Fréttablaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 78
„Ef við værum með betri VIP-
stúku, meiri umgjörð í kringum
landsliðið og strákarnir fengu
meira klapp á bakið, þá værum
við miklu betri í fótbolta.“
Upptökur á fyrstu sólóplötu rokk-
arans Magna Ásgeirssonar, sem
standa yfir í Danmörku, ganga
prýðilega. Hljóðverið er í sveita-
býli rétt fyrir utan Óðinsvé þar
sem Magni og félagar hans Baddi
og Gunni úr Sóldögg hafa dvalið í
góðu yfirlæti.
„Við erum að verða búnir að
taka upp alla trommugrunna og
fullt af gíturum,“ segir Magni.
„Þetta er æðislegasta stúdíó sem
ég hef komið í. Hérna er allt
æðislegt. Við erum lengst úti
í sveit og akrar allt í kringum
okkur. Við viljum helst ekki fara
héðan í burtu. Ég hef hugsað mér
að taka upp allar mínar plötur
hérna í framtíðinni.“
Magni býst við því að taka upp
megnið af plötunni í Danmörku en
eitthvað verður þó gert heima á Ís-
landi. „Þetta er að koma mjög vel
út,“ segir hann. Lögin á plötunni
verða öll á ensku og stefnir Magni
að því að gefa hana út hér heima
í lok júlí og á svipuðum tíma á
iTunes. Síðar meir vonast hann til
að koma henni á markað erlend-
is og verða þá enskar útgáfur af
lögum Á móti sól í stað þeirra er-
lendu tökulaga sem verða á ís-
lensku útgáfunni.
Eins og áður segir kann Magni
ákaflega vel við sig í Danaveldi.
„Hérna bragðast Tuborginn mikið
betur en heima. Maður fær sér
alltaf einn og einn öl. Það er bara
ætlast til þess að þú drekkir bjór í
Danmörku og borðir smörrebröd.“
Bætir hann því við að samstarfið
við Badda og Gunna gangi eins
og í sögu. „Það er rosalega gott
að vera bara þrír. Þeir eru mjög
reyndir upptökumenn og ef einn
nennir ekki að taka upp þá kemur
hinn bara í staðinn. Við erum allir
bestu vinir.“
Allt æðislegt hjá Magna í Óðinsvéum
Stefán Lárus Stefánsson, sendi-
herra Íslands hjá Evrópuráðinu,
hitti Benedikt XVI páfa í Vatík-
aninu í byrjun mánaðarins þar
sem hann fékk afhent trúnaðar-
bréf. Stefán Lárus, sem er einnig
sendiherra Íslands hjá Evrópuráð-
inu, segir páfa hafa mikinn per-
sónuleika. „Fólk skynjar strax að
hann hefur mikinn persónuleika.
Um leið og hann kom inn í salinn
náði hann tökum á atburðinum, ef
svo má segja,“ segir Stefán Lárus.
Sendiherrann var ekki einn við at-
höfnina því kona hans og synir
fylgdu með, sem og Guðni Braga-
son, fastafulltrúi Íslands hjá land-
búnaðar- og fiskistofnun Samein-
uðu þjóðanna í Róm.
Mikil viðhöfn fylgir afhendingu
trúnaðarbréfa í Páfagarði. Íslend-
ingarnir voru sóttir í lögreglufylgd
og leiddir inn í höll í Páfagarði,
sem hýsir meðal annars íbúð páfa.
„Á göngunum voru svissnesku líf-
verðirnir sem hafa séð um gæsluna
í mörg hundruð ár. Þeir klædd-
ust þessum skrautlegu búningum
sem Michaelangelo er sagður hafa
hannað,“ segir Stefán Lárus.
Eftir athöfnina gaf páfi sig á
stutt spjall við Íslendingana og
þar á meðal syni Stefáns sem eru
fjórtán og nítján ára. „Þeim þótti
mikið til þess koma að upplifa
svona athöfn og sjá hana kannski
með öðrum augum en maður sjálf-
ur. En það fór ekki framhjá þeim
að við vorum að fara í gegnum at-
höfn sem hefur verið endurtekin í
þúsund ár og fannst mikið til koma.
Þeim þótti líka vænt um að hann
gaf sér tíma til að heilsa þeim og
skiptast á nokkrum orðum,“ segir
Stefán Lárus.
Í ræðu sem páfi flutti við at-
höfnina sagði hann meðal annars
að kristin trú hefði í yfir þúsund
ár mótað íslenska menningu. Hann
ræddi um friðargæslusveitir Ís-
lendinga og minntist á nunnurnar
í Hafnarfirði sem biðja fyrir vel-
ferð Íslendinga á degi hverjum. Að
lokum bað hann fyrir guðsblessun
allra Íslendinga.
„Þrátt fyrir allan þann umbúnað,
glæsileika og þá miklu sögu sem er
í Vatíkaninu skynjar fólk samt frið-
sæld og ró. Og það var eiginlega sú
tilfinning sem situr eftir í mér,“
segir Stefán Lárus, sendiherra í
Vatíkaninu.
Samúraí í silkisokkum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI