Fréttablaðið - 19.06.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 19.06.2007, Síða 12
Sérsveit Ríkislög- reglustjóra og Landhelgisgæslan (LHG) æfðu nýverið með sér- sveit norsku lögreglunnar í Hval- firði, og er stefnt að því að önnur æfing fari fram á næstunni. Fram kemur í tilkynningu frá LHG að verkefni gæslunnar og ríkislögreglustjóra skarist á margvíslegan hátt og því sé gott samstarf nauðsynlegt. Norska lögreglan hefur átt gott samstarf við Ríkislögreglu- stjóra frá 1982, sem felur meðal annars í sér skiptiþjálfun, segir í tilkynningunni. Af þeim sökum hafi meðlimir delta-sveitar norsku lögreglunnar æft með LHG og sérsveitinni. Norsk delta-sérsveit æfði í Hvalfirði Barnaheill efndi til fjár- öflunarhádegisverðar í Iðnó á dög- unum þar sem um 40 konur úr íslensku athafnalífi komu saman til að styðja við starfsemi samtakanna. „Þetta er í fyrsta sinn sem Barna- heill stendur að fjáröflunar- hádegisverði með þessu sniði og var sérstaklega ánægjulegt að fá stuðn- ing kvenna sem eru í forystuhlut- verki víða í þjóðfélaginu,“ segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmda- stjóri Barnaheilla. Meðal dagskrárliða var happ- drætti og það vakti kátínu viðstaddra þegar í ljós kom að nýbakaður umhverfisráðherra, Þórunn Svein- bjarnardóttir, var meðal vinnings- hafa. Barnaheill eru frjáls félagasam- tök sem vinna að réttindum og vel- ferð barna. MÆÐGUR Í GOLF 19. JÚNÍ | Kaupþing | GSÍ | Pro Golf | Golfklúbbur Reykjavíkur | Í tilefni Kvenréttindadags Íslands verður haldinn sérstakur golfdagur fyrir ömmur, mæður og dætur í Básum í Grafarholti 19. júní kl. 16-20. Boðið verður upp á golfkennslu fyrir alla aldurshópa og verða kylfur lánaðar á staðnum. Í Básum verða allar fræknustu golfkonur landsins auk kennara frá ProGolf og IPGA. Konur eru hvattar til að koma með dætrum sínum og læra skemmtilega íþrótt. Hressandi útivist og holl og góð hreyfing fyrir konur á öllum aldri. Globalisation in one Continent - Mobility for t of all? ts and minimise the risks across Europe? EURES Mobility Conference in Reykjavik June 22, 2007

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.