Fréttablaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 1
Jóhann Jóhannsson um nýju sólóplötuna og aðra plötu
Orgelkvartettsins Apparats
Sunnudagar
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
46%
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
71%
Baugur verður bakhjarl uppgræðslu-
verkefnis í Rúanda sem leitt er af Bill Clinton,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og skoska auðmann-
inum Sir Tom Hunter.
Baugur hefur um nokkurt skeið átt í viðskiptum
við Hunter, sem hefur fjárfest á Íslandi í Glitni og
FL Group. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem gerðist
starfandi stjórnarformaður Baugs er hann hætti
sem forstjóri, segir Hunter hafa byggt upp áhrifa-
mikla starfsemi í þróunarhjálp sem Baugur vilji
styðja. Verkefnið hefur þann tilgang að kolefnis-
jafna starfsemi Baugs um leið og örfoka land er
grætt upp og bændur studdir til sjálfshjálpar með
ávaxtarækt.
Jón Ásgeir segir breytingar á stjórnarskipulagi
Baugs Group til að skerpa áherslur og í samræmi
við breytt verksvið. Hann vísar á bug vangaveltum
um togstreitu milli sín og Hannesar Smárasonar.
Stjórnendum FL Group hafi gengið einstaklega vel
að ávaxta fjárfestingu í félaginu og hann og forstjóri
félagsins séu einhuga um hvert beri að stefna í
rekstri þess.
Vladimír Pútín, forseti
Rússlands, afhenti í gær Þorsteini
Inga Sigfússyni Alheimsorku-
verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Pétursborg.
Þorsteinn hlýtur verðlaunin
fyrir framúrskarandi árangur við
rannsóknir á sviði orkumála, sér-
staklega hvað viðkemur endur-
nýjanlegri orku, en hann hefur
verið leiðandi í vetnisrannsóknum
hér á landi svo árum skiptir.
Í þakkarávarpi Þorsteins kvaðst
hann „standa á öxlum risa“ á sínu
fræðasviði og vísaði þar til
íslenskra frumherja í orkumálum.
„Framleiðsla og notkun vetnis
sem orkubera á Íslandi getur orðið
fyrirmynd fyrir heiminn,“ sagði
Þorsteinn í ræðu sinni. „Framlag
mitt, og miklu frekar míns lands,
til þess að draga úr kolefnismengun
hefur verið að taka í notkun æ
stærra hlutfall endurnýjanlegra
orkulinda landsins,“ sagði hann og
benti á að Ísland ætti nú þegar
heimsmet í hlutfalli endurnýjan-
legrar orku, eða 72 prósent.
Einnig minntist hann rússneskra
frumkvöðla sem margir hverjir
hefðu haft mótandi áhrif á feril
Þorsteins. Þá þakkaði hann Háskóla
Íslands og Íslenskri NýOrku fyrir
að hafa veitt sér tækifæri til dáða.
Síðast en ekki síst þakkaði Þor-
steinn ungum vísindamönnum og
nemendum sínum í Háskóla Íslands
í gegnum árin.
Í Rússlandi er Alheimsorku-
verðlaununum líkt við Nóbelsverð-
launin. Þorsteinn var valinn úr hópi
146 manna og hlaut verðlaunafé að
upphæð tíu milljónir rúblna, um 27
milljónir króna.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, og Benedikt
Ásgeirsson, sendiherra Íslands í
Rússlandi, voru við athöfnina.
Verðlaun úr
hendi Pútíns
Forseti Rússlands veitti Þorsteini Inga Sigfússyni
Alheimsorkuverðlaunin við hátíðlega athöfn í gær.
Verðlaunin voru veitt fyrir rannsóknir Þorsteins á
sviði orkumála. Ein æðsta viðurkenning Rússa.
„Þetta eru algjörir villi-
menn,“ segir Sigurður Ingimund-
arson, þjálfari íslenska landsliðs-
ins í körfubolta, en lærisveinar
hans áttu í vök að verjast fyrir tap-
sárum Kýpverjum undir lok leiks
liðanna á Smáþjóðaleikunum í
gær.
Þegar rúm mínúta var eftir af
leiknum misstu leikmenn Kýpur
stjórn á sér og réðust að íslensku
leikmönnunum og einum dómara
leiksins. Íslensku leikmennirnir
vörðu sig fyrir höggunum en voru
að öðru leyti ekki þátttakendur í
ólátunum.
Leikurinn var flautaður af í
kjölfarið og Íslendingum dæmdur
2-0 sigur. Íslenska liðið hlaut gull-
verðlaun á leikunum.
Réðust á íslenska liðið