaðamennirnir.