Fréttablaðið - 19.06.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 19.06.2007, Síða 6
Lórítín® – Kröftugt ofnæmislyf Notkun: Skömmtun: Frábendingar: Varúðarreglur: Aukaverkanir: H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 9 0 2 5 - A c ta v is 7 0 4 0 0 3 Við tökum vel á móti þér í Borgartúni 25 Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is Tókst þú þátt í hátíðahöldum vegna 17. júní? Spilar þú póker? Hæstiréttur dæmdi í gær Stefán Hjaltested Ófeigsson til tveggja ára hegningarauka fyrir nauðgun, og þyngdi Hæsti- réttur þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sex mánuði. Stef- án fékk samanlagt fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tvær nauðganir. Í dómi Hæstaréttar segir að sýnt hafi verið fram á að Stefán hafi á heimili sínu haft kynmök við konu sem lagði fram kæru á hendur honum. Það hafi hann gert gegn vilja hennar með valdbeit- ingu. Nauðgunin átti sér stað í lok maí eða byrjun júní 2004, en konan sagðist muna atburði kvöldsins slitrótt, og grunaði að henni hafi verið gefið lyf. Það taldist þó ekki sannað. Konan kærði árásina seint í desember 2005. Hún sagði lög- reglu að hún hefði ekki treyst sér til að kæra fyrr þar sem henni hafi ekki fundist hún hafa neitt í höndunum, auk þess sem hún hafi verið full sjálfsásökunar. Önnur kona kærði Stefán fyrir nauðgun í október 2004, og var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi í nóv- ember 2005, sem Hæstiréttur staðfesti í júní 2006. Fram kemur í dómi héraðs- dóms sem Hæstiréttur staðfesti í gær, að Stefán hafi sagt samfarir hafa farið fram með samþykki konunnar, og að kæra konunnar væri eingöngu til komin vegna fjölmiðlaumfjöllunnar um fyrra málið. Þar sem Stefán hafði áður verið dæmdur fyrir sams konar brot var hann í gær dæmdur til refsi- auka. Auk tveggja ára fangelsis- vistar var Stefán dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu eina milljón króna í skaðabætur. Hann var einnig dæmdur til að greiða sakar- og áfrýjunarkostnað í mál- inu, alls tæplega 1,2 milljónir króna. Vitni báru fyrir dómi að konan hefði hlotið áverka vegna árásar Stefáns. Sjálf lýsti konan því að hann hafi ítrekað slegið hana í mjaðmir og brjóst. Stefán viður- kenndi að hafa slegið konuna, en sagði það hafa verið hluta af leiknum. Dómurinn taldi frásögn kon- unnar trúverðuga, og hún stydd- ist við líkamlega áverka, lostá- stand og andlega erfiðleika í kjölfar árásarinnar. Í hinum stað- festa dómi héraðsdóms segir að árásin hafi verið alvarleg, og að Stefán eigi sér engar málsbætur. Hæstiréttur þyngdi dóm yfir nauðgara Stefán Hjaltested Ófeigsson hefur verið dæmdur til samtals fjögurra og hálfs árs fangelsisvistar fyrir tvær nauðganir. Ekki sannað að lyfjum hafi verið beitt segir í dómi frá því í gær. Dæmdur til að greiða fórnarlambi eina milljón króna. „Ég var bara heppinn að sleppa svona vel,“ sagði Alexei Trufan, bílstjóri hjá BM Vallá, sem lenti í fremur óþægilegri lífs- reynslu í gærmorgun. Hann missti stjórn á steypubíl sem hann ók með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði á ljósastaur og valt síðan á hliðina. Slysið varð á aðrein frá Miklubraut að Sæbraut. Bíllinn var fullhlaðinn þegar slysið átti sér stað og vó um 30 tonn. Bíllinn lokaði báðum akrein- um Sæbrautar og Reykjanesbraut- ar til suðurs og var Sæbrautinni lokað fyrir allri umferð til suðurs frá Kleppsmýrarvegi í rúmlega tvær klukkustundir. Tækjabíll slökkviliðsins var kallaður á vettvang til að aðstoða við að ná Alexei úr bílnum. Hann var síðan fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en reyndist lítið sem ekkert slasaður. Steypubifreiðin sem Alexei ók er mikið skemmd og þurfti að kalla til öflugan sextíu tonna krana til að ná henni af vettvangi. Heppinn að sleppa Lögregla hefur ekki gefið út ákæru á hendur forsvarsmanni pókermóts sem fram fór á föstudag, en lögreglan stöðvaði mótið þegar það var langt komið og taldi að lög um fjárhættuspil hefðu verið brotin. Sindri Lúðvíksson, forsvarsmaður mótsins, segist hafa heyrt í lögreglu í gær, og fengið þau skilaboð að verið væri að fara yfir málið. Sér hafi í öllu falli ekki verið birt ákæra enn. „Ég er að skoða hvað er best og skynsamlegast að gera í þessu máli. Þetta er voðalega þunnt hjá lög- reglunni og ég held þeir séu í hálfgerðum vandræð- um með þetta,“ segir Sindri. Fyrirkomulag mótsins var þannig að rúmlega 150 þátttakendur greiddu 4.000 króna þátttökugjald. Þær rúmu 600 þúsund krónur sem þannig öfluðust átti að nota til að greiða verðlaun. Sindri segist ekki hafa haft hagnað af mótinu, í raun hafi hann haft af því ýmsan kostnað. Það eina sem telja mætti sem tekjur væri sú auglýsing sem vefverslun hans hafi fengið vegna mótsins, en erfitt sé að meta hvers virði sú auglýsing sé. „Ef þeir ætla að kæra mig út frá lögum um fjár- hættuspil verða þeir líka að kæra bingó í Vinabæ og annað í þeim dúr,“ segir Sindri. „Málið er bara það að af því að þetta heitir póker þá eru menn að velta þessu fyrir sér. Ef þetta hefði verið mót í Olsen-Olsen eða öðru spili hefði enginn sagt neitt.“ Hefðu ekki stöðvað Olsen-Olsen

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.