Fréttablaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 50
Alfreð Gíslason sagði
eftir landsleik Íslands og Serbíu að
hann þyrfti tíma til þess að íhuga
hvort hann gæti haldið áfram með
landsliðið. Ef HSÍ myndi krefjast
svars um framhaldið strax yrði
svarið nei og líklegast yrði það
samt nei eftir nokkrar vikur en
hann vildi samt fá tíma til íhuga
málið væri það hægt.
Guðmundur Ingvarsson, for-
maður HSÍ, segir það ekki vera
nokkra spurningu að Alfreð fái
sinn tíma til að skoða málið.
„Samningur Alfreðs rennur út
um mánaðamótin og hann mun fá
3-4 vikur til að hugsa sinn gang
áður en hann gefur okkur end-
anlegt svar. Það er klár vilji HSÍ
að halda Alfreð í starfi landsliðs-
þjálfara. Hann er búinn að koma
okkur til Noregs og mér finnst
eðlilegt að hann klári það dæmi,“
sagði Guðmundur sem ber Alfreð
einkar vel söguna.
„Alfreð er mjög hæfur þjálfari,
ákaflega klár og það er mjög gott
að vinna með honum. Leikmenn og
þeir sem eru í kringum landsliðið
eru allir mjög ánægðir með sam-
starfið við hann. Þess vegna viljum
við endilega halda honum áfram.“
Guðmundur segist vel skilja
þá stöðu sem Alfreð sé í og hefur
samúð með stöðu Alfreðs. „Ég
held að viljinn til að halda áfram
sé klárlega fyrir hendi en hann
hefur öðrum skyldum að gegna
hjá sínu félagi sem er hans aðal-
starf og svo er það náttúrulega
fjölskyldan. Þetta snýst um hvort
hann finni tíma til að sinna starf-
inu því Alfreð er þannig gerður
að hann vill sinna öllu sem hann
tekur sér fyrir hendur vel og af
samviskusemi,“ sagði Guðmundur
Ingvarsson.
Alfreð Gíslason fær nokkrar
vikur til að skoða sín mál
Þau leiðu mistök voru í
blaði gærdagsins að Helgi Sig-
urðsson var ranglega sagður hafa
skorað 3 mörk í Landsbankadeild-
inni þegar hann hefur að sjálf-
sögðu skorað 5 mörk.
Ástæðu mistakanna má rekja
til þess að upplýsingarnar voru
teknar af vef KSÍ, sem hing-
að til hefur verið áreiðanlegur,
en Valur hefur ekki séð sér fært
að skila inn skýrslu fyrir leik
sinna manna gegn Víkingi þó að
sex dagar séu síðan leikurinn fór
fram. Þar lágu mörkin tvö.
Fréttablaðið axlar engu að
síður fulla ábyrgð á mistökunum
og blaðið mun hér eftir styðjast
við eigin gögn til að forðast slík
mistök í framtíðinni.
Leiðrétting
Kvennalið Vals hefur
samið við tvo ungverska leik-
menn en báðir leikmennirnir
skrifuðu undir tveggja ára samn-
ing við Hlíðarendaliðið.
Leikmennirnir heita Barna
Éva og Valovics Nóra. Éva er 25
ára gamall miðjumaður en Nóra
er tvítug skytta sem getur leyst
báðar skyttustöðurnar. Hún er
184 sentimetrar á hæð og þykir
mjög efnileg enda unglingalands-
liðsmaður. Báðar stúlkurnar eru
væntanlegar til Íslands í lok júlí.
Fær Ungverja
Horfði á landsleikinn úr sjúkrarúminu
Framarar fögnuðu líkt
og þeir væru orðnir Íslandsmeist-
arar eftir að þeir lögðu Fylki, 3-
1. Það var greinilega þungu fargi
létt af Safamýrardrengjum enda
fyrsti sigurinn í höfn. Fram hefur
spilað ágætis fótbolta það sem af
er sumri en gengið bölvanlega að
nýta færin. Á því varð breyting í
gær.
Það voru lítil gæði í leik liðanna
í gær en þökk sé slökum varnar-
leik fengu áhorfendur talsvert
fyrir sinn snúð í formi færa og
marka. Fylkisvörnin virtist hafa
orðið eftir upp í Árbæ og ef ekki
hefði verið fyrir stórleik Fjalars
markvarðar hefði Fram klárað
leikinn í fyrri hálfleik. Þá varði
Fjalar víti frá Pesic og nokkur
dauðafæri þess utan.
Margir Framarar áttu því von
á svipuðum úrslitum og fyrr í
sumar og ekki síst þegar Valur
Fannar kom Fylki óverðskuld-
að yfir í leiknum með góðu skoti
utan teigs. Aðeins níu mínútum
síðar dæmdi frábær dómari leiks-
ins, Garðar Örn Hinriksson, rétti-
lega víti á Gravesen er boltinn
fór í hönd hans. Úr vítinu skoraði
Hjálmar örugglega. Fram skoraði
svo tvö lagleg mörk áður en yfir
lauk en maðurinn á bak við mörk-
in var varamaðurinn Alexander
Steen sem hressti verulega upp á
leik Framara og var maðurinn á
bak við flestar sóknarlotur þeirra
eftir að hann kom inn.
„Við vorum klárlega betra liðið
í þessum leik og áttum að vera
löngu komnir yfir. En við nýtt-
um ekki færin okkar sem er ekk-
ert nýtt. Við sýndum þó karakter
og kláruðum þennan leik eins og
menn,“ sagði kátur þjálfari Fram,
Ólafur Þórðarson. „Það var margt
jákvætt í leiknum. Stóri munurinn
á okkar leik er sá að við nýttum
loksins færin.“
Kollegi hans hjá Fylki, Leif-
ur Garðarsson, sagði stuðnings-
menn Fylkis hafa verið betri en
leikmennirnir. „Við virðumst ekki
hafa verið klárir í leikinn. Fjalar
bjargar okkur þegar þeir fengu
víti og við komumst svo yfir. Í
öllum tilvikum eigum við að klára
svona leik en því miður gerðist það
ekki.“
Framarar innbyrtu sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni þegar Fylkir kom í
heimsókn. Lokatölur 3-1 fyrir Fram og sigurinn hefði orðið stærri ef ekki hefði
verið fyrir stórleik Fjalars Þorgeirssonar, markvarðar Fylkis.