Fréttablaðið - 01.07.2007, Page 14

Fréttablaðið - 01.07.2007, Page 14
Hver man ekki eftir sumarhúsa- byggðunum í Hollandi, Þýskalandi eða Danmörku? Kempervennen hvað? Krúttlegum bústöðum, veit- ingastöðum, tennisvöllum og leik- völlum var hrúgað saman í virki. Sumarfrí var ekki sumarfrí nema fjölskyldan gæti notið guðsgrænn- ar náttúrunnar eins og blómi í eggi án þess að eiga það á hættu að mæta betlurum eða öðru fólki úr raunveruleikanum. Í sumum til- fellum var allt heila klabbið sett undir glerþak sem hleypti þó sól- argeislunum í gegn. Allir komu því sólbrúnir heim eftir að hafa legið saman í laut og hlustað á fuglasöng – í bergmáli glerkúlunnar. Gufabað var ómissandi fyrir fólk sem var að byggja á 9. áratugnum. Í þá daga þótti það setja punkt- inn yfir i-ið að enda vinnudaginn á góðri gufu með nokkra kalda úr fríhöfninni. Gult handklæði og megrunarkaramellur í nesti. Eftir gufuna skellti heimilisfólk sér svo í sólstofuna og lét hitann rjúka úr sér í nýju baststólunum úr Hús- gagnahöllinni. Þegar á leið fylltust gufuböðin hins vegar af kössum og breyttust í geymslur. Basthús- gögnin enduðu á brennunni. Matarboð sem snerust um að stinga matarbitum á prjónum ofan í pott fullan af sjóðandi olíu, súkkulaði eða osti voru vinsæl fyrir allmörg- um árum. Á hátindi fondú-tíma- bilsins var matarboð varla mat- arboð án þess að boðið væri upp á fondú. Eftir tíð brunasár og ónýta borðdúka fékk þjóðin nóg. Bænum aðstandenda ístrubelgja var svarað þegar bumbubaninn kom á markaðinn. Jólagjöf ársins var reddað og fjölskyldan beið í of- væni eftir því að ístran á húsbónd- anum hyrfi fyrir gamlárskvöld. Þegar komið var fram á vor og pápi gamli ekki kominn niður fyrir hundrað kílóa múrinn var bumbu- bananum hent á haugana á svipuð- um tíma og McDonalds opnaði á Suðurlandsbrautinni. Þetta er eitthvert undarlegasta æðið sem dunið hefur á landan- um. Þegar fárið stóð sem hæst voru jafnvel dæmi um fimmtugar húsmæður í krumpu- göllum sem höfðu ekki plantað einni stjúpu við bústað- inn því þær voru of uppteknar við að þeysa á kvikindun- um um holt og hæðir. Fermingarbörn fóru ekki varhluta af æðinu og góðærisbörn þessa tíma muna eflaust eftir að hafa verið dregin út á bílaplan í miðri ferm- ingarveislunni þar sem fjórhjólið beið þeirra með rauðri slaufu. Lög- reglan hafði í nógu að snúast að elta uppi börn í einbýlishúsahverfum sem tættu upp mosa og runna á tryllitækjunum. Þau voru alla vega ekki að kveikja í sinu á meðan. Þó að Soda Stream tækin hafi átt gott kombakk hérna um árið þá áttu sírópsdunkarnir með pump- unum ekki afturkvæmt. Ljósabekkir til einkanota – enginn vill kannast við að hafa átt þá. Það var ekki nóg með að fullorðna fólk- ið hafi tekið smá rispu í bekkjun- um fyrir jól og fermingarveislur heldur sluppu börnin ekki heldur. Ef Lilli litli þótti fölur, veiklulegur eða ekki nógu frambærilegur fyrir fimmtugsafmæli Dobbu frænku var honum bara skellt undir lamp- ann og viti menn! Á fimm mínút- um leit hann út eins og eftir fimm daga á eyðieyju við miðbaug. Allir sáttir. Þjóðin stóð á öndinni þegar Vala Matt leiddi okkur um heimili betri borgara landsins og sýndi okkur hvernig ætti að búa smekklega. Þar leyfðu þjóðþekktir einstaklingar Völu að sjá heimili sín og þáðu jafn- vel góð ráð. Gott ef litatónarnir í málningarbúðum voru ekki nefndir eftir liðinu í þáttunum. „Ég ætla að fá fimm lítra af Stefán Karls-hrím- hvítum takk.“ Kerlaugar, náttúru- flísar, glerskilrúm, gegnheilt park- et og fleira brilljant tryllti landann. En eftir nokkur ár fór gamanið að kárna og þátturinn var endanlega settur út af sakramentinu þegar Ásgeir Kolbeins og Arnar Gauti tóku þriggja ára gamla eldhúsinn- réttingu og trérimlagardínur af lífi í beinni. Í dag ríkir ögn meira umburðarlyndi og það er í lagi að vera með innréttingu frá 1993 og húsgögn sem heita ekki eftir borg- um í Suður-Evrópu. Auðvitað eru sumir ekki búnir að ná þessu og þurrka rykið af viðar-eplunum, stara út um gluggann á tólftu hæð í Skuggahverfinu og syrgja gamla tíma þegar allt var krómað, hvítt og beisað. Nuddnámskeið, olíur og bekkir voru vinsæl fyrir fimmtán árum eða svo. Margir fjárfestu í olíum, bekkjum og námskeiðum og hjón lífguðu upp á sambandið með nuddi og aftur nuddi. Síðan hætti fólk að nenna þessu og skildi bara. Bollan er forfaðir kokteilsins og þótti afar þægileg þegar von var á mörgum gestum. Það þurfti bara eina sterka flösku (tannlæknaspíri var vinsæll), nóg af gosi, ávexti og glerskál. Bollur voru þó ekki vinsælar daginn eftir. Hver hefur ekki heyrt einhvern segja, grænan í framan með höfuðið ofan í klós- ettinu, „Æi, það var einhver bolla í partíinu í gærkvöldi...“ Í dag vill fólk frekar vita hvað það er að drekka. Það þýðir samt ekki að fólk drekki minna, það getur bara ekki leng- ur kennt bollunni um hausverkinn heldur eigin stjórnleysi. Guðfaðir skotanna er án efa Gallíanó-drykk- urinn Hot Shot. Sérstök glös og skeiðar feng- ust með flöskunni til að auðvelda lagskipting- una og í þau var líkjörn- um, kaffinu og rjóman- um hellt og síðan skál- að í botn (áður en allir skelltu sér í gufuna). Þegar radarvarar litu dagsins ljós vaknaði lítill glæpamaður í rólegustu heimilisfeðrum. Með börn- in í aftursætinu var gefið í botn á þjóðvegum landsins á meðan adrenalínið þaut um æðarnar. Svo virðist sem löggan hafi unnið tæknistríðið við ökumenn sem keyra of hratt og reyna að kom- ast upp með það. Nú er ekki leng- ur hægt að gefa í eins og fjand- inn sjálfur sé á eftir þér og kloss- bremsa þegar fyrsta pípið í tækinu hljómar. Löggan er löngu búin að ná þér á radarnum. Beef Wellington þótti ekkert slor og í flestum fermingum og brúð- kaupum á árum áður mátti sjá kjötflykki vafið deigi á öllum betri hlaðborðum. Hvers vegna réttur- inn dó út er erfitt að segja til um en ætli pestó-brauðkörfur, ostar og pylsur frá bakarameisturum lands- ins hafi ekki þótt sigurstranglegri fyrir aðhaldið sem hálf þjóðin virð- ist vera í. Fæðing Venusar, Ópið og hinar rauðhærðu konur Gustavs Klimt eru ódauðleg listaverk en eftir- prentanir í römmum sjást varla lengur. Þær voru þó merkilega vinsælar hérna áður fyrr – á sama tíma og helsta prýði bókaskápsins var Kvennafræðarinn. Þú finnur varla meiri 80s sprengju en vatnsrúmin. Hver man ekki eftir öðrum í jólum – sex stórmáltíðum og sjö konfektkössum síðar – þegar heimilisfaðirinn hafði það flott og lagðist á meltuna í jólagjöfinni frá sveinka. Hvað gerðist? Og þá er komið að heilsudellunni. Grár sveppamassi var settur í vatnsglas og látinn standa í ísskáp. Safinn þótti hollur og góður og fólk drakk af bestu lyst. Bitar af her- legheitunum gengu manna á milli enda var nóg að fá brot af sveppn- um því hann óx hratt. Sögusagnir voru uppi um að ekki væri hægt að drepa sveppinn nema grafa hann í jörðu. Stundum dugði það held- ur ekki til og fræg er sagan af rað- húsalengjunni í Fossvogi þar sem sveppurinn teppalagði hvern bak- garðinn á fætur öðrum vegna þess að einhver íbúinn hafði reynt að grafa hann og drepa í skjóli nætur. Fyrir nokkrum árum voru stripp- búllur um alla borg. Viðskipt- in blómstruðu á stöðunum í skjóli fattlausra ráðamanna sem héldu að dansararnir væru listamenn en ekki þrælar. Eftir að einkadans- inn var bannaður fækkaði búllun- um enda ballið búið... og þó. Í verk- smiðjuhverfi í Kópavogi er síðasta dansandi móhíkanann að finna. Þessi móhíkani stendur í ströngu þessa dagana við að verja rekstur sinn og segir sig ekki þrælahald- ara heldur löghlýðinn borgara sem greiði vini sínum, bæjarfógetan- um, skatta. Það er ekki nóg með að þeir hafi fundið upp megrunarlyf heldur gat hver sem var grætt fúlgur fjár á því með því að gerast „sölumað- ur megrunar“. Herbalife-kóng- ar spruttu upp eins og sveppur- inn góði og brátt gat fólk varla farið í skírnarveislu án þess að vera dregið út í horn af andsetn- um sölumanni með megrunarduft- ið í jakkavasanum og dollaramerki í augunum sem sannfærði það um að nú væri kominn tími til að hætta við fasta fæðu og fá sér duftdrykki og vítamíntöflur. Í dag eru Herba- life-sölumenn annaðhvort flún- ir land eða ganga á milli húsa og reyna að selja 100.000 króna vatns- ryksugur. Stórmerkilegt hverfi sem var hann- að með það í huga að vera snekkju- paradís þeirra sem vildu njóta þess að búa við sjóinn og átti að minna á strandbæ í Suður-Frakk- landi. Því miður voru íbúar hverf- isins sviknir af borgaryfirvöldum sem lofuðu fyrir mörgum árum að flytja í burtu sandverksmiðj- una sem stendur við hverfið. Verk- smiðjan stendur þar enn og feyk- ir sandi yfir íbúa þegar vindátt er óhagstæð. Þegar þannig viðrar má sjá þá ráfa um með klúta fyrir vitunum svona eins og íbúar Pek- ing gerðu vorið 2005 þegar fuglaf- lensan ógnaði mannkyninu. Og talandi um fuglaflensuna. Því- lík lumma! Það má segja að fugla- flensan sé della sem náði yfir alla heimsbyggðina. Hver gleymir al- varlegum yfirlýsingum fjölmiðla um að jarðarbúar stæðu frammi fyrir ólæknandi og bráðdrepandi inflúensu sem myndi láta svarta dauða líta út eins og vægan hósta? Áhyggjufullur landlæknir lýsti því yfir að ef allt færi á versta veg myndi heil kynslóð Íslendinga þurrkast út og aðeins gamalmenni og börn lifa af. Þeir sem höfðu efni á keyptu sér aukafrystikistur fullar af frosnu kjöti og húsmæð- ur í Vesturbænum fylltu skápana af haframjöli ef stjórnleysi og al- mennt anarkí myndi skapast af völdum flensunnar. Í dag er enn beðið eftir flensunni og hættan á útbreiðslu er til staðar. Það nennir bara enginn að hlusta lengur. Enda blaðran sprungin. Rykið dustað af dellum þjóðarinnar Sumarhúsaparadís í Hollandi, bumbubani og fjórhjól? Hringir þetta einhverjum bjöllum? Hvað með fondúpott og vatnsrúm? Lára Björg Björns- dóttir fór í gegnum spjaldskrá íslenskra dellna og tíndi fram tuttugu drauga úr fortíðinni. Í dag eru Herbalife-sölumenn annaðhvort flúnir land eða ganga á milli húsa og reyna að selja 100.000 króna vatnsryksugur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.