Fréttablaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 1
Þriðjudagar *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 38% B la ð ið M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið D V 41% 73% 4% V D VVVV D V DD Þórsteinn Ágústsson, eigandi heilver l Umbo›s- og sölua›iliBirkiaska ehf.sími: 551 9239www.birkiaska.is Birkiaska Umbo›s- og sölua›iliBirkiaska ehf.sími: 551 9239www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur Smíðar listaverk úr smíðajárnsafgöngum Mætast á golfvellinum hola í höggiÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 Ráð fyrir konurRagnhildur Sigurðar-dóttir gefur góð ráð BLS. 6 Nýr og spennandi bóka- flokkur um ævintýri Kótós. Lærðu að teikna í leiðinni. edda.is Kalla þurfti út auka- lið lögreglumanna frá Reykjavík og Selfossi, þegar kannabisrækt- un var gerð upptæk í Þykkvabæn- um á föstudagskvöld. Þremur doberman-hundum var sigað á lögregluna sem var á staðnum og beit einn þeirra lögreglumann. Á föstudagskvöld var haldinn dansleikur í héraðinu og fékk lög- reglan á Hvolsvelli lögreglumenn frá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að aðstoða við hefðbundið eftirlit. Jafnframt var ákveðið að skyggnast um eftir marijúanaræktun á bæ í Þykkva- bænum, en lögreglunni á Hvols- velli höfðu borist ábendingar um að slíkt kynni að vera í gangi. Þegar lögreglumenn frá Hvols- velli og fíkniefnadeildinni komu á vettvang var þar fyrir einn maður með þrjá hunda. Hann sigaði þeim umsvifalaust á lögreglumennina með þeim afleiðingum, að einn hundanna beit lögreglumann í lærið. Lögreglumaðurinn slapp þó við meiri háttar meiðsl. Þegar þessi staða var komin upp var kallað á liðsauka frá lögregl- unni á Selfossi. Þá voru lögreglu- menn úr sérsveit Ríkislögreglu- stjóra kallaðir á staðinn. Jafnframt var fengin heimild til húsleitar. Samtals 52 kannabisgræðlingar fundust sem voru ræktaðir í þar til gerðum geymsluhólfum við bæinn. Maðurinn, sem sigaði hundun- um á lögregluna, var gestkomandi á bænum og var hann einn heima þegar lögregluna bar upphaflega að garði. Eftir að liðsauki hafði borist kom annar maður akandi að bænum, en hann mun vera húsráð- andi þar og góðkunningi lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir, en þeir látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Húsráðandi var grunaður um akstur undir áhrif- um lyfja, auk þess sem hann hefur játað að eiga kannabisplönturnar. Samtals voru að störfum þarna níu lögreglumenn frá fjórum emb- ættum þegar mest var. Þetta er í þriðja skiptið sem lög- reglan tekur marijúanaplöntur á þessum bæ á átta mánaða tímabili. Í fyrsta skiptið tók lögreglan svip- að magn og um tíu plöntur í annað skiptið. „Við höfum hert eftirlit og aðgerðir gegn málum af þessu tagi hér í héraðinu,“ segir Sveinn Rún- arsson, yfirlögregluþjónn á Hvols- velli. „Við fáum aðstoð frá fíkni- efnadeildinni í Reykjavík, svo og leitarhunda frá Ríkislögreglu- stjóra. Við erum með úrvalslið, sem skiptir öllu máli.“ Sigaði hundi á lögregluna Doberman-hundar voru notaðir til þess að hindra aðgang lögreglu að kannabisræktun á bæ í Þykkva- bænum. Einn hundanna beit lögreglumann. Guðmundur Ingvars- son, formaður HSÍ, segir það skýr- an vilja sambandsins að hafa Alfreð Gíslason áfram sem þjálf- ara handknattleikslandsliðsins. Alfreð segist hafa áhuga á að þjálfa áfram en efast um að hann hafi tíma fyrir starfið. Hann bað um frest til að íhuga málið og hefur HSÍ samþykkt beiðni Alfreðs. Hann mun því leggjast undir feld í fríinu og í kjölfarið greina frá ákvörðun sinni. Leggst undir feld Sveitarfélagið Ölfus á í einkaviðræðum við íslenska ráð- gjafarfyrirtækið Arctus ehf., félags meðal annars í eigu Jóns Hjaltalíns Magnússonar, um lóð vegna bygg- ingar áltæknigarðs í Þorlákshöfn. „Við höfum veitt þeim [Arctus] vilyrði fyrir lóð, sem gildir í allt að átján mánuði,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss. Á þeim tíma mun sveitarfélagið sam- kvæmt samkomulaginu hvorki hefja viðræður við aðra aðila né úthluta öðrum lóðum til annarra er lúta að uppbyggingu álvers innan marka sveitarfélagsins. Rennur það út um mitt ár 2008. Ólafur Áki segir að yfirmenn Alcan hafi haft frumkvæði að við- ræðum við sveitarfélagið eftir að tillaga um stækkun álversins í Straumsvík var felld. „Við höfum kynnt þeim það sem við höfum upp á að bjóða og gert þeim fulla grein þessu vilyrði sem við höfum veitt Arctus.“ Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir að ekki sé ólíklegt að ferð yfirmanna Alcan til Íslands vegna stjórnarfundar á morgun verði notuð í fleira. Ekki sé enn búið að ákveða dagskrá heimsókn- arinnar endanlega. Íslenskt félag hefur forgang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.