Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 01.07.2007, Qupperneq 58
Góð og gáfuð kona sagði eitt sinn við mig að snobb væri með því kjánalegasta sem hún vissi því öll störf væru hvort sem er þjónustu- störf. Þetta þótt mér stórmerkileg sýn á til- veruna og fór að velta þessu fyrir mér. Auðvitað eru öll störf þjónustu- störf. Það er í raun sama hvað það er sem við fáumst við með starfi okkar, allir eru á einn eða annan hátt að reyna að verða öðrum til gagns eða gamans. Sum störf flokkast sérstaklega undir þjónustustörf og þá er átt við það þegar fólk sinnir öðru fólki á augljósan máta. Til dæmis með því að færa kaffi, skipta á rúmum eða finna vörur í hillu. En af hverju ekki að bæta þessu heiti við fleiri störf? Nú sit ég til dæmis hér og skrifa þennan pistil svo að þú getir hvílt kollinn þinn frá öðrum hugsunum. Þannig er ég pistlahöfundur í þjón- ustustarfi. Skrítlurnar hér að neðan voru teiknaðar af fólki sem fékk list- ræna hæfileika í vöggugjöf og notar þá til að skemmta þér og mér. Alþingismenn og rafvirkjar skoða líka skrítlurnar og flissa andartak en svo fara þeir að þjónusta okkur á sinn hátt. Þetta segir sig sjálft. Það er sama hvert við lítum. Öll störf eru þjónustustörf. Hvers vegna þá að snobba meira fyrir einu starfi en öðru? Hvers vegna er „fínna“ að vinna á lög- fræðistofu en hjúkrunarheimili fyrir aldraða? Við getum ekki án hvors annars verið. Hvað myndum við gera ef allir rakarar heimsins hentu skærunum? Við litum út eins og hænurassar í vindi. Tannlækn- ar leggja niður störf. Við mynd- um hætta að brosa. Sorphirðufólk, halda sig heima. Það myndi allt fyllast af rusli. Og því er drambið falli næst. Hugsanlega endum við á hjúkrun- arheimilum þar sem náð okkar og miskunn er í höndum þeirra starfs- manna sem síst er snobbað fyrir og því er um að gera að láta af þeim ljóta sið sem fyrst því öll störf, já... öll störf eru þjónustustörf. Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 4. júlí í tvær vikur. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á vin- sælasta sumarleyfi sstað Íslendinga. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/ íbúð í 2 vikur. Allra síðustu sætin Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 2 vikur. 4. júlí í 2 vikur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.