Tíminn - 07.12.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.12.1980, Blaðsíða 6
6 ■LiíiH'I' Sunnudagur 7. desember 1980 ffMÉM Útgefandi: Framsóknarflokkurtnn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Glslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgrei&slustjóri: Siguröur Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurósson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur V. ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrlmsson. Bla&amenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttir, Elisabet Jökulsdóttir, Friörik Indriöason, Frtöa Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiöur Helgadóttir, Jónas Guö- mundsson, Jónas Guömundsson (Alþing), Kristln Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Gu&jón Einars- son, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392.—Verö I lausasöiu: kr. 280. Askriftar- gjaldá mánuöi: kr.5500. — Prentun: Bla&aprent hf. Atlantshafsflugið Ýmsir hafa orðið til þess að gagnrýna það, að Atlantshaf'sf'luginu skuli haldið áfram, m.a. Dag- blaðið. Guðmundur G. Þórarinsson alþm. fjallar um þessa gagnrýni i grein, sem hann birti nýlega i Dagblaðinu. Guðmundur G. Þórarinsson vikur fyrst að þeim fullyrðingum, að veriö sé að verja fé úr rikissjóði til að styrkja ferðalög útlendinga. Hann svarar á þessa leið: „Reiknað er með að islenska rikið leggi Atlants- hafsfluginu nánast þær tekjur, sem rikið hefur af þessu flugi. Það er að segja, rikið leggi Flugleiðum það fé, sem hvort eð er mundi tapast, ef flugið leggst niður. Ef flugið leggst niður, fær rikið ekki lengur lendingargjöld af þeim flugvélum, sem hætta að íljúga. Rikið fær ekki leigutekjur af þeim hluta flugstöðvarbyggingar, sem Flugleiðir segja upp og ekki er unnt að leigja öðrum. Tekjur fri- hafnarinnar minnka, ef þessi farþegaflutningur leggst niður. Aðstöðugjöld Flugleiða minnka ef þessi starfsemi leggst af. Þannig mætti lengi telja. íslenska rikið er þvi nánast aðeins að gefa eftir fé, sem rikissjóður mundi hvort eð er tapa, ef flugið leggst niður.” Guðmundur G. Þórarinsson vikur siðan að þeirri fullyrðingu að hér sé aðeins um gálgafrest að ræða og þvi sé eins gott að hætta fluginu strax. Um þetta séu skiptar skoðanir. Með þeirri lausn, sem nú sé fengin, verði mörgum sérhæfðum og sérfróðum mönnum tryggð atvinna i eitt ár og sé ekki litilvægt á þessum atvinnuleysistimum, sem nú eru i heim- inum. Ýmsir aðilar aðrir, sem tengjast fluginu, haldi þessum tekjum áfram næsta ár. „Haldi óbreytt ástand áfram”, segir Guðmundur G. Þórarinsson”, er i sjálfu sér engu tapað fyrir Flugleiðir. Félagið getur þá lagt flugið niður eftir eitt ár. Þá hefur verið gerð tilraun til að bjarga þessum atvinnurekstri og menn verða ekki sakaðir um að hafa ekki reynt. Hitt er svo annað mál, að margvisleg rök hniga að þvi að ástandið á Atlants- hafinu gæti breyzt innan tiðar.” Ef svo færi, sem er alveg eins liklegt, myndi ýmsum þykja illa farið, ef íslendingar væru nýbún- ir að leggja niður nærri 30 ára starfsemi og kasta frá sér viðtæku markaðskerfi og reyndu starfsliði, þegar fargjöld hækkuðu. Guðmundur G. Þórarinsson vikur i greinarlokin, að þeirri frétt Dagblaðsins, að vissir starfsmenn Flugleiða ræði um að mynda samtök gegn Fram- sóknarflokknum vegna vinnu hans að málum fyrir- tækisins. Um þetta farast honum svo orð: „Framsóknarmenn hafa unnið i allt sumar að þvi að leita leiða til þess að tryggja starfsfólki Flug- leiða vinnu og tryggja rekstur fyrirtækisins. Steingrimur Hermannsson hefur i þvi sambandi enga fyrirhöfn sparað sér. Steingrimur náði góðum samningum við yfirvöld i Luxemborg og setti sig á ótrúlega stuttum tima inn i flókinn rekstur Flug- leiða. Honum tókst að skipa málum á þann veg, sem nú er orðið, oft gegn talsverðum mótstraumi. Þannig tókst að tryggja vinnu fólksins og starfsemi fyrirtækisins. Það mun lika réttast að margir starfsmenn Flug- leiða meta þetta, hvað sem liður starfshópi þeim, sem Dagblaðið sagði frá. — Þ.Þ. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Algert heyrnarleysi bugar ekki Ashley Einstætt og frábært afrek brezks þingmanns AHEYRENDUR á þingpöllum i brezka þinginu, þótti þaö stund- um kynlegt, þegar Heath var forsætisráðherra, að hann virt- ist oft beina máíi sinu til eins þingmanns sérstaklega, Jacks Ashley. Hann horfði einkum i áttina til hans i stað þess að horfa yfir þingsalinn og ná eftir- tekt sem flestra þingmanna. Þetta háttalag Heaths átti sér þó einfalda skýringu og lysti honum sem góðum dreng. Ashley er algerlega heyrnar- laus og hefur verið það i 12 ár af þeim 14 árum, sem hann hefur átt sæti i brezka þinginu. Hann er hins vegar þjálfaður i vara- lestri og gat fylgzt með máli Heaths, ef hann átti þess kost að sjá varahreyfingar hans, þegar hann flutti þingræður sinar. Annars hefur nii fundizt leið til að auðvelda Ashley að fylgjast með þingræðum. Sérstakur starfsmaður i þinghúsinu stjórnar tæki, sem prentar það, sem sagt er. Þetta tæki er svo tengt móttökutæki, sem Ashley hefur með sér i þingsalinn og getur hann þannig lesið jafnóð- um ræður þingmanna. Þetta gerir honum auðvelt að taka þátt i umræðum, ef honum þykir þess þurfa. JACK ASHLEY á orðið merki- lega sögu. Hann er 58 ára gam- all og er búinn að eiga sæti i brezka þinginu i 14 ár eins og áður segir. Hann er fæddur og a linn upp i mikilli fátækt. Föður sinn missti hann þegar hann var fimm ára gamall. Strax að loknu bama- skólanámi þurfti hann að fara aö vinna fyrir sér, en hann var þá 14 ára. Ashley stundaði fyrst ýmsa vinnu, unz hann fékk starf i efnaverksmiðju. Hann var þá kominn i kynni við verkalýös- ireyfinguna og beitti sér fýrir óvi, að starfsmenn verksmiðj- unnar stofnuðu deild i sérstöku verkalýðssambandi Chemical Workers Union. Þar gat Ashley sér svo gott orð, að hann var lcosinn i stjóm landssambands Jiessara samtaka 21 árs gamall. Ashley lagði ekki stund a neitt nám á þessum árum, en ákvað nú að ganga menntaveginn. Fyrir tilstyrk verkalýössam- lakanna fékk hann tveggja ára námsstyrk við Ruskin College i Oxford. Hann lagði þar stund á hagfræði. Námið gekk vel og lékk hann framhaldsstyrk til náms i Cambridge, þar sem iiann lauk prófi. Að námi loknu sneri Ashley sér að fjölmiöiun. Hann fékk starf við Norður-Amerikudeild brezka útvarpsins, sem var fólgið í þvi að annast útvarps- þæ’tti. Þessu starfi hafði Anthony Wedgwood Benn, sem nú er leiðtogi vinrtri arms Verkamannaflokksins, gegnt á undan honum. Ashley reyndist góður út- varpsmaður. Frá útvarpinu lá leið hans til sjónvarpsins, þar sem hann sá um stjórn ýmissa vinsælla þátta. Vinsældir hans sem sjónvarpsmanns ruddu honum braut inn á stjórnmála- sviðið. Arið 1966 var honum boðið að verða þingmaður fyrir Verka- mannaflokkinn i öruggu kjör- dæmi. Hann tók boðinu og hlaut að sjálfsögðu kosningu. Hann varð fljótlega aðstoðarmaöur eins ráðherrans, Michaels Stewart.og virtist iiklegur tii að hljóta ráðherrastöðu innan tiðar. Það skyggði á hjá Ashley, að hann hafði sem barn orðið fyrir áfalli, sem hafði skemmt hljóð- himnurnar. Heym hans fór heldur versnandi og hann ákvað þvi að gangast undir aðgerð, sem virtist gefa sæmilegar vonir um bata. En batinn fékkst ekki, heldur leiddi aðgeröin til þess að hann missti alveg heyrnina. t FYRSTU munaði minnstu aö Ashley léti hugfallast og legði niður þingmennsku. En vinir hans hvöttu hann til að gefast ekki upp. Að ráði þeirra hóf hann að læra varalestur. t þrjá mánuði lagði hann næstum nótt við dag og var orðinn vel fær i varalestri að þeim tima lokn- um. Hann hætti þá við að leggja niður þingmennsku og hefur verið endurkosinn jafnan siðan. Ashley rækir þingmennskuna vel, en jafnframt kappkostar hann að hafa sem nánast sam- band við kjósendur sina. Kona Tækið sem gerir Ashley fært að taka þátt i umræðum I þinginu. Þvi er stjórnað af aðstoðar- manni i þinghúsinu og þaö prentar það, sem sagt er. Tækið er tengt móttökutæki, sem Asliley hefurmeð sér inn i þing- salinn. hans er yfirleitt með honum á fundum i kjördæminu og að- stoðar hann. Þau eiga þrjár dætur og eru þær mæðgur sam- hentar um að hjálpa honum eftir megni. Með aðstoð þeirra mægðna, einkaritara sins og annarra góðra vina, er Ashley auðveldað að tala i sima. Hann talar sjálfur i' tækið og les svörin af vörum einhvers, sem hlustará i öðru simtóli. Ashley hefur tekið virkan þátt i þeim deilum, sem standa yfir i Verkamannaflokknum. Hann hefur skipaðsér i hægri arminn. Arið 1976 tókst honum að ná kosningu i' flokksstjórnina, en þar er vinstri armurinn i meiri- hluta. Hann var felldur úr flokksstjórninni tveimur árum siðar. Það þykir ekki liklegt að viffstri armurinn fylgi þessu eftir með þvi að reyna aö fella hann i kjördæmi hans i næstu kosningum. Fylgi hans er talið það traust, að slik tilraun myndi mistakast. Ashley segist mjög þakklátur þeim, sem hafa styrkt hann og stutt, og gert honum kleift að sigrastá heyrnarleysinu. Ég hef engan vin misst, segir hann, siðan heyrnin bilaöi,en ég vissi þá fyrst hverjir þeir voru. Einkaritari og fjölskylda As- hlevs hafa þróað tækni, sem gerir honum fært að tala í sfma. Hann talar sjálfur i tækið og les svörin af vörurn einhvers, sem hlustar á i öðru simtæki — í þessu tilviki er það Caroline dóttir hans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.