Fréttablaðið - 01.07.2007, Page 19
Ef þú hefur áhuga á þessu tækifæri ættir þú hiklaust að hafa samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
hjá Capacent (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is eða í síma 540-7117) eða skrá umsókn þína á
www.capacent.is og haft verður samband við þig.
www.alcoa.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
A
L
C
3
81
82
0
6/
07
Framtíðartækifæri hjá Alcoa Fjarðaáli
Upp á hvað hefur Alcoa Fjarðaál að bjóða
sem framtíðarvinnustaður?
Áhugaverð störf í hvetjandi umhverfi
Störfin í álverinu eru fjölbreytt og örugg. Vinnustaðurinn er hannaður
með það í huga að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Unnið er í
teymum og mikið er lagt upp úr góðum starfsanda. Starfsumhverfið
býður víðtæka þjálfun, meðal annars á ýmiss konar farartæki og
tölvubúnað. Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar eru
óvíða fleiri.
Góð laun og gott vinnufyrirkomulag
Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru frá 3.739.000 kr. á ári, miðað
15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangursávinning, sem jafngildir
312.000 kr. á mánuði.
Byrjunarlaun iðnaðarmanns með réttindi eru frá 5.401.253 kr. á ári,
miðað við 15 tólf tíma vaktir á mánuði og 15% árangursávinning. Það
jafngildir 433.000 kr. á mánuði fyrir 40 stunda vinnuviku að meðaltali.
Vaktafyrirkomulagið veitir góða möguleika á aukavöktum og viðbótar-
tekjum fyrir þá sem óska þess.
Fríar ferðir, fæði og klæði
Fjarðaál býður upp á rútuferðir frá Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði,
Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Egilsstöðum. Starfsmenn fá hollar og
góðar máltíðir í glæsilegu mötuneyti. Fyrirtækið útvegar og þvær
allan vinnufatnað starfsmönnum að kostnaðarlausu.
Heilbrigði og velferð
Fjarðaál greiðir hverjum starfsmanni 12.000 kr. líkamsræktarstyrk
árlega og leigir tvo tíma á viku fyrir starfsmenn í Fjarðabyggðarhöll-
inni. Iðjuþjálfi leiðbeinir um rétta líkamsbeitingu og nuddari heim-
sækir vinnustaðinn tvisvar í viku. Starfsmenn hafa greiðan aðgang að
öflugri velferðarþjónustu sem nær meðal annars til læknisþjónustu
og ráðgjafar á ýmsum sviðum.
Kostnaðarlaus og auðveldur flutningur inn á svæðið
Þurfi starfsmaður að flytja inn á svæðið úr meira en 100 km fjarlægð
frá vinnustaðnum greiðir Fjarðaál kostnað við kaup og sölu fasteigna,
svo sem sölulaun, lántökugjald og stimpilgjöld. Fyrirtækið sér um að
pakka búslóð, flytja hana og koma fyrir á nýju heimili. Með fyrsta
launaseðli fær starfsmaður 200.000 kr. greiðslu til að koma sér fyrir
á svæðinu. Fyrirtækið aðstoðar einnig nýja íbúa á svæðinu við að
leigja húsnæði. Starfsmenn fá jafnframt tiltekinn fjölda flugmiða með
Flugfélagi Íslands á mjög hagstæðum kjörum.
Rauðhellu 1 - 221 Hafnarfjörður - Sími 580 16 00 Fax 580 16 01
Veffang gtverktakar@gtverktakar.is - www.gtverktakar.is