Fréttablaðið - 01.07.2007, Side 19

Fréttablaðið - 01.07.2007, Side 19
Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur hjá Capacent (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is eða í síma 540-7117) eða skrá umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig. www.alcoa.is ÍS L E N S K A /S IA .I S A L C 3 81 82 0 6/ 07 Framtíðartækifæri hjá Alcoa Fjarðaáli Upp á hvað hefur Alcoa Fjarðaál að bjóða sem framtíðarvinnustaður? Áhugaverð störf í hvetjandi umhverfi Störfin í álverinu eru fjölbreytt og örugg. Vinnustaðurinn er hannaður með það í huga að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Unnið er í teymum og mikið er lagt upp úr góðum starfsanda. Starfsumhverfið býður víðtæka þjálfun, meðal annars á ýmiss konar farartæki og tölvubúnað. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru óvíða fleiri. Góð laun og gott vinnufyrirkomulag Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru frá 3.739.000 kr. á ári, miðað 15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangursávinning, sem jafngildir 312.000 kr. á mánuði. Byrjunarlaun iðnaðarmanns með réttindi eru frá 5.401.253 kr. á ári, miðað við 15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangursávinning. Það jafngildir 433.000 kr. á mánuði fyrir 40 stunda vinnuviku að meðaltali. Vaktafyrirkomulagið veitir góða möguleika á aukavöktum og viðbótar- tekjum fyrir þá sem óska þess. Fríar ferðir, fæði og klæði Fjarðaál býður upp á rútuferðir frá Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Starfsmenn fá hollar og góðar máltíðir í glæsilegu mötuneyti. Fyrirtækið útvegar og þvær allan vinnufatnað starfsmönnum að kostnaðarlausu. Heilbrigði og velferð Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni 12.000 kr. líkamsræktarstyrk árlega og leigir tvo tíma á viku fyrir starfsmenn í Fjarðabyggðarhöll- inni. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkamsbeitingu og nuddari heim- sækir vinnustaðinn tvisvar í viku. Starfsmenn hafa greiðan aðgang að öflugri velferðarþjónustu sem nær meðal annars til læknisþjónustu og ráðgjafar á ýmsum sviðum. Kostnaðarlaus og auðveldur flutningur inn á svæðið Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr meira en 100 km fjarlægð frá vinnustaðnum greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu fasteigna, svo sem sölulaun, lántökugjald og stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að pakka búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju heimili. Með fyrsta launaseðli fær starfsmaður 200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir á svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa á svæðinu við að leigja húsnæði. Starfsmenn fá jafnframt tiltekinn fjölda flugmiða með Flugfélagi Íslands á mjög hagstæðum kjörum. Rauðhellu 1 - 221 Hafnarfjörður - Sími 580 16 00 Fax 580 16 01 Veffang gtverktakar@gtverktakar.is - www.gtverktakar.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.