Fréttablaðið - 10.06.2007, Side 52

Fréttablaðið - 10.06.2007, Side 52
Sigurður Ragnar Eyj- ólfsson, landsliðsþjálf- ari kvenna í knatt- spyrnu, segir forréttindi að vinna við það sem honum finnst skemmti- legt. Fyrsta starf hans var hjá B&L. Sigurður Ragnar tók fyrstu skref sín á at- vinnumarkaðnum í ungl- ingavinnunni, rétt eins og svo margir. Fyrsta starf hans utan opinbera geir- ans fékk hann er hann var sextán ára þegar hann var ráðinn til starfa hjá B&L. „Pabbi þekkti einhvern sem vann þar og hann reddaði mér vinnu,“ segir Sigurður Ragnar. „Ég var settur í að afgreiða vara- hluti í Lödur án þess að vita neitt um bíla.“ Eins og eðlilegt er gerði Sigurður Ragnar sín mis- tök til að byrja með. „Ég var lítið látinn afgreiða, heldur var ég meira í að pakka inn varahlut- um sem áttu að fara út á land,“ segir Sigurður Ragnar. „Þegar ég var í afgreiðslu og var spurður um eitthvað svaraði ég bara: Bíddu aðeins, og hljóp svo bakvið og spurði einhvern sem vissi eitt- hvað um bíla.“ Sigurður var nokkur sumur hjá B&L og segir hann að starfið hafi kennt sér ýmislegt. „Eitt það mikilvægasta er hversu heppinn ég er í dag að vinna við eitthvað sem ég hef áhuga á,“ segir Sigurður Ragnar. „Ég vinn mikið en þrátt fyrir það finnst mér ég aldrei vera í vinnunni því knatt- spyrnan er aðaláhuga- málið mitt.“ Afgreiddi vara- hluti í Lödur Sumarstörf erlendis eru tilvalin fyrir fólk sem vill bæta við tungumála- kunnáttuna. Á Norðurlöndunum er mikið um afleysingaþjónustur sem sífellt leita að fólki í minni verkefni. Vinnumálastofnun Íslands er með gott yfirlit yfir afleysingaþjónustur og vinnumiðlanir erlendis. Samrökin Hallo Norden geta einnig veitt þeim góða aðstoð sem eru áhugasamir um Norðurlöndin. Hjá Vinnumálastofnun er allar upplýsingar að fá varðandi réttindi og pappíra sem þurfa að fylgja með þegar unnið er í útlöndum. Einnig getur verið nytsamlegt að hafa samband við sendiráð viðkomandi lands. Nánari upplýsingar: Vinnumálastofnun www. vinnumalastofnun.is Hallo Norden www.hallo- norden.org Sumarstörf í útlöndum RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Vilt þú starfa á líflegum og skemmtilegum vinnustað hjá matvælafyrirtæki í sérflokki. Ostabúðin leitar að starfsfólki í eftirtalin störf: Verslun Veisluþjónusta Leitum að starfsmanni til starfa í veisluþjónustu Ostabúðarinnar við framleiðslu á ýmiskonar veisluföngum s.s. ostakökum, bökum, bökkum og veisluréttum ýmiskonar. Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 16:00. Leitum að lífsglöðum og þjónustulunduðum starfsmanni til starfa í verslun Ostabúðarinnar við almenna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Vinnutími er frá kl. 09:00 til kl. 18:00. Störfin henta fólki á öllum aldri og ekki síður konum en körlum. » Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um störfin þar. Fólk 20 ára og eldra óskast í hlutastörf til að vinna með 6 – 9 ára börnum List- og verkgreinum tónlist, myndlist, leiklist, smíði, textíl. Íþróttum og leikjum Útivist og umhverfismennt Barnalýðræði og lífsleikni hópastarf, barnafundir, vinátta og samvera Hægt er að sækja um og fá frekari upplýsingar á heimasíðu ÍTR, www.itr.is og hjá starfsmanna- þjónustu ÍTR, Bæjarhálsi 1, í síma 411 5000 . Í SKEMMTILEGU STARFSUMHVERFI NÆSTA VETUR? VILTU VINNA MEÐ BÖRNUM FRÍSTUNDARÁÐGJAFAR/LEIÐBEINENDURÁ FRÍSTUNDAHEIMILUM Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Bæjarhálsi 1 I Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is Starfsmenn ÍTR vinna á sviði íþrótta og tómstunda og eru lykillinn að því að ÍTR geti veitt viðskipta- vinum sínum fyrsta flokks þjónustu ÍTR hefur virka starfamannastefnu og leggur áherslu á fræðslu og starfsþróun ÍTR leggur áherslu á hvetjandi og jákvætt starfs- umhverfi og leitast við að efla frumkvæði starfs- manna sinna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.