Tíminn - 07.12.1980, Side 14
14
i/V n/rf • » w m w • i
Sunnudagur 7. desember 1980
Umsjón: Magnús Gylfi
NYTT A MARKAÐINUM
Nú er sá timi árs þegar hver
islensk plata á fætur annarri
kemur út. Þaö ætti ekki aö
undra neinn, þvi nú fer i hönd
vertið plötuútgefenda, jóiin.
Til þess aö auövelda fólki aö
átta sig á þessu flóöi er hér birt
yfir lit yfir þær plötur sem kom-
iö hafa út aö undanförnu.
Söngævintýrið Rauðhetta
og Hans og Gréfa. Ýmsir
Enn geysist GylfiÆgisson
fram á sviðið. Eftir siðustu
plötu sina „Meira salt” hefur
hann söðlað rækilega um, þvi að
þessu sinni er umfjöllunarefnið
á plötunni barnaævintýri. Hann
hefur búið til söngtexta við hin
sigildu ævintýri „Rauðhetta og
úlfurinn” og „Hans og Gréta”,
og auk þess semur hann öll lögin
sjálfur. Aðstoðarmenn hans á
þessari plötu eru þekktir og
óþekktir og ungir og gamlir. Má
þar m.a. nefna Hermann Guð-
mundsson, iþróttafréttamann,
sem bæði er sögumaður og
syngur hlutverk veiðimannsins i
Rauðhettu. Þórhall Sigurðsson,
Ladda, sem leikur úlfinn og
Aróra Halldórsdóttir leikkona,
sem leikur ömmuna og Margrét
Ragna Jónasdóttir (R. Jónsson-
ar upptökustjóra i Hljóðrita).
í ævintýrinu um Hans og
Grétu leikur og syngur Páll
Óskar Hjálmtýsson (já, hann er
bróðir Diddú), hlutverk Hans.
Hlutverk Grétu er i höndum
önnu Lisu Sigurjónsdóttur.
Sjálfur fer Gylfi Ægisson með
hlutverk nornarinnar. Hljóð-
færaleikur á plötunni er m.a. i
höndum Sigurðar Karlssonar,
Þorsteins Magnússonar, Engil-
berts Jensen, Rúnars Júliusson-
ar og Gylfa Ægissonar. Bak-
raddir syngja Rúnar, Engilbert
og Maria Baldursdóttir.
Geimsteinn gefur plötuna út,
en Steinar h.f. sér um dreifingu.
Pílu Pinu Platan: Vmsir.
Ragnhildur Gisladóttir, söng-
kona, kann sýnilega ýmislegt
meira fyrir sér, annað en að
syngja sig inn i hjörtu lands-
manna. Þessa plötu hefur hún
útsett og stjórnað upptöku á,
auk þess að eiga eitt lag á henni
og syngja að sjálfsögöu.
Þetta er plata sem gerð er eft-
ir hinni vinsælu sögu Kristjáns
frá Djúpalæk, sem lesin var i út-
varp við góðar undirtektir.
Heiðdis Norðfjörð er sögumaður
og hún syngur einnig nokkur
lög. Hlutverk músarinnar, Pilu,
syngur Margrét Helga Jóns-
dóttir. Valinkunnir tónlistar-
menn leggja hönd á plóg hér
Magnús Kjartansson, Pálmi
Gunnarsson, Siguröur Karlsson,
Þórhallur Sigurðsson, Valva
Gisladóttir og Olöf Sesselja
ólafsdóttir. Bókaútgáfan Orn og
örlygur gefur þessa plötu út og
er þetta fyrsta platan sem þeir
gefa út. Samtimis kemur út hjá
forlaginu barnabók sem hefur
að geyma söguna.
Þess má til gamans geta að
Pétur Halldórsson, sonur
Halldórs heitins Péturssonar
teiknara, hefur teiknað umslag-
iö.
Meö ÞREM: Þórir, Rún-
ar, Engilbert, María.
Eins og menn hafa liklega
getið sér til er nafn plötunnar
sett saman úr upphafsstöfum
nafna þeirra listamanna, sem
eru á plötunni. A þessari tólf
laga plötu eru þrjú gömul og
þekkt lög i nýjum útsetningum
en einnig er að finna ný lög þar
og eru þau eftir Jóhann G.
Jóhannsson, Gylfa Ægisson,
Þórir Baldursson og Rúnar
Júliusson. Upptökur fóru bæði
fram hér á landi og i New York.
Rúnar Júliusson sá svo til einn
um allan hljóðfæraleik á plöt-
unni, en fékk til liðs við sig tvo
bandarikjamenn. öll fjögur
syngja þau á plötunni, þrjú lög
hvert.
Kvö Idvísa : Ý msir
Steinn Steinarr er eitt af virt-
ustu tónskáldum þjóðarinnar.
Ljóð hans hafa löngum verið
mörgum lagasmiðnum hvatn-
ing til að semja lag við þau. Nú
hefur Torfi ólafsson hvatt sér
hljóðs og gefið út plötu sem hef-
ur að geyma lög eftir hann við
ljóð Steins. Flytjendur eru:
Eyþór Gunnarsson, Friðrik
Karlsson, Gunnlaugur Briem og
Jóhann Asmundsson. Söngvar-
ar á plötunni eru: Eirikur
Hauksson, Ingibjörg Ingadóttir,
Jóhann Helgason, Jóhann G.
Jóhannsson og Sigurður K.
Sigurðsson.
Upptaka fór fram i Hljóðrita i
janúar 1979 og mars—ágúst
1980. Upptökumenn voru: Garð-
ar Hansen, Gunnar Smári og
Jónas R. Jónsson. Útgefandi
plötunnar er Torfi Ólafsson, en
Fálkinn h.f. annast dreifingu.
Útvarp: Pónik
Mikil uppstokkun hefur átt sér
stað i hljómsveitinni Pónik á
undanförnum árum og er nú svo
komið að aðeins einn meðlimur
hennar er búinn að vera með frá
stofnun, Kristinn Sigmarsson.
Hann og félagar hans Sverrir
Guðjónsson, Ari Elfar Jónsson,
Hallberg Svavarsson og Olfar
Sigmarsson (bróðir Kristins)
hafa nú gefið út plötu sem þeir
nefna „Otvarp”. Þetta er tólf
laga plata og á henni er að finna
lög eftir meðlimi hljómsveitar-
innar, auk þess sem þeir hafa
fengið lög frá Jóhanni G, Jóns-
syni, Gylfa Ægissyni, Gunnari
Þórðarsyni og Magnúsi
Kjartanssyni. Flytjendur eru
auk hljómsveitarinnar Manuela
Wiesler, Graham Smith, Josep
Breines, Bernard Wilkinson og
Kristinn Svavarsson. Platan er
að öllu leyti unnin hér á landi
utan hún er skorin erlendis. Ot-
gefandi er Fálkinn h.f.
i hakanum: Mezzoforte
Jazzrokkhljómsveitin Mezzo-
forte hefur sent frá sér sina aðra
plötu sem þeir nefna 1 hakan-
um. Mezzoforte er skipuð fimm
ungum tónlistarmönnum, Frið-
riki Karlssyni, Eyþóri Gunnars-
syni, Birni Thorarensen,
Jóhanni Asmundssyni, og
Gunnlaugi Briem. 011 lögin eru
eftir meðlimi hljómsveitarinnar
og eru þau öll „instrumental”.
Aðstoðarfólk á plötunni eru m.a.
Shady Owens, Ellen Kristjáns-
dóttir, Bobby Harrison, Kristínn
Svavarsson og tveir Englend-
ingar Ron Asprey og Louis
Jardim. Otsetningar á lögunum
önnuðust Mezzoforte og Geoff
Calver og sá siðastnefndi sá
einnig um upptökustjórn og
hljóðritun. Upptökur fóru fram
á Hljóðrita i sumar, en hljóð-
blöndun i Redbus Studios i
London. Þess má að lokum geta
að samanlagður aldur hljóm-
sveitarmeðlima er innan við 100
ár, sem telja verður litið af
fimm manna hljómsveit að
vera. Steinar h,f. gefur plötuna
út.
í hátíðarskapi: Ýmsir
Það fór ekki svo að ekki yrði
ein einasta jólaplata i þessari
plötuupptalningu. Sú platan
kemur frá G.TH. útgáfunni og
nefnist 1 hátiðarskapi. Lands-
þekktir listamenn koma fram á
þessari plötu en þau eru Gunnar'
Þórðarson, Ömar Ragnarsson,
Helga Möller, Jóhann Helgason,
Ellen Kristjánsdóttir og Ragnar
Bjarnason. Að öllum öðrum
ólöstuðum þá vekja nöfn Ragn-
ars og Ómars mesta athygli.
Hvorugir hafa verið iðnir við
það á undanförnum árum að
koma fram á plötum og má sem
dæmi nefna að þetta er i fyrsta
skipti sem ömar tekur þátt i
upptöku i Hljóðrita. Er þvi
ánægjulegt aö sjá þá (og heyra)
á ný. Gunnar Þórðarson stjórn-
aði gerð þessarar plötu, samdi
fjögur ný lög og leikur auk þess
á ýmis hljóðfæri. Flytjendur
auk hans eru Asgeir Óskarsson,
Tómas Tómasson, Eyþór Gunn-
arsson, Viðar Alfreðsson og
Kristján Stephensen.
Að lokum má geta þess að
tvær af okkar athygliserðustu
ungu hljómsveitum hafa sent
frá sér plötur. Það eru Þeyr og
Fræbblarnir, en plata þeirra
siðarnefndu tefst nokkuð þvi
mistök urðu við fullnaðarfrá-
gang hennar. Báðar þessar
hljómsveitir eru skipaðar ung-
um mönnum sem eftir eiga að
láta meira að sér kveða i fram-
tiðinni, ef að likum lætur.
Að svo mæltu lýkur þessari
upptalningu og vonandi hefur
hún orðið einhverjum til hjálpar
við að átta sig á jólaplötuflóð-
inu. Það má einnig vekja at-
hygli á þvi i þessu sambandi að
þrátt fyrir hækkandi verölag á
öllum sviðum, þá — hefur verið
ákveðið að hækka ekki verð
islenskra platna og munu þær
kosta kr. 12.900.- um þessi jól.
Vonandi verður það til þess að
fólk kaupi frekar islenskt og
styðji þannig innlendan iðnað.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARLÆKNAR óskast á hand-
lækningadeild til 1. árs frá 1. janúar
n.k. Umsóknir er greini menntun og
íyrri störf sendist Skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 19. desember n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar deildar-
innar i sima 29000.
AÐSTOÐARMATRAÐSKONA óskast i
eldhús Landspitalans. Húsmæðra-
kennarapról' eða hliðstæð menntun
áskilin. Einnig óskast STARFSMENN
vanir matreiðslu. Upplýsingar veitir
yfirmatráðskona Landspitalans i sima
29000
RANNSÓKNASTOFA HÁSKÓLANS
Tvær stöður SÉRFRÆÐINGA i lif-
færameinafræði eru lausar til umsókn-
ar. Umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist Skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 1. febrúar n.k. Upp-
lýsingar veitir yfirlæknir liffæra-
meinafræðideildar i sima 29000.
Reykjavik, 7. desember 1980
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5, simi 29000
Útboð
Tilboð óskast í smíði á Dagheimili/leikskóla við Ægissiðu i
Reykjavík.
Utboðsgögn eru aíhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
gegn kr. 300.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuðásama stað miðvikudaginn 7. jan
1981 kl. 11 f.h.